Price range: 2.695kr. through 2.995kr.

Novel sokkaprjónarnir frá Addi eru krómlitaðir, framleiddir úr látúni (messing).

Eins og Novel hringprjónarnir, eru þeir góðir fyrir þau sem vilja prjóna fastar og/eða jafnar. Prjónarnir reyna minna á hendurnar og liðamót.

Prjónarnir henta fyrir sokkaprjón, vettlingaprjón, ermar og hálsmál.

Allir málmprjónar frá Addi eru nikkelfríir.

  • Vegna áferðarinnar er auðveldara að halda á prjónunum
  • Prjónarnir renna ekki auðveldlega úr lykkjunum
  • Það er auðveldara að prjóna jafnar
  • Oddarnir henta fyrir krefjandi prjónaverkefni

Allir prjónarnir eru merktir með stærðunum.

Framleiddir í Þýskalandi.