Mjúkspjalda | 96 bls.
Tungumál: Enska
Þyngd: 340 g | Mál: 191 x 210 mm
Fíflar og fjólur, sveppir og haustlauf, náttúran er kveikja höfundar að fallegum, fíngerðum útsaumsmyndum. Teikningarnar eru fallegar og bjóða upp á enn fallegri útsaum. Bókin er ríkulega myndskreyttm með góður leiðbeiningum og vinnulýsingum. Frábær fyrir alla sem hafa áhuga á frjálsum útsaumi.
Kazuko Aoki er vinsæll útsaumari í Japan. Hún notar náttúruna til að inspírara sig, bæði garðinn heima og jurtir sem verða á vegi hennar á gönguferðum. Eftir listaskólanám í Japan stundaði hún nám í textíl í Svíþjóð. Hún er höfundur margra útsaumsbóka.
-
Höfundur: Katrina Rodabaugh Útgefandi: Abrams (2018)Harðspjalda | 224 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 920 g | Mál: 186 x 236 x 22 mmMending Matters: Stitch, Patch, and Repair Your Favorite Denim & More
Mending Matters er bók fyrir þá sem vilja læra aðferðir við að gera við fatnað og fá hugmyndir að skemmtilegum útfærslum. Aðferðirnar skila nútímalegum og áberandi viðgerðum (engin ástæða til að þær sjáist ekki) með hefðbundnum sporum. Í grunninn eru aðferðirnar einfaldar en útfærslurnar geta verið margar.Í dag eru fataviðgerðir ekki aðeins skynsamlegar til að lengja líf fatnaðar, heldur nauðsynlegar fyrir umhverfið. Höfundurinn Katrina Rodabaugh fer í gegnum alls konar hugmyndafræði sem tengist fataviðgerðum í þessari bók, auk þess að undirstrika mikilvægi handavinnu. -
Höfundur: Kazuko Aoki Útgefandi: Shambhala Publications Inc (2015)Mjúkspjalda | 96 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 340 g | Mál: 211 x 258 x 6 mmThe Embroidered Garden : Stitching through the Seasons of a Flower Garden
Dásamlega falleg útsaumsbók eftir japanska höfundinn Kazuko Aoki. Það sést að áhugasviðið nær yfir garðyrkju jafnt sem útsaum. Kazuko Aoki yfirfærir fegurðina úr garðinum yfir í útsauminn á einstakan hátt. Fjörtíu mynstur endurspegla blómagarðinn og líka býflugurnar og fiðrildin. Teikningarnar sýna verkefnin vel og fyrir þá sem þurfa þá er aðferðirnar líka útskýrðar vel. Útsauminn er svo hægt að útfæra í barmnælur, bókakápur, nálapúða og poka. -
Káputeikning: Tytti Laitakari Útgefandi: Cozy Publishing (2025) Harðspjalda | 160 bls. (auðar)Þyngd: 372 g | Mál: 15,5 x 21,5 mmDagbók með dásamlega fallegri kápumynd. Auðar síður sem bíða allra þinna fallegu hugmynda, verkefna og skipulags. Eða bana minnispunka... Enginn texti = Auðar síður. Á bókarkápu er setningin: LET'S DO WHAT WE LOVE AND DO A LOT OF IT. -
Káputeikning: Tytti Laitakari Útgefandi: Cozy Publishing (2025) Harðspjalda | 160 bls. (auðar)Þyngd: 372 g | Mál: 15,5 x 21,5 mmDagbók með dásamlega fallegri kápumynd. Auðar síður sem bíða allra þinna fallegu hugmynda, verkefna og skipulags. Eða bana minnispunka... Enginn texti = Auðar síður. Á bókarkápu er setningin: SAY YES TO NEW ADVENTURES. -
Útgefandi: Laine (2026)Mjúkspjalda | bls. 148 Tungumál: Enska Þyngd: 500 g | Mál: 214 x 275 mmSkoða myndir af flíkunum hér -
LAINE TUTTUGU OG NÍU Finnskt tímarit (á ensku) með prjónhönnun á heimsmælikvarða. Margir hönnuðir leggja hönd á plóg og tryggja úrval að áhugaverðum peysum og fylgihlutum. Mikil áhersla er lögð á greinagóðar uppskriftir. Stílhreint tímarit á ensku með fallegri myndatöku. Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að LAINE tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að LAINE kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur. -
LAINE TUTTUGU OG ÁTTA Finnskt tímarit (á ensku) með prjónhönnun á heimsmælikvarða. Margir hönnuðir leggja hönd á plóg og tryggja úrval að áhugaverðum peysum og fylgihlutum. Mikil áhersla er lögð á greinagóðar uppskriftir. Stílhreint tímarit á ensku með fallegri myndatöku. Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að LAINE tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að LAINE kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur. -
Höfundur: ROWAN Útgefandi: Rowan (2025)Mjúkspjalda | 161 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 850 g | Mál: 240 x 310 mm ROWAN tímaritin koma út tvisvar á ári, vor- og sumarblað og haust- og vetrarblað. Hver tímarit er fullt af uppskriftum fyrir dömur og herra, peysur og fylgihlutir eftir helstu hönnuði Rowan hvers tíma. Flestar uppskriftirnar eru fyrir prjón en það eru einnig hekluppskriftir inn á milli. Í nýjustu blöðunum hefur peysum sem eru prjónaðar í hring og jafnvel ofan frá fjölgað. Storkurinn er ein af fáum garnbúðum sem hafa selt Rowan garn og tímarit frá upphafi Rowan. Við eigum því sýnishorn af öllum útgefnum blöðum og mörg þeirra eru enn í sölu. -
Höfundur: Anna JohannaÚtgefandi: Quadrille Publishing (2022)Mjúkspjalda | 176 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 760 g | Mál: 215 x 270 x 21 mmStrands of Joy inniheldur 20 fjölbreyttar uppskriftir, þ.á.m. heilar og opnar peysur og flottan kjól, húfu og krakkapeysu. Allar uppskriftirnar gera ráð fyrir að prjónað sé ofan frá og í hring. Fitjaðu upp á tvíbandaprjónaðri flík, láttu hugann finna ró á meðan þú tekst á við verkefni sem þarfnast meiri einbeitingar. Anna Johanna er prjónhönnuður frá Muurame í mið Finnlandi. Hún er þekkt fyrir rómantískar flíkur og leggur áherslu á smáatriðin, áferð og liti. Hún er tölfræðingur en hefur frá 2020 eingöngu unnið við prjónhönnun. Strands of Joy (á finnsku Onnensäikeitä) er fyrsta bókin hennar. Innihald: 20 prjónaverkefni með tvíbandaprjóni (10 peysur, 7 jakkapeysur, 1 kjóll, 1 húfa, 1 krakkapeysa). Uppskriftirnar fyrir fullorðins peysur koma í 9 - 12 stærðum. ATH. Þessi bók kom upprunalega út hjá LAINE sem harðspjaldabók en er hér í mjúkspjaldaútgáfu frá bresku forlagi. -
Afsláttur!
SILFA armband eða framlenging á hálsmenið. Passar við fjölnota hálsfestina - skart og prjónamál. Á armbandinu er hægt að mæla fínustu og grófustu prjónana; 1,5 mm, 1,75 mm og 12 mm. Armbandið er 21 cm á lengd og fæst með 18 karata gyllingu eða úr hápóleruðu læknastáli. Festin er einnig prjónamál sem mælir 2 – 10mm prjóna, hver hringur er merktur. Eitt lykkjumerki (8mm) með ferskvatnsperlu (10mm) fylgir. 95 cm lengd, hægt að fá framlengingu (sem er líka armband) ef þið viljið lengja festina. Hægt að kaupa aukalega: Lykkjumerki með perlum og lykkjuhring. -
Afsláttur!
Höfundur: Kaffe FassettÚtgefandi: Taunton Press Inc (2007)Mjúkspjalda | 144 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 753 g | Mál: 218 x 277 x 18 mmKaffe Fassett's Quilts in the Sun: 20 Designs from Rowan for Patchwork and Quilting
Tuttugu frábær bútateppi eftir hinn eina sanna Kaffe Fassett, meistara litanna. Hvert teppið er öðru fallegra í einstakri litasamsetningu Kaffe Fassetts. Myndirnar eru teknar á sólríkri strönd Portúgal, sem var kveikjan að hönnuninni. Nákvæmar leiðbeiningar fylgja, teikningar og snið. Kaffe Fassett leggur áherslu á einföld mynstur svo fallegu efnin frá honum njóti sín sem best. -
Afsláttur!
Höfundur: Bergrós KjartansdóttirÚtgefandi: Bókabeitan (2022) Harðspjalda | 73 bls. Tungumál: Íslenska Þyngd: 410 gSjalaseiður er óður til íslensku ullarinnar, íslenskrar náttúru og norrænu goðafræðinnar. Öll sjölin í bókinni eru prjónuð úr íslenskri ull en jafnframt sýnd í annarri útgáfu hvað band og liti snertir. Segja má að hvert sjal sé eins og ljóð sem segir gamla sögu og nýja ásamt því að hlýja eigandanum, vernda hann og gleðja skynfæri hans. Íslensk náttúra nýtur sín í allri sinni dýrð á ljósmyndum bókarinnar en vefur sig einnig gegnum uppskriftirnar og endurspeglast þannig í sjölunum. -
Afsláttur!
Höfundur: Kaffe FassettÚtgefandi: Taunton Press Inc (2020)Mjúkspjalda | 144 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 680 g | 220 x 280 x 15,24 mmKaffe Fassett's Quilts in Burano : Designs inspired by a Venetian island
Kaffe Fassett notar hér litríka eyju í Feneyjum; Burano sem bakgrunn fyrir þessa bók. Hér eru 19 bútateppi í anda Kaffe Fassett, hins vinsæla hönnuðar. Litrík húsin á eyjunni voru inspírasjónin Kaffe Fassett's Quilts in Burano eru góðar leiðbeiningar með texta, teikningum, myndum og sniðum. Hann notar eingöngu sín eigin efni í teppin, en þar er úrvalið svo mikið að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. HÖFUNDUR: Kaffe Fassett er fæddur í San Francisco en hefur búið í Bretlandi flest sín fullorðinsár. Allir bútasaumarar þekkjahann og líka áhugafólk um prjón og útsaum eða almennt um textílhönnun, því hann er fremstur á meðal jafningja á öllum þessu sviðum. Hann hefur verið beðinn um að hanna fyrir bresku konungsfjölskylduna, ameríska fatahönnuði, the Royal Shakespeare Company svo fátt eitt sé nefnt. Fjöldinn allur af bókum hefur komið út eftir hann, flestar um bútasaum en einnig prjón og útsaum. -
Afsláttur!
Höfundur: Kaffe FassettÚtgefandi: Taunton Press Inc (2019)Mjúkspjalda | 152 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 723 g | Mál: 220 x 280 x 12,7 mmKaffe Fassett's Quilts in the Cotswolds
Þetta er 21. bútasaumsbók Kaffe Fassetts, en hann hefur verið einn vinsælasti höfundur bóka um bútasaum um árabil. Í þessari bók notar hann nýjustu efnin sem voru til útgáfuárið og velur að útfæra teppin í medallion mynstrum (mynstur sem hverfast um miðju teppisins). Myndirnar eru teknar í Hidcote Manor Garden í hinni fallegu Cotswolds sveit. Teppin njóta sín vel þar innan um allan gróðurinn, en Hidcote er einn af mest heimsóttu görðum í Bretlandi. Medallion bútateppi henta vel fyrir efnin hans Kaffe Fassetts, því uppbyggingin er einföld og höfða til margra. Björtu litirnir í efnunum hans njóta sín vel. Bókin inniheldur 19 teppi. Það fylgja góðar útskýringar, líka fyrir þá sem hafa ekki mikla reynslu í bútasaumi, teikningar og snið.