-
Höfundur: Gréta Sörensen Útgefandi: Forlagið (2021) Mjúkspjalda | 271 bls. Tungumál: Íslenska Þyngd: 960 g Prjónabiblían er einstök íslensk uppflettibók um prjóntækni og jafnframt hugmyndavaki fyrir munsturgerð og prjónahönnun, bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Í fyrri hluta bókarinnar er farið ítarlega yfir öll grunnatriði í prjóni, meðal annars mismunandi aðferðir við að fitja upp, auka út, fella af og ganga frá. Tækni og handbragði við hvers konar prjónaskap, einfaldan og flókinn, er vandlega lýst, hugtök eru útskýrð, kennt að lesa uppskriftir og fjallað um ótal önnur atriði sem gagnlegt er að kunna skil á. Einnig er rætt um garntegundir og ólíka eiginleika þeirra.Í síðari hlutanum eru eitt hundrað útprjónsmunstur sem ættu að geta orðið öllu prjónaáhugafólki óþrjótandi brunnur hugmynda til að hanna og skapa eigin útfærslur. Fjölmargar skýringarmyndir og ljósmyndir prýða bókina og eiga ríkan þátt í að gera hana að ómissandi grundvallarbók fyrir alla sem hafa ánægju af að prjóna. Gréta Sörensen útskrifaðist úr textíldeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1983 og með MFA í textílhönnun frá Konstfack í Svíþjóð árið 1993, með áherslu á prjónahönnun. Hún hefur unnið við hönnun á hand- og vélprjóni og einnig við kennslu.
-
Þetta námskeið hefur verið sett á bið. Ef þú hefur áhuga á að fylgjast með þegar það fer í gang aftur sendu okkur þá línu á [email protected]. 3 skipti – Þriðjudagar kl. 18-20 Prjón fyrir byrjendur - English below Námskeiðið er fyrir alla sem eru byrjendur eða hafa smá reynslu eða vilja rifja upp grundvallaratriði. Garn er innifalið þið getið valið um mismunandi tegundir og liti. Althea Wetter fer í gengum ferlið að prjóna ennisband og frágang á því. Ef vel gengur þá verður hún með annað verkefni ef þarf. Námskeiðið er fyrir íslensku-, þýsku- og enskumælandi og kennir á þeim tungumálum ef þarf. Farið verður í:
- Val á garni og prjónum
- Uppfitjun
- Slétt prjón
- Brugðið prjón
- Affelling
- Frágangur
- To choose yarn and needles
- To cast on
- To knit (continental style)
- To purl (continental style)
- To cast/bind off
- To weave in ends
-
Höfundur: Andie Solar Útgefandi: C&T Publishing (2020)Mjúkspjalda | 112 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 410 g | Mál: 203 x 254 mm Punch Needle bókin dregur nafn sitt af áhaldinu sem notað er við þessa tegund af útsaumi. Grófri nál, sem er hol að innan, og með skafti er þrýst í gegnum vel strekkt efni, hæfilega gisið svo nálið komist í gegnum efnið, en nógu þétt ofið svo það haldi vel við garnið. Þráðurinn liggur í gegnum holu nálina og hægt er að mynda lykkjur með garninu eða klippa þær upp og mynda flos. Höfundurinn Andie Solar sýnir með vinnulýsingum aðferðina og 13 litrík og vel útfærð verkefni á mismunandi erfiðleikastigum. Perfect for absolute beginners and the projects are kid-friendly. Hér er sýnishorn af innihaldi bókarinnar: Search Press
-
POMPOM #48 Árstímabundin tímarit frá Bretlandi, uppfull af áhugaverðri prjónhönnun. Ritstjórarnir velja til samstarfs mismunandi hönnuði hverju sinni og reyna að hafa gott úrval af peysum og fylgihlutum. Vel gerðar uppskriftir, klassískar í bland við nýstárlegar. Eitthvað fyrir alla! ATH. Þetta er síðasta tölublað Pompom.
-
POMPOM #47 - vetur 2023. Árstímabundin tímarit frá Bretlandi, uppfull af áhugaverðri prjónhönnun. Ritstjórarnir velja til samstarfs mismunandi hönnuði hverju sinni og reyna að hafa gott úrval af peysum og fylgihlutum. Vel gerðar uppskriftir, klassískar í bland við nýstárlegar. Eitthvað fyrir alla! Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að POMPOM tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að POMPOM kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur. ATH. Nýjustu fréttir eru að þetta verður næstsíðasta tölublað Pompom. Síðasta kemur út í janúar 2024.
-
POMPOM #46 - haust 2023. Árstímabundin tímarit frá Bretlandi, uppfull af áhugaverðri prjónhönnun. Ritstjórarnir velja til samstarfs mismunandi hönnuði hverju sinni og reyna að hafa gott úrval af peysum og fylgihlutum. Vel gerðar uppskriftir, klassískar í bland við nýstárlegar. Eitthvað fyrir alla! Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að POMPOM tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að POMPOM kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur.
-
POMPOM #45 - sumar 2023. Árstímabundin tímarit frá Bretlandi, uppfull af áhugaverðri prjón- og heklhönnun. Ritstjórarnir velja til samstarfs mismunandi hönnuði hverju sinni og reyna að hafa gott úrval af peysum og fylgihlutum. Vel gerðar uppskriftir, klassískar í bland við nýstárlegar. Eitthvað fyrir alla! Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að POMPOM tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að POMPOM kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur.