Stundum er garnið sem gefið er upp í uppskrift ekki lengur framleitt eða það fæst ekki á landinu. Þá er hægt að skoða hvort annað garn geti ekki komið í staðinn. Í þessu samhengi er rétt að hafa í huga að garn hefur mismunandi eiginleika, áferð og þyngd sem hefur áhrif á útkomuna. Mismunandi vefjarefni hafa eðlilega mismunandi eiginleika eins og t.d. ull, bómull eða silki. En það geta líka verið mismunandi eiginleikar á garni úr samskonar ull eftir því hvernig það er spunnið.

Þegar skipta á um garntegund er tvennt sem skiptir mestu máli.

1) Kanna metrafjöldann í garninu sem gefið er upp í uppskriftinni til að vita hve mikið garn þarf í flíkina. Garn er misþungt í sér og því eru metraupplýsingarnar mikilvægari en þyngdin. Þá þarf að sjá hvort miðað er við 50g eða 100g svo samanburðurinn verði réttur.

2) Heppilegast er að bera saman uppgefna prjónfestu frekar en prjónastærð. Prjónfestan í uppskriftinni segir til um grófleikann á garninu. Prjónastærðir geta farið upp og niður eftir því hve þétt eða laust ætlunin er að prjóna.

Starfsfólk Storksins getur aðstoðað ykkur við val á réttu garni. Munið þó að þetta eru ekki nákvæm vísindi. Við getum reiknað út hve mikið garn fer í peysu í ákveðinni stærð, en ef peysan en prjónuð lausar en uppskriftin gerir ráð fyrir fer meira garn í hana (og hún verður stærri) og ef peysan er prjónuð þéttar fer minna garn í hana (hún verður minni). Við mælum alltaf með því að gera prjónfestuprufu áður en hafist er handa við peysuprjónið. Það sparar tíma og fyrirbyggir að peysa veri og lítil eða of stór. Sjá nánar umfjöllun um prjónfestu í öðrum pistli.