• Afsláttur!

    Einrúm – LAMB 2

    Original price was: 4.995kr..Current price is: 3.497kr..
    • Grófleiki: Fínband / fingering / 4ply
    • Innihald: 88% merínó lambsull, 11% mórberjasilki
    • Lengd/þyngd: 533m/100g
    • Prjónar: 2 - 3,5 mm
    • Prjónfesta: 24 - 28 L = 10 cm
    • Þvottur: Handþvottur 30°C
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
    • Grófleiki: Fínband / fingering  / 4 ply
    • Innihald: 80% merínóull, 20% nælon
    • Lengd/þyngd: 365m/100g
    • Prjónar: 2,25 – 3,25 mm
    • Prjónfesta: 21 – 32 L á prjóna 2,25 – 3,25 mm = 10 cm
    • Þvottur: Handþvottur í ylvolgu eða köldu vatni
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Vaxborinn bómullartvinni fyrir handstungu í bútasaumi eða annars konar textílvinnu. Einnig góður í handsaumaðar bækur. 200m í kefli.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Nálahús með 3 jafanálum. Nálarnar eru nr. 13, 17 og 20. Nálahúsið er með áskrúfuðu loki. Fleiri nálahús með nálum fáanleg:
    • Jumbo jafanálasett (# 340)
    • Jafanálasett með borgnum oddum (# 3121)
    • Jafanálasett með fínum nálum (# 3168)
  • Frábærar merkikrækjur, enda ein af okkar allra vinsælustu vörum. Þær eru úr efni sem endist vel (brotna ekki). Krækjurnar eru mest notaðar til að merkja umferðir, t.d. úrtökur eða útaukningar. Það eru tvær stærðir fáanlegar. Þessar eru stærri. Innihald: 12 merkikræjur í tveimur litum, plastumslag til að geyma þær í fylgir. Athugið að það er betra að hafa krækjurnar lokaðar þegar þær eru ekki í notkun.
  • Höfundur: Katrina Rodabaugh Útgefandi: Abrams (2018)
    Harðspjalda | 224 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 920 g | Mál: ‎186 x 236 x 22 mm

    Mending Matters: Stitch, Patch, and Repair Your Favorite Denim & More

    Mending Matters er bók fyrir þá sem vilja læra aðferðir við að gera við fatnað og fá hugmyndir að skemmtilegum útfærslum. Aðferðirnar skila nútímalegum og áberandi viðgerðum (engin ástæða til að þær sjáist ekki) með hefðbundnum sporum. Í grunninn eru aðferðirnar einfaldar en útfærslurnar geta verið margar.
    Í dag eru fataviðgerðir ekki aðeins skynsamlegar til að lengja líf fatnaðar, heldur nauðsynlegar fyrir umhverfið. Höfundurinn Katrina Rodabaugh fer í gegnum alls konar hugmyndafræði sem tengist fataviðgerðum í þessari bók, auk þess að undirstrika mikilvægi handavinnu.
  • Höfundur: Louise Crowther Útgefandi: David & Charles (2019)
    Mjúkspjalda | 128 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 522 g | Mál: ‎210 x 273 x 12,7 mm

    Lærðu að prjóna þessi sætu dýr sem verða sjálfsagt uppáhalds leikföng barnanna. Höfundurinn Louise Crowther gerði áður bókina My Knitted Doll. Hún hefur sinn sérstaka stíl og hvert dýr fær sinn fatnað að auki. Það eru samtals 13 prjónuð dýr í bókinni, hvert þeirra með sín einkenni og sinn fatastíl. Öll dýrin hafa í grunninn sömu stærð af búk og því er hægt að nota fötin á fleiri en eitt dýr. Veldu þitt uppáhaldsdýr og klæðnað á þær. Fullkomin gjöf fyrir vini og vandamenn.

    Hér getið þið skoðað myndir úr bókinni: Knitted Animal Friends
  • Fatakrít í duftformi. Hægt að kaupa áfyllingar í 5 litum. Fatakrít með lausu dufti er frábært áhald til að merkja efni. Í stað þess að draga blýant eða penna eftir efninu, er hjóli á enda krítarhylkisins rúllað til að merkja línu. Hjólið er með örlitlum götum sem hleypa krítinni út um leið og þrýst er á það. Það myndast lína með þéttum, smáum punktum. Krítin þvæst auðveldlega úr. Hægt að velja um mismunandi liti eftir lit efnisins sem vinna á með.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Hringur sem er teljari. Telur upp í 99. Mismunandi stærðir í boði. Flestir hafa hringinn/teljarann á vísifingri eða þumli. Stærðir 7, 8, 9, 10, 11 og 12.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Handunnin garn- eða hnotuvinda úr tré sem getur undið allt að 450 g af garni í fínbands (4ply/fingering) grófleika. Garnvindan er alveg hljóðlaus og hún er hönnuð þannig að snertifletir eru fáir og því er gengur vindingin ljúft og snuðrulaust fyrir sig. Gúmmítappar eru á botninum svo vindan renni ekki til eða rispi borð. Borðfesting fylgir. Fyrirhafnarminna að vinda garn í hnotu í þessari vindu því hver hringur sem snúið er eins og þrír á minni garnvindum. Hægt að kaupa auka gúmmíreim ef á þarf að halda.
  • SAMPRJÓN - ATH. BREYTTUR TÍMI!

    Miðvikudagar 3 skipti
    27. maí, 3. og 10. júní
    kl. 17:30 - 19:30 Skoða úfærslur frá öðrum sem hafa prjónað peysuna Innifalið Aðstoð við að velja rétt garn, finna út rétta stærð, hefja prjónaskapinn og læra þá prjóntækni sem þarf. 15% afsláttur af garni í peysuna. Kaffi/te og meðlæti
    Um samprjónið frá Altheu: Nú er komið að því, ég er að fara að gifta mig! Í tilefni að því ætla ég að prjóna mér sparilega brúðarpeysu og langar að bjóða ykkur í samprjón. Peysan er prjónuð ofan frá og niður, bolurinn er prjónaður í sléttprjóni, fram og til baka með útaukningum. Ermarnar eru svo prjónaðar í hring með fallegu mynstri. Svo er heklaður fallegur kantur í kringum V-hálsmálið. Hægt er að klæðast peysunni með V-hálsmálið að framan eða að aftan. Samprjónið hentar frekar vönum prjónurum sem langar í spari- eða brúðarpeysu. Uppskriftin er á ensku, þýsku eða frönsku.  Það er notað tvöfalt silki/mohair garn í peysuna, en auðvitað hægt að skoða aðra möguleika.
    Umsjón með samprjóninu hefur Althea Wetter frá Storkinum. Hún er verður búin að rýna uppskriftina og aðstoðar þau sem þurfa hjálp til að komast í gang. Þær sem skrá sig á samprjónið fá 15% afslátt af garni í peysuna. Til að taka þátt þarf að greiða 2.500 kr. skráningargjald sem greiðist við skráningu. Einnig þarf að kaupa garnið í peysuna í Storkinum tímalega fyrir samprjónið og skrá sig hér neðst á síðunni með því að velja vöruna og gefa upp nafn, netfang og símanúmer. Skráningargjald er bindandi og fæst ekki endurgreitt nema ef samprjónið fellur niður.
    Nánar um uppskriftina á Ravelry HÉR:
  • Ást í hverri lykkju Merkimiðar úr vaskaskinni. Áferðin á vaskaskinni minnir á rúskinn, en er mýkra. Það heldur mýktinni, þolir þvott og lætur ekki lit. Áletrunin er hitaprentuð og endist því vel. Það eru göt á hverju horni svo auðvelt sé að festa merkið við flíkina. Stærð 1,2 x 5 cm
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Mappa fyrir prjóna & fylgihluti

    Carita er falleg leðurmappa frá Muud sem mun halda vel utan um alla prjóna og fylgihluti. Mappan er vönduð úr hágæðaleðri og nauðsynleg fyrir  öll sem vilja hafa gott skipulag á prjónunum sínum. Það eru margir mismunandi vasar og hólf fyrir prjónaáhöldin, málbandið, skærin, nálarnar, prjónamerkin o.fl. Það er hægt að fá mismunandi aukasíður í Carita möppuna. Upplýsingar Gæðaleður sem endist aldur og ævi Lokað með smellum Vasar fyrir prjóna og heklunálar Vasar sem lokast með smellum Litlir vasar fyrir nálar Þægilegir vasar Stærð Hæð: 22 cm Breidd: 6 cm Lengd: 15 cm Þyngd: 217 g Litur: Viskí brúnt
    • Sett með 14 heklunálum
    • Stærðir: 2 mm, 2,5 mm, 3 mm, 3,5 mm, 4 mm, 4,5 mm, 5 mm, 5,5 mm, 6 mm, 7 mm, 8 mm, 9 mm, 10 mm & 12 mm
    • Veskið er með sægrænni kápu úr taui
  • Höfundur: Saeko Endo Útgefandi: David & Charles (2025)
    Mjúkspjalda | 112 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 460 g | Mál: 210 x 273 mm 200 krosssaumsmynstur frá Japan. Uppspretta hugmyndanna kemur frá kímónóum, blómum og hefðbundinn japanskri hönnun. Hvert mynsur er í mynsturteikningu í litum, og mörg mynstranna er hægt að laga að mismunandi stærðum. Njótið þess að sauma út mynstur sem eru síendurtekin, þannig næst hugarró og um leið getið þið skapað fallega hluti fyrir heimilið og til gjafa.
  • Box fyrir árórugarn. Hólfin eru hönnuð fyrir sérstök spjöld sem útsaumsgarnið er valfið utan um. Það fylgja 50 spjöld úr þykkum pappa með boxinu. Einnig fylgir lítil vinda úr plasti til að flýta fyrir þegar garnið er undið á spjöldin. Þessi box eru ómissandi fyrir þau sem sauma út með árórugarni. Hægt er að hafa góða yfirsýn yfir litina og garnið helst í röð og reglu og flækist ekki.
  • Jafnþráða jafi úr hör/líni. Selt í pakkningu með 46 x 46 cm. Grófleiki 13 þræðir/1 cm. Nokkrir litir í boði.  
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Hefðbundin útsaumskæri, lítil og handhæg.  Þau eru ekki bara falleg heldur góð fyrir útsauminn eða til að klippa spotta. Stærð: 9 cm.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • ADDI hringprjónar úr málmi. Prjónaoddarnir eru léttir úr kopar, húðaðir með hvítu bronsi. Snúrurnar eru mjúkar og samskeyti snúru og prjóns slétt. ADDI prjónarnir eu hannaðir og framleiddir í Þýskalandi fyrir prjónara sem vilja aðeins bestu gæði. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. Addi Sockwonder eru frábærir fyrir sokka, ermar, vettlinga og allt smávaxið prjónaverk. Með 70 mm lace odd og 45 mm venjulegum oddi verður mun auðveldara að prjóna fíngerðar og smágerðar flíkur.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
    • Grófleiki:  Grófband / Aran
    • Innihald:  86% ull, 20% pólýamíd, 4% viskós
    • Lengd/þyngd:  100 g/200 m
    • Prjónar:  4 - 5 mm
    • Prjónfesta:  18 lykkjur og 26 umferðir = 10 x 10 cm
    • Þvottur:  Ullarþvottakerfi við 40°C
     
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Storkskonur eru duglegar að gera uppskriftir endrum og sinnum. Flestar eru klassískar og hægt að prjóna á margar kynslóðir barna. Litavalið sér hvert og eitt ykkar um eftir eigin smekk og e.t.v. tíðaranda.
    GRÁMANN Hönnuður/uppskrift: Storkurinn / Guðræun Hannele Garn: Hamelton Tweed 1  4 (4) 5 (5) x 50 g í lit G (á mynd grænblátt #04) og  1 x 50 g í lit M (dökkgrátt #16) Stærðir: 1 ( 2) 4 (6) 8 ára Sjá prjóna og prjónfestu hér fyrir neðan.
    Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku. Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður.
    • Sokkar í kvenstærð fyrir NORO Silk Garden Sock  garnið sem fæst bæði einlitt og kaflalitað.
    • Þessir sokkar eru prjónaðir frá sokklegg að tá.
    • Það þarf eina 100 g hnotu af NORO Silk Garden Sock garninu í sokkapar. Ef notað er kaflalitað garn og sokkarnir eiga að vera eins þarf 200 g (þá er afgangur í annað sokkapar).
    • Prjónastærð er 2,75 mm eða sú stærð sem þarf til að ná réttri prjónfestu.
    UPPSKRIFTIN ER Á ÍSLENSKU ATH. Ef þið kaupið NORO Silk Garden Sock garn í sokkana fylgir uppskriftin með FRÍTT. Veljið garnið, setjið í körfu og setjið í skilaboðagluggann hvaða uppskrift þið veljið með (fimm mismunandi í boði). Uppskriftin verður send í tölvupósti um leið og varan er afgreidd. NORO Sokkauppskrift: FLOTLYKKJUR (prjónaðir frá sokklegg) NORO Sokkauppskrift: HLYNUR (prjónaðir frá tá) NORO Sokkauppskrift: LAUF (prjónaðir frá sokklegg) NORO Sokkauppskrift: SNÚRA (prjónaðir frá sokklegg) NORO Sokkauppskrift: STUÐLAR & GÖT (prjónaðir frá sokklegg)  
  • Sjálflímandi fatabót með endurskini sem henta á útivistarfatnað, regnfatnað, hlífðarfatnað o.þ.h. Stærð 10 x 20 cm. Hægt að klippa til í þá stærð sem þarf.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
Go to Top