Della Q hringprjónabuddan er með 9 hólfum og hvert þeirra rúmar nokkra hringprjóna. Hentugt til koma skipulagi á hringprjónana eða til að taka með í ferðalagið.
Stærð:
Lokað: 12,7 cm x 20,3 cm
Fullt: 4,5 cm á dýpt
Linen línan - Ytra byrðið og vasarnir eru úr líni (hör) og innra byrðið (röndótta) úr bómullarefni. Til að loka veskinu er hnesla úr þykkri snúruteygju sem smeygt er utan um stóra kókostölu. Teygjan tryggir að hægt er að loka veskinu þó að það sé troðfullt af prjónum!
-
Della Q prjónaoddaveskin koma skipulagi á prjónaoddana og snúrurnar. Það rúmar heilt prjónasett og það fer lítið fyrir því upprúlluðu eða samanbrotnu. Hentugt til að taka með í ferðalagið. Hver vasi er merktur svo að hver grófleiki rati í réttan vasa. Það eru merktir vasar (2,7 - og 10mm) og 5 ómerktir auka vasa með rennilás til að geyma smáhlutina. Stærð: Lokað: 10 cm x 18,5 cm
Opið: 38 cm x 18,5 cm Linen línan - Ytra byrðið og vasarnir eru úr líni (hör) og innra byrðið (röndótta) úr bómullarefni. Til að loka veskinu er þykk snúruteygja sem smeygt er utan um stóra kókostölu. Teygjan tryggir að hægt er að loka veskinu þó að það sé troðfullt af prjónum! -
Della Q hringprjónaveskin koma skipulagi á hringprjónana. Það rúmar mikið en er samt hæfilega stórt til að taka með í ferðalagið. Hver vasi er merktur svo að hver grófleiki rati í réttan vasa. Það komast nokkrir hringprjónar í hvern vasa, því við eigum jú oftast mismunandi lengdir í hverju númeri. Merkingarnar fyrir hringprjónana eru frá 2,75 mm upp í 10 mm og að auki tveir ómerktir vasar. Tveimur vösum er lokað með rennilás fyrir prjónamerkin, málbandið, nálar eða annað. Þetta er eitt vinsælasta prjónaveskið frá Dellu Q enda kemst ótrúlega mikið í það. Stærð: Lokað: 12,5 cm x 25,5 cm
Opið: 12,7 cm x 28 cm Linen línan - Ytra byrðið og vasarnir eru úr líni (hör) og innra byrðið (röndótta) úr bómullarefni. Til að loka veskinu er þykk snúruteygja sem smeygt er utan um stóra kókostölu. Teygjan tryggir að hægt er að loka veskinu þó að það sé troðfullt af prjónum! -
Höfundur: Ronja Hakalehto Útgefandi: Cozy Publishing (2023) Harðspjalda | 224 bls. Tungumál: EnskaÞyngd: 580 g | Mál: 247 x 175 x 22 mm
Lakeside Stitches, Gentle Knits from the North – Ronja Hakalehto
Falleg bók með sígildum en spennandi verkefnum eftir finnska prjónhönnuðinn Ronju Hakalehto. Peysan á bókarkápunni segir meira en nokkur orð. Myndatakan og verkefnin eru fyrir jafn þau kröfuhörðustu. -
Káputeikning: Tytti Laitakari Útgefandi: Cozy Publishing (2025) Harðspjalda | 160 bls. (auðar)Þyngd: 372 g | Mál: 15,5 x 21,5 mmDagbók með dásamlega fallegri kápumynd. Auðar síður sem bíða allra þinna fallegu hugmynda, verkefna og skipulags. Eða bana minnispunka... Enginn texti = Auðar síður. Á bókarkápu er setningin: LET'S DO WHAT WE LOVE AND DO A LOT OF IT.
-
Höfundur: Leeni Hoimela Ùtgefandi: Cozy Publishing (2022) Harðspjalda | 183 bls. Tungumál: EnskaÞyngd: 835 g | Mál: 215 x 265 mm
Urban knit Easy
Urban Knit Easy er sérstaklega falleg prjónabók með peysum og fylgihlutum eftir Leeni Hoimela frá Finnlandi. Þetta er önnur bókin sem við erum með frá henni. Leeni er einstaklega smekklega kona og stíllinn hennar afslappaður og höfðar til margra prjónara í dag. Uppskriftir eftir Leeni Hoimela haf áður birst í Laine Magazine og fleiri tímaritum. -
Káputeikning: Tytti Laitakari Útgefandi: Cozy Publishing (2025) Harðspjalda | 160 bls. (auðar)Þyngd: 372 g | Mál: 15,5 x 21,5 mmDagbók með dásamlega fallegri kápumynd. Auðar síður sem bíða allra þinna fallegu hugmynda, verkefna og skipulags. Eða bana minnispunka... Enginn texti = Auðar síður. Á bókarkápu er setningin: YOU ARE EXACTLY WHERE YOU NEED TO BE.
-
Káputeikning: Tytti Laitakari Útgefandi: Cozy Publishing (2025) Harðspjalda | 160 bls. (auðar)Þyngd: 372 g | Mál: 15,5 x 21,5 mmDagbók með dásamlega fallegri kápumynd. Auðar síður sem bíða allra þinna fallegu hugmynda, verkefna og skipulags. Eða bana minnispunka... Enginn texti = Auðar síður. Á bókarkápu er setningin: TRUST THE NEXT CHAPTER BECAUSE YOU'RE THE AUTHOR.
-
Káputeikning: Tytti Laitakari Útgefandi: Cozy Publishing (2025) Harðspjalda | 160 bls. (auðar)Þyngd: 372 g | Mál: 15,5 x 21,5 mmDagbók með dásamlega fallegri kápumynd. Auðar síður sem bíða allra þinna fallegu hugmynda, verkefna og skipulags. Eða bana minnispunka... Enginn texti = Auðar síður. Á bókarkápu er setningin: SAY YES TO NEW ADVENTURES.
-
Höfundur: Veronika Lindberg, Kutovakika Útgefandi: Cozy Publishing (2022) Harðspjalda | 189 bls. Tungumál: EnskaÞyngd: 650 g | Mál: 170 x 225 mmKnit This! 21 dásamlega fallegar uppskriftir til að nota hversdagsBókin inniheldur 21 prjónauppskrift, m.a. hina vinsælu Dirty Caramel Sweater og margr fleiri sem hafa slegið í gegn. Stíllinn er nútímalegur, kvenlegur og elegant. Peysurnar eru hannaðar með notandann í huga, eru þægilegar og munu endast lengi. Það eru einnig góðar ábendingar í bókinni um prjóntækni og góð ráð um garnval.
-
Höfundur: Leeni Hoimela Ùtgefandi: Cozy Publishing (2024) Harðspjalda | 199 bls. Tungumál: EnskaÞyngd: 820 g | Mál: 215 x 265 mm
Urban knit : Modern Nordic Patterns
Urban Knit Classics er eftir hina hæfileikaríku Leeni Hoimela frá Finnlandi. Þetta er þriðja bókin sem við erum með frá henni. Stíllinn höfðar til marga nútímaprjónara, norrænn og klassískur. Peysur og fylgihlutir prjónaðir úr gæðagarni sem eiga að standast tímans tönn, halda notagildi sínu í mörg ár. Allt í takt við nýja tíma þegar við vöndum okkur við fatavalið og eigum þau lengi. Uppskriftir eftir Leeni Hoimela haf áður birst í Laine Magazine og fleiri tímaritum. -
Höfundur: Annika Konttaniemi Útgefandi: Cozy Publishing (2023) Harðspjalda | 232 bls. Tungumál: EnskaÞyngd: 750 g | Mál: 170 x 241 mm
Arctic Knitting, The Magic of Nature and Colourwork
Falleg bók með klassískum verkefnum eftir finnska prjónhönnuðinn Annika Konttaniemi. Eins og heiti bókarinnar gefur til kynna þá eru norðurslóðir þemað. Ótrúlega falleg og inspíraerandi myndir í bókinni. -
Fyrir þau sem vilja vera á sérstökum lista til að fylgjast með þegar útsaumsnámskeið með Adriana Torres (Miga de Pan) fer í sölu.
Skráið ykkur á listann með því að smella á hnappinn fyrir neðan. Engin skuldbinding, bara beiðni um að fá nánari upplýsingar.
Það verða tvö ólík námskeið í boði helgina 23.-24. ágúst. Annað kl. 9:30 til 12:15 lau. og sun. og hitt kl. 13:30-16:15 sömu daga.
Setjið inn fullt nafn, netfang og símanúmer.
Kennsla fer fram í Storkinum.
-
LAINE TUTTUGU OG FIMM LAINE magazine #25 Finnskt tímarit (á ensku) með prjónhönnun á heimsmælikvarða. Margir hönnuðir leggja hönd á plóg og tryggja úrval að áhugaverðum peysum og fylgihlutum. Mikil áhersla er lögð á greinagóðar uppskriftir. Þá fyglir ein mataruppskrift að auki. Stílhreint tímarit á ensku með fallegri myndatöku. Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að LAINE tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að LAINE kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur. Skoða fleiri LAINE tímarit HÉR
-
LAINE NORDIC KNITS Finnskt tímarit (á ensku) með prjónhönnun á heimsmælikvarða. Margir hönnuðir leggja hönd á plóg og tryggja úrval að áhugaverðum peysum og fylgihlutum. Mikil áhersla er lögð á greinagóðar uppskriftir. Þá fyglir ein mataruppskrift að auki. Stílhreint tímarit á ensku með fallegri myndatöku. Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að LAINE tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að LAINE kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur.
-
Vinsældir ADDI Novel hringprjónanna aukast stöðugt. Þeir eru hrufóttir með góðum oddi, úr málmi og lykkjurnar renna ekki eins vel á þeim sem gerir þá mjög hentuga fyrir þau sem vilja prjóna þéttar/fastar. Prjónaoddarnir eru léttir úr kopar, húðaðir með hvítu bronsi. Snúrurnar eru mjúkar og samskeyti snúru og prjóns slétt. ADDI prjónarnir eu hannaðir og framleiddir í Þýskalandi fyrir prjónara sem vilja aðeins bestu gæði. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds.
-
- Grófleiki: Þykkband / Aran / Worsted
- Innihald: 60% móhár, 40% ull
- Lengd/þyngd: 50 g/125 m
- Prjónar: 5 mm
- Prjónfesta: 16 lykkjur og 22 umferðir = 10 x 10 cm
- Þvottur: Handþvottur við 30°C