-
Lykkjustopparar - fást í tveimur stærðum. Minni passar fyrir prjóna 1,5 mm til 5 mm og stærri fyrir 5,5 mm til 10 mm. Í raun er hægt að nota þann stærri fyrir alla grófleika prjóna. Það er gormur inn í sem heldur vel að prjónunum svo að lykkjurnar renni ekki fram af prjónunum. Ómissandi fyrir alla prjónara! -
Þráðaspjöld eru sérgrein SAJOU. Hér áður var engu hent, hver einasti spotti af útsaumsgarni, borðum og öðru geymt til að nota síðar. Til þessu eru þráðaspjöldin eða dúkkulísurnar hugsaðar. Þess vegna væri einnig hægt að setja hárteygjur utan um þau eða annað sem ykkur dettur í hug.
Á dúkkulísunum er gert ráð fyrir að einni tegund sé vafið fyrir neðan og einni fyrir ofan með beltið á milli. Í boði eru stelpur í sumarkjólum og í köflóttum kjólum. Efnið er þykkur litprentaður pappi sem bognar ekki auðveldlega. -
Langar heklunálar úr málmi, 30 cm með hjarta á endanum fyrir krækjuhekl (túnesískt hekl). Athugið að fínustu heklunálarnar (2mm og 2,5mm) eru með þríhyrndum enda. Hægt að nota fyrir hvers konar hekl sem er en eru sérstaklega hannaðar fyrir krækjuheklið. Krækjuhekl er íslenskt heiti yfir það sem hefur ymst verið kallað afgangskt, rússneskt eða tyrkneskt hekl. -
Afsláttur!
KNIT PRO Nova hringprjónar eru rennisléttir málmprjóðar og þola því meira átak. Prjónaoddarnir eru léttir og mjúkir viðkomu og samskeyti snúru og prjónaodds slétt. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. Knit Pro prjónarnir eru framleiddir í Indlandi við bestu mögulegar aðstæður fyrir starfsfólk. Þar á sér stað stöðug vöruþróun og þarfir prjónara eru alltaf í fyrirrúmi. -
Stoppugarn og/eða útsaumsgarn. Garnið er úr 50% ull og 50% pólíamíd og er þannig nógu sterkt í sokka- og peysuviðgerðir en hentar einnig í útsaum. Magn: 10 m á spjaldi (40 m ef þráðurinn er notaður einfaldur). Þráðurinn er fjórfaldur og auðvelt að kljúfa eftir grófleika þess sem á að sauma. Margir litir í boði. -
25 cm lengdareining = 675 kr. Metraverð 2.700 kr. Innihald: 100% bómull Þræðir per cm: 4,0 Hver lengdareining er 25 cm x 60 cm (breidd efnisins). Hægt er að velja eina eða fleiri lengdareiningar og við afgreiðum efnið í einum bút. 1 eining = 25 cm, 2 einingar = 50 cm, 3 einingar = 75 cm, 4 einingar = 100 cm. Athugið að það getur verið erfitt að sýna hárétta liti á tölvuskjá eða símaskjá.
