-
Prjónasnúrur fyrir Knit Pro prjónaoddana. Þessar eru úr stálvír sem er nælonhúðaður og þær eru "minnislausar". Snúran snýst 360° við samskeytin sem minnkar verulega líkurnar á því að prjónninn losni. En eins og í öllum samsettum prjónum frá Knit Pro þarf að nota sérstakan pinna til að herða og losa þegar skipt er um prjón (ef pinninn týnist er alltaf hægt að nota nál). Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. Snúrurnar fást í lengdum til að mynda 40cm, 50cm, 60cm, 80cm og 100cm. Einnig er hægt að nota snúrurnar til að geyma lykkjur því það fylgja tveir tappar með hverri snúru. Þá er líka hægt að fá millistykki til að tengi saman tvær snúrur eða tengja eina snúru í hring til að geyma lykkjur. -
Vatnsuppleysanlegt flíselín. Hentar vel í allan útsaum, bæði í höndum og á saumavél. Hentar vel í útsaum á prjón. Hægt að teikna mótíf á með blýanti eða penna og sauma svo út. Svo er flíselínið skolað af. 25 cm lengdareining = 450 kr. Metraverð 1.800 kr. Hver lengdareining er 25 cm x 90 cm (breidd efnisins). Hægt er að velja eina eða fleiri lengdareiningar og við afgreiðum efnið í einum bút. 1 eining = 25 cm, 2 einingar = 50 cm, 3 einingar = 75 cm, 4 einingar = 100 cm. -
Dreamz heklunálarnar eru úr birki með slétta og mjúka áferð svo garnið rennur vel á yfirborðinu. Oddurinn fremst á króknum er hæfilega beittur til að komast auðveldlega í gegnum lykkjurnar. Hvert númer er í sérstökum lit, alveg eins og í prjónunum. Hver endi er með skrúfgangi þannig að hægt er að skrúfa snúru við í ýmsum lengdum og nota heklunálarnar í krækjuhekli (túnesísku, afgönsku hekli). Snúrurnar fyrir skiptiprjónana passa líka á heklunálarnar. -
Afsláttur!
Symfonie heklunálarnar eru úr marglituðu birki með slétta og mjúka áferð svo garnið rennur vel á yfirborðinu. Oddurinn fremst á króknum er hæfilega beittur til að komast auðveldlega í gegnum lykkjurnar. -
- Níu pör af prjónaoddum.
- Stærðir: 3 mm, 3,5 mm, 4 mm, 4,5 mm, 5 mm, 5,5 mm, 6 mm, 7 mm & 8 mm
- Fjórar svartar nælonhúðaðar stálsnúrur með 360° snúningslið við samskeyti prjóns og snúru
- Snúrurnar mynda tvo 40 cm og tvo 50 cm hringprjóna
- Fylgihlutir: 8 tappar til að setja á snúrurnar, 4 pinnar til að herða og losa prjónoddana, eitt sett af snúrutengi
- Veskið er klætt með vínrauðu/bleiku taui
-
Symfonie DREAMZ prjónaoddarnir eru úr birki, hver grófleiki í sérstökum lit og fást í tveimur lengdum. Þessir eru 10 cm eða styttri og passa fyrir stystu snúrurnar til að mynda 40 cm langan hringprjón fyrir húfu- og ermaprjón eða hálsmál á peysu. Hægt er að nota oddana á allar aðrar lengdir af snúrum eftir þörfum. Prjónaoddarnir eru skrúfaðir á snúrur sem fást í nokkrum lengdum. Snúrumegin við samskeytin eru göt þar sem meðfylgjandi pinna er stungið inn í til að herða og losa. Við mælum með því að pinninn sé alltaf notaður til og losa og festa prjónaodda og snúrur, annars getur prjónninn losnað á meðan prjónað er. Þægindin við að nota samsetta prjóna eru ótvíræð. Þá þarf maður ekki að eiga næstum eins marga prjóna, því samsetningarmöguleikarnir eru svo miklir. -
Symfonie DREAMZ prjónaoddarnir eru úr birki, hver grófleiki í sérstökum lit og fást í tveimur lengdum. Þessir eru 13 cm eða lengri og passa fyrir 60 cm og lengri snúrur. Hægt er að nota oddana á allar aðrar lengdir af snúrum eftir þörfum. Prjónaoddarnir eru skrúfaðir á snúrur sem fást í nokkrum lengdum. Snúrumegin við samskeytin eru göt þar sem meðfylgjandi pinna er stungið inn í til að herða og losa. Við mælum með því að pinninn sé alltaf notaður til og losa og festa prjónaodda og snúrur, annars getur prjónninn losnað á meðan prjónað er. Þægindin við að nota samsetta prjóna eru ótvíræð. Þá þarf maður ekki að eiga næstum eins marga prjóna, því samsetningarmöguleikarnir eru svo miklir. -
Knit Pro DREAMZ sokkaprjónar er úr birki með góðum oddi og sléttri áferð. Uppáhaldsprjónar margra. Hægt er að fá Symfonie sokkaprjóna, styttri 15 cm og lengri 20 cm. Í DREAMZ línunni er hver grófleiki í sér lit. Knit Pro prjónarnir eru framleiddir í Indlandi við bestu mögulegar aðstæður fyrir starfsfólk. Þar á sér stað stöðug vöruþróun og þarfir prjónara eru alltaf í fyrirrúmi. -
Knit Pro DREAMZ Symfonie sokkaprjónar er úr birki með góðum oddi og sléttri áferð. Uppáhaldsprjónar margra. Hægt er að fá Symfonie sokkaprjóna, styttri 15 cm og lengri 20 cm. Í DREAMZ línunni er hver grófleiki í sér lit. Knit Pro prjónarnir eru framleiddir í Indlandi við bestu mögulegar aðstæður fyrir starfsfólk. Þar á sér stað stöðug vöruþróun og þarfir prjónara eru alltaf í fyrirrúmi.
