- Grófleiki: Fínband / Fingering / 4ply
- Innihald: 100% extrafín superwash merinóull
- Lengd/þyngd: 400m/100g
- Prjónar: 2,25 - 3,25 mm
- Prjónfesta: 28 - 32 lykkjur = 10 cm
- Þvottur: Ullarvagga 30°C
-
ANCHOR árórugarn er 6 þráða útsaumsgarn úr 100% egypskri hágæða bómull. Garnið er spunnið úr extra löngum, fíngerðum þráðum og merseríserað tvisvar sem gefur garninu gljáa, styrk og litunum dýpt. Útsaumsgarnið fæst einlitt í yfir 400 litum og nokkrum marglitum. Árórugarn hentar í alls konar útsaum, úttalin spor sem og frjálsan útsaum. Garnið er klofið og notaðir einn eða fleiri þræðir eftir grófleika jafans sem saumað er í. ANCHOR árórugarn er sambærilegt í gæðum við annað árórugarn á markaðnum. Fyrir þá sem þurfa er hægt að fá upplýsingar um hvernig er hægt að para saman litanúmer á milli kerfa eða framleiðenda. ANCHOR árórugarn þolir þvott í allt að 95°C heitu vatni. -
ANCHOR árórugarn er 6 þráða útsaumsgarn úr 100% egypskri hágæða bómull. Garnið er spunnið úr extra löngum, fíngerðum þráðum og merseríserað tvisvar sem gefur garninu gljáa, styrk og litunum dýpt. Útsaumsgarnið fæst einlitt í yfir 400 litum og nokkrum marglitum. Árórugarn hentar í alls konar útsaum, úttalin spor sem og frjálsan útsaum. Garnið er klofið og notaðir einn eða fleiri þræðir eftir grófleika jafans sem saumað er í. ANCHOR árórugarn er sambærilegt í gæðum við annað árórugarn á markaðnum. Fyrir þá sem þurfa er hægt að fá upplýsingar um hvernig er hægt að para saman litnúmer á milli kerfa eða framleiðenda. ANCHOR árórugarn þolir þvott í allt að 95°C heitu vatni. -
Þetta prjónaveski eða prjónahirsla er hönnuð með þarfir prjónarans í huga. Þægilegt til að hafa hringprjónana á einum stað og gott skipuleg á þeim. Veskið er með rennilás á þremur hliðum og opnast eins og harmonikka. Ellefu vasar geyma allar stærðir af hringprjónum. Það fylgja með ómerktir límmiðar í pastellitum til að merkja vasana í samræmi við þína prjónaeign. Ytra byrðið er úr sterku bómullakakí, bryddað með leðurlíki. Þægilegt handfang til að halda á töskunni. Málmfestingar eru úr messing.
Stærð: 20 x 14 x 7,5 cm Hannað fyrir skapandi einstaklinga heima eða á ferðinni. Sjá einnig Hook & Needle skipulagsmöppuna sem er í stíl og kemur í sömu litum. Framleiðandinn hefur sjálfbærni að leiðarljósi við framleiðslu þessarar tösku. Hver taska er handunnin og tímalaus hönnun. -
Petite Knit | The Oslo Hat
Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Þetta er rafræn uppskrift.
Þessi uppskrift er fáanleg á Íslensku. Við kaup á rafrænni uppskrift færð þú aðgang að öllum tungumálum sem búið er að þýða uppskriftina á.
Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads.
Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.
-
Prjónasnúra úr mjúku efni. Snúran er með stuttum prjóni á öðrum endanum til að þræða í gegnum lykkjurnar sem á að geyma. Prjóninum er svo stungið inn í tappa á hinum endanum og hægt að draga snúruna í gegn eins langt og þarf. Öruggt og þægilegt. Styttri snúran er algjör snilld til að geyma lykkjur í handvegi eða hálsmáli og sú lengri fyrir lykkjur á bol, t.d. þegar peysa er prjónuð ofan frá og mátuð. Tvær lengdir fáanlegar- Stutt: 23-41 cm (#3161)
- Löng: 61-91 cm (#3162)
-
- Lykkjustopparar fyrir prjóna 2mm - 10mm.
- 6 stærðir; 4 stk. af hverri stærð = 24 lykkjustopparar.
- Framleitt úr umhverfisvænu efni.
- Notkun: Setjið stopparann alla leið upp á prjóninn til að halda við lykkjurnar. Hægt að nota á sokkaprjóna og hringprjóna. Setjið á hringprjóna eða snúru af samsettum prjónum að halda lykkjunum öruggum á meðan peysan er mátuð.
-
- Grófleiki: Léttband / DK
- Innihald: 50% alpaka, 50% ull
- Lengd/þyngd: 116m/50g
- Prjónar: 3,75-4 mm
- Prjónfesta: 23 lykkjur og 30 umferðir = 10 x 10 cm
- Þvottur: Handþvottur 30°C
-
Afsláttur!
- Grófleiki: Grófband / Chunky
- Innihald: 100% ull
- Lengd/þyngd: 100m/100g
- Prjónar: 7 mm
- Prjónfesta: 13 lykkjur og 16 umferðir = 10 x 10 cm
- Þvottur: Handþvottur 30°C
- Magn í peysu með 80-86cm ummáli: 800g/8 x 100g
-
Mánaðarserían eru símynstraðir vettlingar með mynstureindum sem er auðvelt að læra og þ.a.l. skemmtilegt að prjóna.Með því að nota einlitan grunn en marglitt garn í mynstrið kemur mikil hreyfing í mynstrið sem gerir það enn áhrifaríkara, en þa verða vettlingarnir ekki eins! Það er auðvitað líka hægt að hafa einlitt garn í mynstrinu.Garn: Bio Merino 1 x 50g/150m & Edition 3 1 x 50g/50g frá Schoppel Wolle eða sambærilegt garn. Garnið í mynsturlitnum er kaflalitað og sprengt og því verða vettlingarnir ekki alveg eins!Prjónar: Sokkaprjónar 2,5mm og 3 mm Stærðir: Minni og stærri unglinga-/fullorðinsstærð Tvíbandaprjónaðir vettlingar, ekki úr fíngerðasta garninu, prjónast því hraðar fyrir vikið. Íprjónaður þumall, auðvelt að stækka og minnka vettlingana ef þarf. Mynstrið er auðlært og fljótprjónað. Uppskriftinni fylgir teikning af mynstrinu og nákvæm vinnulýsing.Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku. Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðina er einnig að finna í kvittuninni sem send er í tölvupósti. -
Petite Knit | No Frills Sweater
Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Þetta er rafræn uppskrift.
Þessi uppskrift er fáanleg á Íslensku. Við kaup á rafrænni uppskrift færð þú aðgang að öllum tungumálum sem búið er að þýða uppskriftina á.
Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads.
Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.
-
Höfundur: Anne Bardsgard Útgefandi: Museumforlaget (2016)Harðspjalda | 296 bls. Tungumál: Norska Þyngd: 1.420 g | Mál: 220 x 280 x 27 mmSelbu mittens eða vettlingar frá Selbu eru vel þekktir um allan heim. Þeirra einkenni eru mynstur í andstæðum litum, í svart/hvítu. Bókin fjallar um hvaðan mynstrin koma, hverjir prjónuðu þau og almennt um sögu Selbu vettlingana. Þessi bók var gerð í kjölfarið á einstakri fingravettlinga- og vettlingasýningu sem var haldin í Sverresborg Trondelag Folkemuseum. Bókin inniheldur sögu vettlinganna, yfir 500 mynsturteikningar með klassískum áttablaðarósum, snjókornum, blómum, elgjum, köngulóm og kaffibaunum.Uppskriftir af 35 vettlingum með úrvali af mynstrum fyrir lófa, þumla, stroff og stofn og jafnvel sérstök mynstur þar sem handarbök og lófar mætast. Möguleikarnir á samsetningum eru mjög margir. -
Hefðbundnir sokkaprjónar frá Addi sem eru góðir í sokkaprjón, vettlingaprjón, ermar og hálsmál. Colibri prjónarnir eru úr áli og hver prjónn er í sérstökum lit. Þeir hafa slétta áferð og eru léttir. Annar oddurinn er beittari og hinn er bljúgari þannig að hægt er að velja hvaða oddi er beitt eftir verkefni. Kosturinn við álprjóna er að þeir brotna ekki og allir prjónar frá Addi eru lausir við nikkel. Fást einnig 15 cm langir. -
Breidd 243 cm. Metraverð 3.300 kr. Selt í 50 cm lengdareiningum = 1.650 kr. HEIRLOOM vatt - 80% bómull / 20% pólíester. Þetta vatt hefur alla eiginleika bómullarvatts en er örlítið léttara og sterkara vegna pólýester blöndunnar. Hentar vel í bútasaumsteppi. 1 eining = 50 cm, 2 einingar = 100 cm, 3 einingar = 150 cm, 4 einingar = 200 cm, 5 einingar 250 cm o.s.frv. -
Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Þetta er rafræn uppskrift. Þessi uppskrift er fáanleg á Íslensku. Við kaup á rafrænni uppskrift færð þú aðgang að öllum tungumálum sem búið er að þýða uppskriftina á.Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads.
Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.