• Storkskonur eru duglegar að gera uppskriftir endrum og sinnum. Flestar eru klassískar og hægt að prjóna á margar kynslóðir barna. Litavalið sér hvert og eitt ykkar um eftir eigin smekk og e.t.v. tíðaranda.
    GRÁMANN Hönnuður/uppskrift: Storkurinn / Guðræun Hannele Garn: Hamelton Tweed 1  4 (4) 5 (5) x 50 g í lit G (á mynd grænblátt #04) og  1 x 50 g í lit M (dökkgrátt #16) Stærðir: 1 ( 2) 4 (6) 8 ára Sjá prjóna og prjónfestu hér fyrir neðan.
    Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku. Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður.
  • ANCHOR árórugarn er 6 þráða útsaumsgarn úr 100% egypskri hágæða bómull. Garnið er spunnið úr extra löngum, fíngerðum þráðum og merseríserað tvisvar sem gefur garninu gljáa, styrk og litunum dýpt. Útsaumsgarnið fæst einlitt í yfir 400 litum og nokkrum marglitum. Árórugarn hentar í alls konar útsaum, úttalin spor sem og frjálsan útsaum. Garnið er klofið og notaðir einn eða fleiri þræðir eftir grófleika jafans sem saumað er í. ANCHOR árórugarn er sambærilegt í gæðum við annað árórugarn á markaðnum. Fyrir þá sem þurfa er hægt að fá upplýsingar um hvernig er hægt að para saman litanúmer á milli kerfa eða framleiðenda. ANCHOR árórugarn þolir þvott í allt að 95°C heitu vatni.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details

  • Petite Knit | Celeste Sweater Junior

    Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Skoða Celeste Sweater í dömustærð eða herrastærðum. Þetta er rafræn uppskrift.  Þessi uppskrift er fáanleg á Íslensku. Við kaup á rafrænni uppskrift færð þú aðgang að öllum tungumálum sem búið er að þýða uppskriftina á.
    Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads.
    Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.
  • T-pinnar eru sterkir títiprjónar til að nota í strekkingu. Pinnarnir eru úr ryðfríu stáli sem er nauðsynlegt þegar stungið er í rök stykki. Koma í góðu boxi með 40 stykkjum.
    • Grófleiki: Smáband / sport
    • Innihald: 100% merínóull
    • Lengd/þyngd: 250m/100g
    • Prjónar:  3 - 3,5 mm
    • Prjónfesta: 25 lykkjur og 36 umferðir = 10 cm
    • Þvottur: Ullarvagga 30°C
    Uppskriftir úr Zauberwolle: VEIÐIMAÐURINN - TREFILL BÁL - HÚFA
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Afsláttur!

    Silfa ARMBAND / FRAMLENGING / PRJÓNAMÁL

    Price range: 3.906kr. through 4.169kr.
    SILFA armband eða framlenging á hálsmenið. Passar við fjölnota hálsfestina - skart og prjónamál. Á armbandinu er hægt að mæla fínustu og grófustu prjónana; 1,5 mm, 1,75 mm og 12 mm. Armbandið er 21 cm á lengd og fæst með 18 karata gyllingu eða úr hápóleruðu læknastáli. Festin er einnig prjónamál sem  mælir 2 – 10mm prjóna, hver hringur er merktur. Eitt lykkjumerki (8mm) með ferskvatnsperlu (10mm) fylgir. 95 cm lengd, hægt að fá framlengingu (sem er líka armband) ef þið viljið lengja festina. Hægt að kaupa aukalega: Lykkjumerki með perlum og lykkjuhring.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Rollfix málböndin eru þýsk gæðaframleiðsla og vinsælustu málböndin hjá okkur. Þau eru þægileg í notkun; málbandið er dregið út og er með stoppara. Dregið aftur inn með því að ýta á miðjuna. Skelin er úr sterku ABS plasti og fást með alls konar skreytingum. Málbandið sjálft er líka úr endingargóðu efni sem teygist ekki. Merkingin er svört á hvítum grunni. Skelin er 5 cm í þvermál og málbandið mælir bæði í cm og tommum. Lengd 150 cm.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Höfundur: Kazuko Aoki Útgefandi: Roost Books (2020)
    Mjúkspjalda | 96 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 340 g | Mál: 191 x 210 mm Fíflar og fjólur, sveppir og haustlauf, náttúran er kveikja höfundar að fallegum, fíngerðum útsaumsmyndum.  Teikningarnar eru fallegar og bjóða upp á enn fallegri útsaum. Bókin er ríkulega myndskreyttm með góður leiðbeiningum og vinnulýsingum. Frábær fyrir alla sem hafa áhuga á frjálsum útsaumi. Kazuko Aoki er vinsæll útsaumari í Japan. Hún notar náttúruna til að inspírara sig, bæði garðinn heima og jurtir sem verða á vegi hennar á gönguferðum. Eftir listaskólanám í Japan stundaði hún nám í textíl í Svíþjóð. Hún er höfundur margra útsaumsbóka.
  • Segularmband með ól úr sílikóni. Segulflöturinn er úr burstuðu stáli. Málband á innri hlið armbandsins. Passar á alla. Stærð: Armband 25,4 cm x 1,9 cm, segull 3,8 cm x 3,8 cm. Á segulinn er hægt að setja t.d. Cocoknits teljarann, prjónamerki, lítil skæri eða þráðklippur, hjálparprjóna úr málmi og annað sem festist við segul. Hentar fyrir þá sem prjóna, hekla, sauma, hárgreiðslufólk, fluguveiðifólk og þá sem ráðast í viðgerðir um helgar og vilja hafa nagla, skrúfur og annað nálægt.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Verkefnatöskuna frá COCOKNITS er hægt að nota eins og ílát eða körfu sem stendur vel á borði eða sem tösku ef bætt er við leðurhöldum sem eru seldar sér. Efni: Sterkur pappír sem þolir þvott og eldist vel. Stærð: 15cm á dýpt  x 29cm breidd x 16,5cm hæð. Inniheldur: Þrír ytri vasa, níu innri vasa. Meðferð: Þolir þvott. Sjá neðar. Gott til að halda skipulagi á prjónadótinu sínu. Hægt að nota eitt og sér eða setja inn í aðra tösku til að hafa allt á sínum stað. Prjónaverkefnið rúmast í miðhólfinu, og fylgihlutirnir og uppskriftin í hliðarvösunum. Pláss fyrir vatnsflösku, gleraugu, penna, hleðslusnúrur, lykla og annað sem þér dettur í hug að hafa með. Höldur: Göt fyrir leðurhöldur til staðar ef vill. ATH. þær þarf að kaupa sér!
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Höfundur: Kazuko Aoki Útgefandi: Shambhala Publications Inc (2015)
    Mjúkspjalda | 96 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 340 g | Mál: 211 x 258 x 6 mm

    The Embroidered Garden : Stitching through the Seasons of a Flower Garden

    Dásamlega falleg útsaumsbók eftir japanska höfundinn Kazuko Aoki. Það sést að áhugasviðið nær yfir garðyrkju jafnt sem útsaum. Kazuko Aoki yfirfærir fegurðina úr garðinum yfir í útsauminn á einstakan hátt. Fjörtíu mynstur endurspegla blómagarðinn og líka býflugurnar og fiðrildin. Teikningarnar sýna verkefnin vel og fyrir þá sem þurfa þá er aðferðirnar líka útskýrðar vel. Útsauminn er svo hægt að útfæra í barmnælur, bókakápur, nálapúða og poka.
    • Grófleiki:  Fínband / Fingering / 4ply
    • Innihald:  75% extrafine superwash merinó ull, 25% nælon
    • Lengd/þyngd:  400m/100g
    • Prjónar:  2,25 - 2,5 mm
    • Prjónfesta:  28 - 32 lykkjur = 10 cm
    • Þvottur:  Ullarvagga 30°C
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Hefðbundnir kaðlaprjónar, léttir með sveigju og renna síður úr þess vegna. Þrír kaðlaprjónar sem passa fyrir algengustu grófleika af garni.
  • Lykkjunælur eða lykkjuhaldarar sem eru hannaðar með þarfir prjónara í huga. Í staðhefðbundinnar nælu er prjónn með teygju úr silíkóni sem festist utan um prjóninn. Þannig haldast lykkjurnar á öruggum stað. Það sem gerir þetta áhald svo gott er að hægt er að hleypa lykkjunum fram af báðum endum. Frábært til að geyma lykkjur í handvegi og á fleiri stöðum. Kemur í fjórum gerðum eftir grófleika garnsins. Innihald: 2 lykkjunælur í pakka.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Addi Click Lace PRJÓNAODDAR – langir

    Price range: 1.495kr. through 1.995kr.
    Prjónaoddar til að festa við snúru í addiClick kerfinu. Þetta eru LACE prjónar með löngum oddi sem er mjög gott að prjóna með. Sömu góðu prjónarnir og aðrir málmprjónar frá ADDI. Lace Long prjónaodda er hægt að nota með 60cm og lengri snúrum. Snúrurnar eru seldar sér, ein í pakka eða fleiri.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Kaðlaprjónar, tveir misgrófir úr málmi í pakka.
  • Spjöld fyrir árórugarn eða annað útsaumsgarn sem passa í hólfin á útsaumsboxinu. 50 spjöld úr þykkum pappa. Spjöldin gera ykkur kleyft að hafa útsaumsgarnið í röð og reglu.
  • ADDI hringprjónar úr málmi. Prjónaoddarnir eru léttir úr kopar, húðaðir með hvítu bronsi. Snúrurnar eru mjúkar og samskeyti snúru og prjóns slétt. ADDI prjónarnir eu hannaðir og framleiddir í Þýskalandi fyrir prjónara sem vilja aðeins bestu gæði. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. Addi Sockwonder eru frábærir fyrir sokka, ermar, vettlinga og allt smávaxið prjónaverk. Með 70 mm lace odd og 45 mm venjulegum oddi verður mun auðveldara að prjóna fíngerðar og smágerðar flíkur.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • LAINE TUTTUGU OG ÞRJÚ Finnskt tímarit (á ensku) með prjónhönnun á heimsmælikvarða. Margir hönnuðir leggja hönd á plóg og tryggja úrval að áhugaverðum peysum og fylgihlutum. Mikil áhersla er lögð á greinagóðar uppskriftir. Þá fyglir ein mataruppskrift að auki. Stílhreint tímarit á ensku með fallegri myndatöku. Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að LAINE tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að LAINE kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur.
  • Höfundur: Ieva Ozolina Útgefandi: David & Charles (2024) Mjúkspjalda | 218 bls. Tungumál: Enska
    Þyngd: 850 g | Mál: ‎210 x 273 x 12,7 mm
    Hundrað uppskriftir af vettlingum, handstúkum og grifflum í anda letttneskrar prjónahefða. Lettland er þekkt fyrir falleg prjónamynstur og vettlingahefð. Erfiðleikastigið er allt frá einföldu til flókins. Handprjónaðir vettlingar hafa alltaf gegnt mikilvægu hlutverki í menningasögu Lettlands. Þar læra stelpur að prjóna ungar og það er hefð fyrir því að tilvonandi brúður prjóni vettlinga og gefi gestum á brúðkaupsdaginn. Þessi bók endurspeglar þessa fallegu hefð og sýnir að vettlingarnir eiga jafn vel við í dag og áður fyrr.
  • Olnbogabætur úr mjúku rúskinni svo peysurnar og/eða jakkarnir endist lengur. Til í nokkrum litum. Með gataröð meðfram brún til að auðvelda saumaskapinn. Koma tvær saman í pakkningu. Það er upplagt að nota Laine St. Pierre stoppugarnið til að festa bæturnar.  
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Tvær grófar frágangsnálar úr plasti. Stór augu og því auðvelt að þræða með grófu garni. Nálarendinn er örlítið boginn sem auðveldar að stinga nálinni undir lykkjur.

Go to Top