595kr.

Þráðaspjöld eru sérgrein SAJOU. Hér áður var engu hent, hver einasti spotti af útsaumsgarni, borðum og öðru geymt til að nota síðar. Til þessu eru þráðaspjöldin eða dúkkulísurnar hugsaðar. Þess vegna væri einnig hægt að setja hárteygjur utan um þau eða annað sem ykkur dettur í hug.

Á dúkkulísunum er gert ráð fyrir að einni tegund sé vafið fyrir neðan og einni fyrir ofan með beltið á milli.

Í boði eru stelpur í sumarkjólum og í köflóttum kjólum.

Efnið er þykkur litprentaður pappi sem bognar ekki auðveldlega.