• Svört teygja fyrir allan almennan saumaskap. Teygjan er flöt, 6 mm á breidd og 10 m á spjaldi.
  • Stoppugarn og/eða útsaumsgarn. Garnið er úr 50% ull og 50% pólíamíd og er þannig nógu sterkt í sokka- og peysuviðgerðir en hentar einnig í útsaum. Magn: 10 m á spjaldi (40 m ef þráðurinn er notaður einfaldur). Þráðurinn er fjórfaldur og auðvelt að kljúfa eftir grófleika þess sem á að sauma. Margir litir í boði.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • 25 cm lengdareining = 675 kr. Metraverð 2.700 kr. Innihald: 100% bómull Þræðir per cm: 4,0 Hver lengdareining er 25 cm x 60 cm (breidd efnisins). Hægt er að velja eina eða fleiri lengdareiningar og við afgreiðum efnið í einum bút. 1 eining = 25 cm, 2 einingar = 50 cm, 3 einingar = 75 cm, 4 einingar = 100 cm. Athugið að það getur verið erfitt að sýna hárétta liti á tölvuskjá eða símaskjá.
  • Prjónamál, ílangt úr plasi. Mælir prjónafestu og er með stækkunargleri til að auðvelda talningu á lykkjum og/eða setja yfir línu í uppskrift.
  • Sterkar lykkjunælur úr áli. Þrjár stærðir í þremur litum.
  • T-pinnar eru sérstakir títuprjónar fyrir strekkingu. Þeir eru grófari, sterkari og svigna ekki. Ryðfríir og ómissandi þegar strekkja á sjöl eða annan textíl. 50 stk. í boxi.  
  • Hefðbundnir kaðlaprjónar, léttir með sveigju og renna síður úr þess vegna. Þrír kaðlaprjónar sem passa fyrir algengustu grófleika af garni.
  • Kaðlaprjónar hannaðir til að geyma lykkjur í boganum. Vegna lögunarinnar renna lykkjurnar ekki fram af prjóninum. Innihald: 3 kaðlaprjónar í mismunandi grófleikum.
  • Öryggisnælur - 34 mm - 16 stk./pk.
  • Sæbjörg er sokkar sem eru þægilegir í prjóni. Hællinn er hefðbundinn bandhæll, sem er líka þekktur undir nafninu Halldóruhæll. Hér er þó útgáfa þar sem hælstallurinn er með garðaprjónskanti sem minnkar líkur á að það myndist göt þegar hælstallslykkjurnar eru prjónaðar upp. Þá er bæði hælstallurinn og hæltungan með styrkingu eða prjónað með óprjónuðum og prjónuðum lykkjum á víxl til að gera hælinn þéttari og mýkri.
    Gægt er að hafa stroffið á sokkleggnum hærra og brjóta það tvöfalt, ykkar er valið. Þægindin við að stroffið nái niður að hæl er að þá er svo auðvelt að bregða sér í og úr sokkunum.
    Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku.  Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni, smellið á hana til að hlaða henni niður. Það er einnig hægt að smella á slóðina sem er að finna í kvittuninni sem send er í tölvupósti.
  • 13 mm smellur, svartar til að sauma á. Þessar smellur hafa líka verið notaðar á litlar peysur. 6 stk./pk.
  • 9 mm smellur, svartar til að sauma á. 12 stk./pk.
  • 9 mm smellur, silfurlitaðar til að sauma á. 12 stk./pk.
  • Saumnálar (stuttar með oddi) fyrir bútasaum. 12 stk./pk.
  • Bútasaumsnálar (langar með oddi) fyrir handsaum. 20 stk./pk.
  • FATABÓT; sjálflímandi, nælon

    Price range: 695kr. through 1.095kr.
    Sjálflímandi fatabót sem hentar á útivistarfatnað, regnfatnað, hlífðarfatnað o.þ.h. Stærð 10 x 20 cm. Hægt að klippa til í þá stærð sem þarf.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • ANCHOR árórugarn er 6 þráða útsaumsgarn úr 100% egypskri hágæða bómull. Garnið er spunnið úr extra löngum, fíngerðum þráðum og merseríserað tvisvar sem gefur garninu gljáa, styrk og litunum dýpt. Útsaumsgarnið fæst einlitt í yfir 400 litum og nokkrum marglitum. Árórugarn hentar í alls konar útsaum, úttalin spor sem og frjálsan útsaum. Garnið er klofið og notaðir einn eða fleiri þræðir eftir grófleika jafans sem saumað er í. ANCHOR árórugarn er sambærilegt í gæðum við annað árórugarn á markaðnum. Fyrir þá sem þurfa er hægt að fá upplýsingar um hvernig er hægt að para saman litnúmer á milli kerfa eða framleiðenda. ANCHOR árórugarn þolir þvott í allt að 95°C heitu vatni. Hvert kefli er 30m (á meðan það eru 8m á hefðbundinni dokku).
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • SASHIKO nálar - langar Nálar sem eru hentugar í sashiko útsaum þar sem mynstrum eru línulaga. Nálin rennur vel í gegnum efni, en það getur verið þægilegt að ýta á eftir nálinni með fingurbjörg, sérstaklega ef saumað er í gengum mörg lög af efni í sömu aðgerð. Efni: Stál Magn: 3 nálar í pk Framleiðsluland:Japan Stærðir:  1 nál 0,97 x 66,7 mm, 1 nál 0,97 x 60 mm, 1 nál 0,97 x 54 mm. 1 stk. þræðari fylgir með. Mælt er með sashiko útsaumsgarni í grófleika #20 eða #30.
    • Grófleiki:  Fínband / fingering / 4 ply
    • Innihald:  75% ull, 25% pólíamíd
    • Lengd/þyngd:  50 g/210 m
    • Prjónar:  2 ½ - 3 mm
    • Prjónfesta:  32 lykkjur og 38 umferðir = 10 x 10 cm
    • Þvottur:  Ullarþvottakerfi við 40°C
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • 11 mm smellur, svartar til að sauma á. 12 stk./pk.
  • Tvær grófar frágangsnálar úr plasti. Stór augu og því auðvelt að þræða með grófu garni. Nálarendinn er örlítið boginn sem auðveldar að stinga nálinni undir lykkjur.
  • Afsláttur!

    Knit Pro Symfonie HEKLUNÁLAR

    Price range: 735kr. through 907kr.
    Symfonie heklunálarnar eru úr marglituðu birki með slétta og mjúka áferð svo garnið rennur vel á yfirborðinu. Oddurinn fremst á króknum er hæfilega beittur til að komast auðveldlega í gegnum lykkjurnar.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • 11 mm smellur, króm, til að sauma á. 12 stk./pk.
  • 13 mm smellur, silfurlitar til að sauma á. Þessar smellur hafa líka verið notaðar á litlar peysur. 6 stk./pk.
Go to Top