7.995kr.

Della Q hringprjónabuddan er með 9 hólfum og hvert þeirra rúmar nokkra hringprjóna. Hentugt til koma skipulagi á hringprjónana eða til að taka með í ferðalagið.

Stærð:

Lokað: 12,7 cm x 20,3 cm
Fullt: 4,5 cm á dýpt

Linen línan – Ytra byrðið og vasarnir eru úr líni (hör) og innra byrðið (röndótta) úr bómullarefni. Til að loka veskinu er hnesla úr þykkri snúruteygju sem smeygt er utan um stóra kókostölu. Teygjan tryggir að hægt er að loka veskinu þó að það sé troðfullt af prjónum!

DELLA Q er bandarískt merki en vörurnar frá þeim eru framleiddar í Vietnam í fyrirtæki sem var stofnað til að styðja við konur og fjölskyldur þeirra. Í dag, eftir áralangt samstarf, er fyrirtækið enn starfandi með þar sem 6 konur sem eru allar fyrirvinnur sjá um framleiðsluna. Hjá Dellu Q fara saman gæði, góð hönnun, notagildi og samfélagsleg ábyrgð. Storkurinn hefur selt vörur frá Dellu Q í meira en áratug og mælum heilshugar með þeirra vörum.