-
KnitPro DREAMZ hringprjónar er úr birki með góðum oddi, sléttri áferð og lipurri snúru. Uppáhaldsprjónar margra. Hægt er að fá Dreamz sokkaprjóna, styttri og lengri, og prjónaodda og snúrur til að skrúfa saman. Hver grófleiki er í sérstökum lit. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. Prjónarnir eru til í 40 cm, 60 cm og 80cm lengdum. Knit Pro prjónarnir eru framleiddir í Indlandi við bestu mögulegar aðstæður fyrir starfsfólk. Þar á sér stað stöðug vöruþróun og þarfir prjónara eru alltaf í fyrirrúmi. -
KNITPRO Symfonie hringprjónar er úr birki með góðum oddi, sléttri áferð og lipurri snúru. Uppáhaldsprjónar margra. Hægt er að fá Symfonie sokkaprjóna, styttri og lengri, og prjónaodda og snúrur til að skrúfa saman. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. Prjónarnir eru til í 40cm, 60cm, 80cm og 100cm lengdum. Knit Pro prjónarnir eru framleiddir í Indlandi við bestu mögulegar aðstæður fyrir starfsfólk. Þar á sér stað stöðug vöruþróun og þarfir prjónara eru alltaf í fyrirrúmi. -
Afsláttur!
ALPHA I útsaumspúði
Púðinn er saumaður á ámálaðan stramma með ullargarni. Nál fylgir og leiðbeiningar um hvernig á að sauma perlu- eða körfusporið sem notað er (petit point á ensku). Hönnuður: Felicity Hall Stærð: 40 cm x 40 cm Þéttleiki: 55 spor / 10 cm. -
Þessi púði er hnýttur með sérstöku áhaldi sem lýkist heklunál með loki sem leggst yfir krókinn. Aðferðin heitir SMYRNA og er vel þekkt frá fyrri tíð en er núna að komin aftur. Innihald:- Grófur, ámálaður strammi
- Smyrnanál með skafti
- Garn sem er búið að klippa niður í hæfilega langar lengjur (70% akríl, 30% pólíester)
- Límaband til að setja á brúnir strammans
- Frágangsnál / þráður
- Bak úr 100% bómull með rennilás
-
Þessi púði er hnýttur með sérstöku áhaldi sem lýkist heklunál með loki sem leggst yfir krókinn. Aðferðin heitir SMYRNA og er vel þekkt frá fyrri tíð en er núna að komin aftur. Innihald:- Grófur, ámálaður strammi
- Smyrnanál með skafti
- Garn sem er búið að klippa niður í hæfilega langar lengjur (70% akríl, 30% pólíester)
- Límaband til að setja á brúnir strammans
- Frágangsnál / þráður
- Bak úr 100% bómull með rennilás
-
Afsláttur!
ALPHA II útsaumspúði
Púðinn er saumaður á ámálaðan stramma með ullargarni. Nál fylgir og leiðbeiningar um hvernig á að sauma perlu- eða körfusporið sem notað er (petit point á ensku). Hönnuður: Felicity Hall Stærð: 40 cm x 40 cm Þéttleiki: 55 spor / 10 cm. -
Afsláttur!
IN THE FRAME útsaumspúði
Púðinn er saumaður á ámálaðan stramma með ullargarni. Nál fylgir og leiðbeiningar um hvernig á að sauma perlu- eða körfusporið sem notað er (petit point á ensku). Hönnuður: Felicity Hall Stærð: 40 cm x 40 cm Þéttleiki: 55 spor / 10 cm. -
MATRYOSHKA STARTER KIT er útsaumspakki fyrir lengra komna í útsaumi. Pakkinn heitir grunnsett af því það er allt í honum til að byrja að sauma. Notuð eru fjölbreytt frjáls útsaumsspor. Öll útsaumsmynstur frá Kiriki eru handþrykkt með björtum, vatnsbaseruðum bleklitum á efni. Það er því ekki þörf á að yfirfæra mynstur á efni. Innihald:- Útsaumshringur Ø 15 cm
- Gyllt storkaskæri
- Bók með lýsingu á útsaumssporunum
- Silkiprentað bómullarefni
- Áprentað efni fyrir bak
- Útsaumsnál nr. 9
- Útsaumsgarn frá DMC; árórugarn
- Fylling
- Góð vinnulýsing
- Litmynd af útsaumaðri dúkku
- Áprentaðar umbúðir; upplagt sem gjöf!
-
HORNED OWL STARTER KIT er útsaumspakki fyrir byrjendur og lengra komna í útsaumi. Pakkinn heitir byrjunarpakki af því það er allt í honum til að byrja að sauma. Sporin eru fyrir þá sem hafa einhverja reynslu í útsaumi. Notuð eru einföld frjáls útsaumsspor og aðeins flóknari. Öll útsaumsmynstur frá Kiriki eru handþrykkt með björtum, vatnsbaseruðum bleklitum á efni. Það er því ekki þörf á að yfirfæra mynstur á efni. Innihald:- Útsaumshringur Ø 15 cm
- Gyllt storkaskæri
- Bók með lýsingu á útsaumssporunum
- Silkiprentað bómullarefni
- Áprentað efni fyrir bak
- Útsaumsnál nr. 9
- Útsaumsgarn frá DMC; árórugarn
- Fylling
- Góð vinnulýsing
- Litmynd af útsaumaðri uglu
- Áprentaðar umbúðir; upplagt sem gjöf!
-
KNIT PRO hringprjónar úr bambus sem er deigari en birki og þola því meira átak. Prjónaoddarnir eru léttir og mjúkir viðkomu og samskeyti snúru og prjónaodds slétt. Hægt er að fá sokkaprjóna úr bambus, bæði stutta og langa. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. Knit Pro prjónarnir eru framleiddir í Indlandi við bestu mögulegar aðstæður fyrir starfsfólk. Þar á sér stað stöðug vöruþróun og þarfir prjónara eru alltaf í fyrirrúmi. -
Afsláttur!
KNIT PRO Nova hringprjónar eru rennisléttir málmprjóðar og þola því meira átak. Prjónaoddarnir eru léttir og mjúkir viðkomu og samskeyti snúru og prjónaodds slétt. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. Knit Pro prjónarnir eru framleiddir í Indlandi við bestu mögulegar aðstæður fyrir starfsfólk. Þar á sér stað stöðug vöruþróun og þarfir prjónara eru alltaf í fyrirrúmi. -
KNIT PRO Cubics hringprjónar eru úr birki og eru ferkantaðir. Áferðin er slétt og mjúk en kantarnir hindra að lykkjurnar renni of auðveldlega á prjónunum. Þess vegna er líklegra að prjónfestan verði þéttari með Cubics prjónum en hefðbundnum prjónum í sama grófleika. Þessir prjónar hafa fengið góð meðmæli frá þeim sem prjóna laust og eiga erfitt með að halda þétt um prjónana. Hægt er að fá Cubics sokkaprjóna, bæði stutta og langa. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. Knit Pro prjónarnir eru framleiddir í Indlandi við bestu mögulegar aðstæður fyrir starfsfólk. Þar á sér stað stöðug vöruþróun og þarfir prjónara eru alltaf í fyrirrúmi -
Löngu Cubics sokkaprjónarnir frá Knit Pro eru góðir í sokkaprjón, vettlingaprjón, ermar og hálsmál. Cubics prjónar eru ferkantaðir prjónar úr birki, hafa slétta og mjúka áferð og oddarnir eru góðir. Cubics prjónar hentar þeim sem prjóna laust eða halda laust um prjónana og þeim sem vilja prjóna þéttar. Lögunin á prjónunum veldur því að það er þægilegt að halda á þeim, gripið þarf ekki að vera eins þétt og þeir renna síður í höndunum. Prjónastærðin er mæld með sama hætti og ávölu, venjulegu prjónarnir. Fást einnig 15 cm langir. Knit Pro prjónarnir eru framleiddir í Indlandi við bestu mögulegar aðstæður fyrir starfsfólk. Þar á sér stað stöðug vöruþróun og þarfir prjónara eru alltaf í fyrirrúmi. -
Stuttu Cubics sokkaprjónarnir frá Knit Pro eru góðir í sokkaprjón, vettlingaprjón og ermar á ungbarnapeysur. Cubics prjónar eru ferkantaðir prjónar úr birki, hafa slétta og mjúka áferð og oddarnir eru góðir. Cubics prjónar hentar þeim sem prjóna laust eða halda laust um prjónana og þeim sem vilja prjóna þéttar. Lögunin á prjónunum veldur því að það er þægilegt að halda á þeim, gripið þarf ekki að vera eins þétt og þeir renna síður í höndunum. Prjónastærðin er mæld með sama hætti og ávölu, venjulegu prjónarnir. Fást einnig 20 cm langir. Knit Pro prjónarnir eru framleiddir í Indlandi við bestu mögulegar aðstæður fyrir starfsfólk. Þar á sér stað stöðug vöruþróun og þarfir prjónara eru alltaf í fyrirrúmi. -
INNOX er snilldarlausn fyrir okkur öll sem prjónum og saumum út. Þetta eru 20 x 10 cm miðar í áberandi litum. Hver miði nær því þvert yfir flestar bækur, blöð og skjái. Snilldin felst í því að það er ekkert lím! Miðarnir loða við allt, pappír, gler, tré, steypu og málm. Hægt er að taka þá af, færa til og endurnota aftur og aftur. Hægt er að skrifa á miðana ef vill. Fyrir okkur sem erum í hannyrðum þá eru þetta gott hjálpartæki en þetta nýtist líka mörgum öðrum sem eru að skipuleggja verkefni og vilja setja marga miða á vegg, skrifa á þá og færa til eftir þörfum. Stærð: 20 x 10 mm. 100 miðar í hefti. 4 litir í boði: bleikt, appelsínugult, grænt, blátt. -
Handunnin garn- eða hnotuvinda úr tré sem getur undið allt að 450 g af garni í fínbands (4ply/fingering) grófleika. Garnvindan er alveg hljóðlaus og hún er hönnuð þannig að snertifletir eru fáir og því er gengur vindingin ljúft og snuðrulaust fyrir sig. Gúmmítappar eru á botninum svo vindan renni ekki til eða rispi borð. Borðfesting fylgir. Fyrirhafnarminna að vinda garn í hnotu í þessari vindu því hver hringur sem snúið er eins og þrír á minni garnvindum. Hægt að kaupa auka gúmmíreim ef á þarf að halda.
