-
Málband með mjúkri skel. Þau eru þægileg í notkun; málbandið er dregið út og er með stoppara. Dregið aftur inn með því að ýta á miðjuna. Málbandið sjálft er úr endingargóðu efni sem teygist ekki. Merkingin er svört á ljósum grunni. Skelin er 5 cm í þvermál og málbandið mælir bæði í cm og tommum. Lengd 200 cm. -
Box fyrir árórugarn. Hólfin eru hönnuð fyrir sérstök spjöld sem útsaumsgarnið er valfið utan um. Það fylgja 50 spjöld úr þykkum pappa með boxinu. Einnig fylgir lítil vinda úr plasti til að flýta fyrir þegar garnið er undið á spjöldin. Þessi box eru ómissandi fyrir þau sem sauma út með árórugarni. Hægt er að hafa góða yfirsýn yfir litina og garnið helst í röð og reglu og flækist ekki. -
Eco Vita viðar útsaumsbox með 24 þráðspjöldum Viðarbox með renniloki sem geymir öll útsaumsáhöldin á einum stað. Lokið er með 12 raufum sem halda 24 þráðspjöldum sem henta fyrir allar gerðir útsaumsgarns. Nálasegull tryggir að nálin haldist á sínum stað þegar hún er ekki í notkun. Stærð kassans: 17,9cm × 10,8cm × 4,5 cm
Stærð þráðspjalda: 4 × 3,5 cm -
Útsaumshringur úr tré með góðum festingum. Ef útsaumsefnið er viðkvæmt er mælt með því að hringurinn sé vafinn með þunnri léreftsræmu eða t.d. teygjanlegri grisju sem fæst í apótekum. Þetta auðveldar vinnuna og heldur, sérstaklega þunnum, efnum betur strekktum og markar þau ekki. Það er mikilvægt að velja stærð útsaumshringsins í samræmi við verkefnið sem unnið er. Ef hringurinn er of lítill fyrir verkefnið fer mikill tími á að færa hringinn til og efnið getur skemmst. -
Útsaumshringur úr tré með góðum festingum (hægt að herða með fingrum og/eða skrúfjárni ef þarf), nauðsynlegt áhald fyrir þá sem sauma út. Ef útsaumsefnið er viðkvæmt er mælt með því að hringurinn sé vafinn með þunnri léreftsræmu eða t.d. teygjanlegri grisju sem fæst í apótekum. Þetta auðveldar vinnuna og heldur, sérstaklega þunnum, efnum betur strekktum og markar þau ekki. Það er mikilvægt að velja stærð útsaumshringsins í samræmi við verkefnið sem unnið er. Ef hringurinn er of lítill fyrir verkefnið fer mikill tími á að færa hringinn til og efnið getur skemmst. -
Þráðaspjöld eru sérgrein SAJOU. Hér áður var engu hent, hver einasti spotti af útsaumsgarni, borðum og öðru geymt til að nota síðar. Til þessu eru þráðaspjöldin eða dúkkulísurnar hugsaðar. Þess vegna væri einnig hægt að setja hárteygjur utan um þau eða annað sem ykkur dettur í hug.
Á dúkkulísunum er gert ráð fyrir að einni tegund sé vafið fyrir neðan og einni fyrir ofan með beltið á milli. Í boði eru stelpur í sumarkjólum og í köflóttum kjólum. Efnið er þykkur litprentaður pappi sem bognar ekki auðveldlega. -
Afsláttur!
SILFA armband eða framlenging á hálsmenið. Passar við fjölnota hálsfestina - skart og prjónamál. Á armbandinu er hægt að mæla fínustu og grófustu prjónana; 1,5 mm, 1,75 mm og 12 mm. Armbandið er 21 cm á lengd og fæst með 18 karata gyllingu eða úr hápóleruðu læknastáli. Festin er einnig prjónamál sem mælir 2 – 10mm prjóna, hver hringur er merktur. Eitt lykkjumerki (8mm) með ferskvatnsperlu (10mm) fylgir. 95 cm lengd, hægt að fá framlengingu (sem er líka armband) ef þið viljið lengja festina. Hægt að kaupa aukalega: Lykkjumerki með perlum og lykkjuhring. -
Afsláttur!
SILFA lykkjumerki sem er líka hægt að nota sem eyrnalokka. Fást með 18 karata gyllingu eða úr hápóleruðu læknastáli. Val um mismunandi liti í ferskvatnsperlum - seld í pörum - tvö saman. -
Afsláttur!
SILFA skartgripa- eða smáhlutabox. Snagar fyrir prjónamerkin, og pláss fyrir alls konar fylgihluti. Vegan leður með perluáferð. Stærð: 17 x 12 x 5,5 cm. -
Leðurhalda sem hentar í verkefni eins og til dæmis Terazzo Bag eða jólasokk frá PetiteKnit Lengd 100cm. Breidd 2 cm. -
Spöng fyrir töskur eins og til dæmis Teddy Clutch frá Petiteknit. Stærð: lengd: 20cm, breidd 18 cm opin, 9 cm lokuð. -
Frábærar merkikrækjur, enda ein af okkar allra vinsælustu vörum. Þær eru úr efni sem endist vel (brotna ekki). Krækjurnar eru mest notaðar til að merkja umferðir, t.d. úrtökur eða útaukningar. Það eru tvær stærðir fáanlegar. Þessar eru stærri. Innihald: 12 merkikræjur í tveimur litum, plastumslag til að geyma þær í fylgir. Athugið að það er betra að hafa krækjurnar lokaðar þegar þær eru ekki í notkun.