• Spöng fyrir töskur eins og til dæmis Teddy Clutch frá Petiteknit. Stærð: lengd: 20cm, breidd 18 cm opin, 9 cm lokuð.
    • Sett með 14 heklunálum
    • Stærðir: 2 mm, 2,5 mm, 3 mm, 3,5 mm, 4 mm, 4,5 mm, 5 mm, 5,5 mm, 6 mm, 7 mm, 8 mm, 9 mm, 10 mm & 12 mm
    • Veskið er með sægrænni kápu úr taui
  • Höfundur: Saeko Endo Útgefandi: David & Charles (2025)
    Mjúkspjalda | 112 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 460 g | Mál: 210 x 273 mm 200 krosssaumsmynstur frá Japan. Uppspretta hugmyndanna kemur frá kímónóum, blómum og hefðbundinn japanskri hönnun. Hvert mynsur er í mynsturteikningu í litum, og mörg mynstranna er hægt að laga að mismunandi stærðum. Njótið þess að sauma út mynstur sem eru síendurtekin, þannig næst hugarró og um leið getið þið skapað fallega hluti fyrir heimilið og til gjafa.
  • ADDI hringprjónar úr málmi. Prjónaoddarnir eru léttir úr kopar, húðaðir með hvítu bronsi. Snúrurnar eru mjúkar og samskeyti snúru og prjóns slétt. ADDI prjónarnir eu hannaðir og framleiddir í Þýskalandi fyrir prjónara sem vilja aðeins bestu gæði. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. Addi Sockwonder eru frábærir fyrir sokka, ermar, vettlinga og allt smávaxið prjónaverk. Með 70 mm lace odd og 45 mm venjulegum oddi verður mun auðveldara að prjóna fíngerðar og smágerðar flíkur.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • LAINE TUTTUGU OG ÞRJÚ Finnskt tímarit (á ensku) með prjónhönnun á heimsmælikvarða. Margir hönnuðir leggja hönd á plóg og tryggja úrval að áhugaverðum peysum og fylgihlutum. Mikil áhersla er lögð á greinagóðar uppskriftir. Þá fyglir ein mataruppskrift að auki. Stílhreint tímarit á ensku með fallegri myndatöku. Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að LAINE tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að LAINE kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur.
  • Olnbogabætur úr mjúku rúskinni svo peysurnar og/eða jakkarnir endist lengur. Til í nokkrum litum. Með gataröð meðfram brún til að auðvelda saumaskapinn. Koma tvær saman í pakkningu. Það er upplagt að nota Laine St. Pierre stoppugarnið til að festa bæturnar.  
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Þægilegur teljari sem telur uppi 99. Hann er með lykkju sem er ætluð til að setja utan um prjóninn. Þannig er hægt að nota teljarann sem merki fyrir byrjun umferðar um leið og fylgst er með umferða- eða lykkjufjölda. Ef það hentar ekki að hafa teljarann utan um prjóninn er hægt að festa hann við prjónverkið með lykkjukrækju. Hægt er að snúa teljaranum 360° á lykkjunni, þannig snýr hann alltaf rétt. Passar fyrir 2 mm - 10 mm hringprjóna og bandprjóna.
  • Ullarskafa til að hreinsa ló af ullarflíkum sem hnökra. Stundum hnökra peysur, sérstaklega ef þær eru prjónaðar úr mjúkri, snúðlinri ull. Oft eru þetta laus hár að ganga úr bandinu og peysan þannig að hreinsa sig. En stundum hnökra flíkur á álagssvæðum. Hver sem ástæðan er er gott að eiga áhald til að ná lónni af án þess að skemma peysuna eða þynna hana. Gleener er búið að margsanna notagildi sitt. Það fylgja þrír kambar með sem auðvelt er að skipta um, auk fatabursta. Fínn kambur fyrir fíngerðustu peysurnar, jafnvel úr silki eða silkiblöndu, miðlungs grófleiki sem hentar á flestar peysur og grófasti sem væri góður kambur fyrir lopapeysur eða sambærilegt garn. Gleener fæst til heimilisnota með góðu handfangi, en einnig í smærri útgáfu fyrir ferðalög. Þá er kamburinn jafnbreiður en án handfangs. Gleener er ekki bara fyrir peysur heldur einnig húsgögn, teppi og aðrar flíkur. Fataburstinn sem fylgir er upplagður til að ná dýrahárum og öðru lausu af. Engar rafhlöður. Gott fyrir umhverfið og hjálpar þér að láta flíkur og annan textíl endast lengur.  
  • ANCHOR árórugarn er 6 þráða útsaumsgarn úr 100% egypskri hágæða bómull. Garnið er spunnið úr extra löngum, fíngerðum þráðum og merseríserað tvisvar sem gefur garninu gljáa, styrk og litunum dýpt. Útsaumsgarnið fæst einlitt í yfir 400 litum og nokkrum marglitum. Árórugarn hentar í alls konar útsaum, úttalin spor sem og frjálsan útsaum. Garnið er klofið og notaðir einn eða fleiri þræðir eftir grófleika jafans sem saumað er í. ANCHOR árórugarn er sambærilegt í gæðum við annað árórugarn á markaðnum. Fyrir þá sem þurfa er hægt að fá upplýsingar um hvernig er hægt að para saman litanúmer á milli kerfa eða framleiðenda. ANCHOR árórugarn þolir þvott í allt að 95°C heitu vatni.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Petite Knit | Celeste Sweater

    Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Skoða Celeste Sweater barna eða herra. Þetta er rafræn uppskrift.  Þessi uppskrift er fáanleg á Íslensku. Við kaup á rafrænni uppskrift færð þú aðgang að öllum tungumálum sem búið er að þýða uppskriftina á.
    Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads.
    Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.
  • Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Skoða fleiri uppskriftir frá PetiteKnit sem þýddar hafa verið á íslensku HÉR. 

    Valkostir:

    • Útprentuð uppskrift, val um ensku eða dönsku  – sótt í verslun eða send frítt með öðrum vörukaupum
    • Útprentuð uppskrift, send stök með bréfpósti
    • Rafræn uppskrift, send með tölvupósti – öll fáanleg tungumál fylgja, sendar á virkum dögum
     
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Stramminn leysist upp í 40-50°C heitu vatni á 5-10 mínútum. Sniðugt þegar sauma á út í flík eða annað. Hægt er að klippa strammann í hæfilega stóra búta. Stærð: 20 x 22 cm Grófleiki: 5,5 þræðir á cm.
  • Afi prjónaði - Pabbi prjónaði - Frændi prjónaði Merkimiðar úr vaskaskinni. Áferðin á vaskaskinni minnir á rúskinn, en er mýkra. Það heldur mýktinni, þolir þvott og lætur ekki lit. Áletrunin er hitaprentuð og endist því vel. Það eru göt á hverju horni svo að auðvelt sé að festa við flíkina. Stærðir: Afi 1,2 x 5,3 cm, Pabbi 1,2 x 5,1 cm, Frændi 1,2 x 5 cm.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Hefbundinn saumatvinni úr 100% polyester. Hentar í allan vélsaum. Kosturinn við þennan tvinna er ekki bara styrkurinn, heldur gefur hann örlítið eftir. Þegar reynir á saum, þá eru minni líkur á saumsprettu ef þessi tvinni er notaður. Við mælum með þessum tvinna í verkefni með löngum saumum. Sparkefli með 500m.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Þetta teppi kemur úr smiðju Debbie Bliss sem er einn þekktasti prjónhönnuður Bretlands. Hér er uppskrift af fallegu ungbarnateppi sem er prjónað  út frá miðju. Byrjað er með sokkaprjóna og svo skipt yfir í hringprjóna í mismunandi lengdum eftir því sem lykkjunum fjölgar. Volare DK garnið okkar er fullkomið í þetta verkefni. Þessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír og er á ENSKU.
    Ath. ef þú ert eingöngu að kaupa eina útprentaða uppskrift og vilt fá hana senda veldu þá sækja í verslun og við sendum uppskriftina sem bréfapóst FRÍTT. Athugið að þessi uppskrift er líka til í íslenskri þýðingu og heitir DROPI.  
  • Útsaumshringur úr tré með góðum festingum (hægt að herða með fingrum og/eða skrúfjárni ef þarf), nauðsynlegt áhald fyrir þá sem sauma út. Ef útsaumsefnið er viðkvæmt er mælt með því að hringurinn sé vafinn með þunnri léreftsræmu eða t.d. teygjanlegri grisju sem fæst í apótekum. Þetta auðveldar vinnuna og heldur, sérstaklega þunnum, efnum betur strekktum og markar þau ekki. Það er mikilvægt að velja stærð útsaumshringsins í samræmi við verkefnið sem unnið er. Ef hringurinn er of lítill fyrir verkefnið fer mikill tími á að færa hringinn til og efnið getur skemmst.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Afsláttur!

    Einrúm – LAMB 2

    Original price was: 4.995kr..Current price is: 3.497kr..
    • Grófleiki: Fínband / fingering / 4ply
    • Innihald: 88% merínó lambsull, 11% mórberjasilki
    • Lengd/þyngd: 533m/100g
    • Prjónar: 2 - 3,5 mm
    • Prjónfesta: 24 - 28 L = 10 cm
    • Þvottur: Handþvottur 30°C
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Trendy eru hefðbundin málbönd en í björtum litum. Þýsk gæðaframleiðsla. Málbandið er úr endingargóðu efni sem teygist ekki. Merkingin er hvít á lituðum grunni. Mælir í cm og tommum. Málbandið mælir 150 cm í cm og tommum.
  • Vaxborinn bómullartvinni fyrir handstungu í bútasaumi eða annars konar textílvinnu. Einnig góður í handsaumaðar bækur. 200m í kefli.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Nálahús með 3 jafanálum. Nálarnar eru nr. 13, 17 og 20. Nálahúsið er með áskrúfuðu loki. Fleiri nálahús með nálum fáanleg:
    • Jumbo jafanálasett (# 340)
    • Jafanálasett með borgnum oddum (# 3121)
    • Jafanálasett með fínum nálum (# 3168)
  • Frábærar merkikrækjur, enda ein af okkar allra vinsælustu vörum. Þær eru úr efni sem endist vel (brotna ekki). Krækjurnar eru mest notaðar til að merkja umferðir, t.d. úrtökur eða útaukningar. Það eru tvær stærðir fáanlegar. Þessar eru stærri. Innihald: 12 merkikræjur í tveimur litum, plastumslag til að geyma þær í fylgir. Athugið að það er betra að hafa krækjurnar lokaðar þegar þær eru ekki í notkun.
  • Höfundur: Katrina Rodabaugh Útgefandi: Abrams (2018)
    Harðspjalda | 224 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 920 g | Mál: ‎186 x 236 x 22 mm

    Mending Matters: Stitch, Patch, and Repair Your Favorite Denim & More

    Mending Matters er bók fyrir þá sem vilja læra aðferðir við að gera við fatnað og fá hugmyndir að skemmtilegum útfærslum. Aðferðirnar skila nútímalegum og áberandi viðgerðum (engin ástæða til að þær sjáist ekki) með hefðbundnum sporum. Í grunninn eru aðferðirnar einfaldar en útfærslurnar geta verið margar.
    Í dag eru fataviðgerðir ekki aðeins skynsamlegar til að lengja líf fatnaðar, heldur nauðsynlegar fyrir umhverfið. Höfundurinn Katrina Rodabaugh fer í gegnum alls konar hugmyndafræði sem tengist fataviðgerðum í þessari bók, auk þess að undirstrika mikilvægi handavinnu.
  • Höfundur: Louise Crowther Útgefandi: David & Charles (2019)
    Mjúkspjalda | 128 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 522 g | Mál: ‎210 x 273 x 12,7 mm

    Lærðu að prjóna þessi sætu dýr sem verða sjálfsagt uppáhalds leikföng barnanna. Höfundurinn Louise Crowther gerði áður bókina My Knitted Doll. Hún hefur sinn sérstaka stíl og hvert dýr fær sinn fatnað að auki. Það eru samtals 13 prjónuð dýr í bókinni, hvert þeirra með sín einkenni og sinn fatastíl. Öll dýrin hafa í grunninn sömu stærð af búk og því er hægt að nota fötin á fleiri en eitt dýr. Veldu þitt uppáhaldsdýr og klæðnað á þær. Fullkomin gjöf fyrir vini og vandamenn.

    Hér getið þið skoðað myndir úr bókinni: Knitted Animal Friends
  • ADDI Click Lace Short hringprjónasett inniheldur 8 pör af prjónaoddum úr málmi í stærðum 3,5mm til 8mm. Hvert prjónaoddapar er með löngum og góðum oddum (lace), en prjónarnir sjálfir eru styttri svo hægt sé að nota til að mynda 40cm eða lengri hringprjóna. Það fylgja með 5 addi snúrur, liprar eins og ADDI prjónasnúrurnar eru; 40cm, 50cm, 60cm, 80cm og 100cm.  Einnig fylgir með tengi til að tengja saman snúrur, gripbleðill til að auðvelda tengingu á oddi og snúru og gyllt næla til skrauts. ADDI Click prjónunum er smellt við snúrurnar (enginn skrúfgangur) og losna því ekki á meðan prjónað er. Hægt er að bæta við settið með því að kaupa fleiri stærðir af prjónaoddum, bæði styttri og allt uppí 12mm í löngum oddum. Einnig er hægt að kaupa viðbótar snúrur stakar. Prjónasettið kemur í þægilegri tösku þar sem er rennt hólf fyrir alla smáhlutina og hver prjónn á sinn stað.
Go to Top