-
Þægilegur teljari sem telur uppi 99. Hann er með lykkju sem er ætluð til að setja utan um prjóninn. Þannig er hægt að nota teljarann sem merki fyrir byrjun umferðar um leið og fylgst er með umferða- eða lykkjufjölda. Ef það hentar ekki að hafa teljarann utan um prjóninn er hægt að festa hann við prjónverkið með lykkjukrækju. Hægt er að snúa teljaranum 360° á lykkjunni, þannig snýr hann alltaf rétt. Passar fyrir 2 mm - 10 mm hringprjóna og bandprjóna.
-
Höfundur: Marie Wallin Útgefandi: Marie Wallin Designs (2024)Berwick is in 3 sizes: S/M/L, XXL/XXL & 3XL Farne is in 5 sizes: S/M, M/L, L/XL, XXL/2XL & 3XLMjúkspjalda | 130 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 585 g | Mál: 215 x 280 mmKvenstærðirnar eru S, M, L, XL, XXL, 2XL OG 3XL og passa fyrir ummál 81-86 cm, 91-97cm, 102-107cm, 112-117cm, 122-127cm, 132-137 cm og 142-147 cm. Uppskriftin Berwick er í 3 stærðum: S/M/L, XXL/XXL & 3XL. Uppskriftin Farne er í 5 stærðum: S/M, M/L, L/XL, XXL/2XL & 3XL. Hverri bók fylgir rafbók, það er kóði til að hlaða bókinni niður í tölvuna, spjaldtölvuna eða símann. Þá er auðvelt að stækka mynstrin þegar prjónað er eftir þeim.
-
ATH. nú er hægt að fá danska þýðingu með sem kaupauka. Setjið í athugasemdir með kaupum ef þið viljið bæta því við. Höfundur: ROWAN Útgefandi: Rowan (2024)Mjúkspjalda | 161 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 850 g | Mál: 240 x 310 mm ROWAN tímaritin koma út tvisvar á ári, vor- og sumarblað og haust- og vetrarblað. Hver tímarit er fullt af uppskriftum fyrir dömur og herra, peysur og fylgihlutir eftir helstu hönnuði Rowan hvers tíma. Flestar uppskriftirnar eru fyrir prjón en það eru einnig hekluppskriftir inn á milli. Í nýjustu blöðunum hefur peysum sem eru prjónaðar í hring og jafnvel ofan frá fjölgað. Storkurinn er ein af fáum garnbúðum sem hafa selt Rowan garn og tímarit frá upphafi Rowan. Við eigum því sýnishorn af öllum útgefnum blöðum og mörg þeirra eru enn í sölu. Hér getið þið séð yfirlit yfir innihald ROWAN #73.
-
Höfundur: NOVITA Útgefandi: Novita (Haust 2023)Tungumál: Enska, þýska & hollenska (sama heftið) Þyngd: 475 g | Mál: 21 x 27 mm NOVITA gefur reglulega út prjónahefti með uppskriftum. Í þessu hefti eru 12 uppskriftir af peysum og fylgihlutum. Peysurnar eru allar stílhreinar og klassískar kvenpeysur sem hafa mikið notagildi. Uppskriftirnar eru á þremur tungumálum; ensku, hollensku og þýsku.Novita Essentials inniheldur uppskriftir fyrir byrjendur og lengra komna prjónara. Athugið að myndirnar eru af áhugasömum prjónurum sem hafa sent Novita sína útfærslu af peysum úr heftinu.
-
Höfundur: NOVITA Útgefandi: Novita (Haust 2023)Tungumál: Sænska Þyngd: 350 g | Mál: 21 x 29,5 mm NOVITA tímaritin koma út fjórum sinnum á ári; vor-, sumar-, haust- og vetrarblöð. Hvert tímarit með um eða yfir 40 uppskriftum fyrir börn, fullorðna og heimilið.Uppskriftirnar eru með teikningum ef við á og er auðvelt að fylgja. Í hverju blaði er er kennsla á tiltekinni aðferð í hannyrðum.
-
Höfundur: ROWAN Útgefandi: Rowan (2023)Mjúkspjalda | 161 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 850 g | Mál: 240 x 310 mm ROWAN tímaritin koma út tvisvar á ári, vor- og sumarblað og haust- og vetrarblað. Hver tímarit er fullt af uppskriftum fyrir dömur og herra, peysur og fylgihlutir eftir helstu hönnuði Rowan hvers tíma. Flestar uppskriftirnar eru fyrir prjón en það eru einnig hekluppskriftir inn á milli. Í nýjustu blöðunum hefur peysum sem eru prjónaðar í hring og jafnvel ofan frá fjölgað. Storkurinn er ein af fáum garnbúðum sem hafa selt Rowan garn og tímarit frá upphafi Rowan. Við eigum því sýnishorn af öllum útgefnum blöðum og mörg þeirra eru enn í sölu.
-
Höfundur: Claire GelderÚtgefandi: Search Press (2023)Harðspjalda | 128 bls. Þyngd: 280 g | Mál: 127 x 180 mm Frábær lítil ríkulega myndskreytt handhæg bók fyrir þá sem eru byrjendur í prjóni eða vilja rifja upp. Hér getið þið skoðað sýnishorn af innihaldi bókarinnar: Search Press
-
Höfundur: Bergrós KjartansdóttirÚtgefandi: Bókabeitan (2022) Harðspjalda | 73 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 410 gShawls of Myth and Magic is an ode to the Icelandic wool, Icelandic nature and Norse mythology. All the shawls are knitted from Icelandic wool and each one is shown in two different colorways and yarns. In that way each shawl is a poem which tells a story, old and new, while warming the owners, protecting them, and delighting their senses. Icelandic nature shines in all its glory in the photographs, weaving in and out of the knitting patterns and reflecting in the shawls themselves.
-
Afsláttur!Höfundur: ROWAN Útgefandi: Rowan (2021)Mjúkspjalda | 152 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 400 g | Mál: 195 x 270 mm
-
Afsláttur!Höfundur: ROWAN Útgefandi: Rowan (2020)Mjúkspjalda | 65 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 410 g | Mál: 195 x 270 mm
-
Höfundur: Meiju K.P. Útgefandi: Laine Publishing (2021)Harðspjalda | 280 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 1.300 g | Mál: 205 x 270 x 27 mmÞessi dásamlega fallega bók frá Meiju P endurspeglar metnaðarfulla prjónhönnun. Allar uppskriftirnar eru með útprjóni; köðlum eða öðru til að gera áferðina skemmtilega í einlitum flíkum. Bókin inniheldur 22 uppskriftir (9 peysur, 5 golftreyjur, 1 slá, 4 sjöl, 3 húfur). Sígild prjónhönnun! Uppskriftirnar innihalda bæði mynsturteikningar og skriflegar vinnulýsingar.
-
Höfundur: Aleks Byrd Útgefandi: Laine Publishing (2022)Harðspjalda | 216 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 1.080 g | Mál: 205 x 270 x 27 mmBókin inniheldur 19 prjónauppskriftir (10 peysur, 1 golftreyju, 1 kjól, 1 vesti, 1 sjal, 1 kraga, 1 húfu, 1 sokkapar, 1 grifflur, 1 vettlinga). Vel útfærðar, teiknaðar lýsingar á aðferðum fyrir hefðbundnar prjónaaðferðir frá Eistlandi. Uppskriftirnar innihalda bæði mynsturteikningar og skriflegar vinnulýsingar.