• Segularmband með ól úr sílikóni. Segulflöturinn er úr burstuðu stáli. Málband á innri hlið armbandsins. Passar á alla. Stærð: Armband 25,4 cm x 1,9 cm, segull 3,8 cm x 3,8 cm. Á segulinn er hægt að setja t.d. Cocoknits teljarann, prjónamerki, lítil skæri eða þráðklippur, hjálparprjóna úr málmi og annað sem festist við segul. Hentar fyrir þá sem prjóna, hekla, sauma, hárgreiðslufólk, fluguveiðifólk og þá sem ráðast í viðgerðir um helgar og vilja hafa nagla, skrúfur og annað nálægt.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Verkefnatöskuna frá COCOKNITS er hægt að nota eins og ílát eða körfu sem stendur vel á borði eða sem tösku ef bætt er við leðurhöldum sem eru seldar sér. Efni: Sterkur pappír sem þolir þvott og eldist vel. Stærð: 15cm á dýpt  x 29cm breidd x 16,5cm hæð. Inniheldur: Þrír ytri vasa, níu innri vasa. Meðferð: Þolir þvott. Sjá neðar. Gott til að halda skipulagi á prjónadótinu sínu. Hægt að nota eitt og sér eða setja inn í aðra tösku til að hafa allt á sínum stað. Prjónaverkefnið rúmast í miðhólfinu, og fylgihlutirnir og uppskriftin í hliðarvösunum. Pláss fyrir vatnsflösku, gleraugu, penna, hleðslusnúrur, lykla og annað sem þér dettur í hug að hafa með. Höldur: Göt fyrir leðurhöldur til staðar ef vill. ATH. þær þarf að kaupa sér!
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Soak Flatter er úði án sterkju sem sléttir, afrafmagnar og frískar upp. Óþarfi að þvo peysuna (eða flíkina) eins oft ef Flatter er til staðar. Mild umhverfisvæn formúla. Flatter auðveldar straujun bæði með eða án gufu. Úðað er jafnt yfir flíkina. Endurtekið ef óskað er eftir meiri stífni. Notað til að fríska upp á flíkur á milli þvotta eða til að koma í veg fyrir krumpur.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
    • Grófleiki:  Fínband / Fingering / 4ply
    • Innihald:  75% extrafine superwash merinó ull, 25% nælon
    • Lengd/þyngd:  400m/100g
    • Prjónar:  2,25 - 2,5 mm
    • Prjónfesta:  28 - 32 lykkjur = 10 cm
    • Þvottur:  Ullarvagga 30°C
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Hefðbundnir kaðlaprjónar, léttir með sveigju og renna síður úr þess vegna. Þrír kaðlaprjónar sem passa fyrir algengustu grófleika af garni.
  • Lykkjunælur eða lykkjuhaldarar sem eru hannaðar með þarfir prjónara í huga. Í staðhefðbundinnar nælu er prjónn með teygju úr silíkóni sem festist utan um prjóninn. Þannig haldast lykkjurnar á öruggum stað. Það sem gerir þetta áhald svo gott er að hægt er að hleypa lykkjunum fram af báðum endum. Frábært til að geyma lykkjur í handvegi og á fleiri stöðum. Kemur í fjórum gerðum eftir grófleika garnsins. Innihald: 2 lykkjunælur í pakka.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Addi Click Lace PRJÓNAODDAR – langir

    Price range: 1.795kr. through 1.995kr.
    Prjónaoddar til að festa við snúru í addiClick kerfinu. Þetta eru LACE prjónar með löngum oddi sem er mjög gott að prjóna með. Sömu góðu prjónarnir og aðrir málmprjónar frá ADDI. Lace Long prjónaodda er hægt að nota með 60cm og lengri snúrum. Snúrurnar eru seldar sér, ein í pakka eða fleiri.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Kaðlaprjónar, tveir misgrófir úr málmi í pakka.
  • Spjöld fyrir árórugarn eða annað útsaumsgarn sem passa í hólfin á útsaumsboxinu. 50 spjöld úr þykkum pappa. Spjöldin gera ykkur kleyft að hafa útsaumsgarnið í röð og reglu.
  • LAINE TUTTUGU OG ÞRJÚ Finnskt tímarit (á ensku) með prjónhönnun á heimsmælikvarða. Margir hönnuðir leggja hönd á plóg og tryggja úrval að áhugaverðum peysum og fylgihlutum. Mikil áhersla er lögð á greinagóðar uppskriftir. Þá fyglir ein mataruppskrift að auki. Stílhreint tímarit á ensku með fallegri myndatöku. Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að LAINE tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að LAINE kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur.
  • 25 cm lengdareining = 1.750 kr. Metraverð 7.000 kr. Innihald: 100% bómull Þræðir per cm: 4,0 Hver lengdareining er 25 cm x 90 cm (breidd efnisins). Hægt er að velja eina eða fleiri lengdareiningar og við afgreiðum efnið í einum bút. 1 eining = 25 cm, 2 einingar = 50 cm, 3 einingar = 75 cm, 4 einingar = 100 cm. Athugið að það getur verið erfitt að sýna hárétta liti á tölvuskjá eða símaskjá.
  • Tvær grófar frágangsnálar úr plasti. Stór augu og því auðvelt að þræða með grófu garni. Nálarendinn er örlítið boginn sem auðveldar að stinga nálinni undir lykkjur.
  • ANCHOR árórugarn er 6 þráða útsaumsgarn úr 100% egypskri hágæða bómull. Garnið er spunnið úr extra löngum, fíngerðum þráðum og merseríserað tvisvar sem gefur garninu gljáa, styrk og litunum dýpt. Útsaumsgarnið fæst einlitt í yfir 400 litum og nokkrum marglitum. Árórugarn hentar í alls konar útsaum, úttalin spor sem og frjálsan útsaum. Garnið er klofið og notaðir einn eða fleiri þræðir eftir grófleika jafans sem saumað er í. ANCHOR árórugarn er sambærilegt í gæðum við annað árórugarn á markaðnum. Fyrir þá sem þurfa er hægt að fá upplýsingar um hvernig er hægt að para saman litanúmer á milli kerfa eða framleiðenda. ANCHOR árórugarn þolir þvott í allt að 95°C heitu vatni.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Petite Knit | Celeste Sweater Junior

    Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Skoða Celeste Sweater í dömustærð eða herrastærðum. Þetta er rafræn uppskrift.  Þessi uppskrift er fáanleg á Íslensku. Við kaup á rafrænni uppskrift færð þú aðgang að öllum tungumálum sem búið er að þýða uppskriftina á.
    Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads.
    Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.
  • Petite Knit | Celeste Sweater

    Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Skoða Celeste Sweater barna eða herra. Þetta er rafræn uppskrift.  Þessi uppskrift er fáanleg á Íslensku. Við kaup á rafrænni uppskrift færð þú aðgang að öllum tungumálum sem búið er að þýða uppskriftina á.
    Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads.
    Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.
  • Höfundur: Sally Harding
    Útgefandi: Vaka Helgafell (2024) Harðspjalda | 224 bls. Tungumál: Íslenska Þyngd: 830 g
    20 auðveldar uppskriftir – Yfir 100 aðferðir og heklmunstur. Viltu læra að hekla? Þá er Heklað skref fyrir skref rétta bókin fyrir þig! Hér geturðu kynnst öllum grundvallaratriðum í hekli – aðferðum, garni og áhöldum – og hvert skref er vandlega útskýrt til að auðvelda þér að læra rétt handbragð. Uppskriftir og grunnaðferðir í hekli, heklmunstur, festingar, skraut og frágangur: allt er nákvæmlega sýnt með greinargóðum skýringarljósmyndum. Ómissandi handbók fyrir alla sem langar til að hekla sér eitthvað fallegt.
  • Stramminn leysist upp í 40-50°C heitu vatni á 5-10 mínútum. Sniðugt þegar sauma á út í flík eða annað. Hægt er að klippa strammann í hæfilega stóra búta. Stærð: 20 x 22 cm Grófleiki: 5,5 þræðir á cm.
  • Höfundur: Nihon Vogue & Gayle Roehm Útgefandi: Tuttle Publishing (2021)
    Mjúkspjalda | 152 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 845 g | Mál: 216 x 292 mm Stórkostleg mynsturbók með alls kyns gata- og áferðarprjóni. Mynsturteikningar fylgja öllum mynstrum og aftast eru nokkrar uppskriftir að auki.
  • Afi prjónaði - Pabbi prjónaði - Frændi prjónaði Merkimiðar úr vaskaskinni. Áferðin á vaskaskinni minnir á rúskinn, en er mýkra. Það heldur mýktinni, þolir þvott og lætur ekki lit. Áletrunin er hitaprentuð og endist því vel. Það eru göt á hverju horni svo að auðvelt sé að festa við flíkina. Stærðir: Afi 1,2 x 5,3 cm, Pabbi 1,2 x 5,1 cm, Frændi 1,2 x 5 cm.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Garn:  Cyrano frá De Rerum Natura 1 x 100g/150m eða sambærilegt garn.
    Prjónar: Sokkaprjónar 4,5mm og 5 mm Stærðir: Ein stærð unglinga-/fullorðinsstærð Einlitir vettlingar með köðlum. Garnið er gróft, fyrir prjóna 6-7 en vettlingarnir eru prjónaðir á 5 mm prjóna til að fá þá þétta. Þumallinn er hliðarþumall með tungu. Uppskriftinni fylgir teikning af mynstrinu og nákvæm vinnulýsing.
    Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku.  Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðina er einnig að finna í kvittuninni sem send er í tölvupósti.
  •  Í Finnlandi er rík vettlingahefð. Þaðan koma mörg geómetrík mynstur eða símynstur með ferningum, tíglum, þríhyrningum o.fl. sem hægt er að leika sér endalaust með. Þetta vettlingamynstur er undir áhrifum þeirrar hefðar. Með því að nota síðan einlitan grunn en marglitt garn í mynstrið kemur mikil hreyfing í mynstrið sem gerir það enn áhrifaríkara. Hér er ein útgáfa af nokkrum í vettlingaseríunni: Geómetrískir vettlingar.
    Garn:  Bio Merino 1 x 50g/150m & Edition 3  1 x 50g/50g frá Schoppel Wolle eða sambærilegt garn. Garnið í mynsturlitnum er kaflalitað og sprengt og því verða vettlingarnir ekki alveg eins!
    Prjónar: Sokkaprjónar 2,5mm og 3 mm Stærðir: Lítil, miðstærð og stór unglinga-/fullorðinsstærð Tvíbandaprjónaðir vettlingar, ekki úr fíngerðasta garninu, prjónast því hraðar fyrir vikið. Íprjónaður þumall, auðvelt að stækka og minnka vettlingana ef þarf. Mynstrið er auðlært og fljótprjónað. Uppskriftinni fylgir teikning af mynstrinu og nákvæm vinnulýsing.
    Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku.  Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðina er einnig að finna í kvittuninni sem send er í tölvupósti.
  • Hefbundinn saumatvinni úr 100% polyester. Hentar í allan vélsaum. Kosturinn við þennan tvinna er ekki bara styrkurinn, heldur gefur hann örlítið eftir. Þegar reynir á saum, þá eru minni líkur á saumsprettu ef þessi tvinni er notaður. Við mælum með þessum tvinna í verkefni með löngum saumum. Sparkefli með 500m.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Þetta teppi kemur úr smiðju Debbie Bliss sem er einn þekktasti prjónhönnuður Bretlands. Hér er uppskrift af fallegu ungbarnateppi sem er prjónað  út frá miðju. Byrjað er með sokkaprjóna og svo skipt yfir í hringprjóna í mismunandi lengdum eftir því sem lykkjunum fjölgar. Volare DK garnið okkar er fullkomið í þetta verkefni. Þessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír og er á ENSKU.
    Ath. ef þú ert eingöngu að kaupa eina útprentaða uppskrift og vilt fá hana senda veldu þá sækja í verslun og við sendum uppskriftina sem bréfapóst FRÍTT. Athugið að þessi uppskrift er líka til í íslenskri þýðingu og heitir DROPI.  
  • Sajou ÚTSAUMSHRINGUR

    Price range: 2.195kr. through 2.895kr.
    Útsaumshringur úr tré með góðum festingum (hægt að herða með fingrum og/eða skrúfjárni ef þarf), nauðsynlegt áhald fyrir þá sem sauma út. Ef útsaumsefnið er viðkvæmt er mælt með því að hringurinn sé vafinn með þunnri léreftsræmu eða t.d. teygjanlegri grisju sem fæst í apótekum. Þetta auðveldar vinnuna og heldur, sérstaklega þunnum, efnum betur strekktum og markar þau ekki. Það er mikilvægt að velja stærð útsaumshringsins í samræmi við verkefnið sem unnið er. Ef hringurinn er of lítill fyrir verkefnið fer mikill tími á að færa hringinn til og efnið getur skemmst.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
Go to Top