• LAINE TUTTUGU OG SEX Finnskt tímarit (á ensku) með prjónhönnun á heimsmælikvarða. Margir hönnuðir leggja hönd á plóg og tryggja úrval að áhugaverðum peysum og fylgihlutum. Mikil áhersla er lögð á greinagóðar uppskriftir. Þá fyglir ein mataruppskrift að auki. Stílhreint tímarit á ensku með fallegri myndatöku. Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að LAINE tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að LAINE kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur.
    • Grófleiki:  Léttband / DK
    • Innihald:  70% Falkland ull, 15% Bluefaced Leicester ull, 15% Bluefaced Kerry Hill ull
    • Lengd/þyngd:  100 g/225 m
    • Prjónar:  3 mm
    • Prjónfesta:  22 lykkjur og 33 umferðir = 10 x 10 cm
    • Þvottur:  Handþvottur við 30°C
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • THE ART OF THE SEA Höfundur: Ýmsir hönnuðir Útgefandi: Laine Publishing (2025)
    Harðspjalda | 272 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 1.300 g | Mál: 218 x 276 x 25 mm 
  • Efni úr blöndu af bómull og líni, áprentað með sashiko mynstri sem hverfur þegar það er lagt í bleyti. Þrír mismunandi litir og þrjú mynstur í boði. Mismunandi litir af sashiko útsaumsgarni eru í boði sem þið getið valið eftir smekk. Hver bútur er 32 x 32 cm auk baks í sömu stærð. Hægt er að sauma púðaver, diskamottu, bókakápu eða nota til að pakka inn gjöfum. Notið þann sashiko þráð sem ykkur hentar.
    • Innihald: 50% bómull, 50% lín
    • Stærð á pakkningu: Um 24 x 14,5 cm
    • Framleiðsluland: Japa
    • Tilbúin stærð: Um 32 x 32 cm
    • Þráður og nál fylgir ekki með
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Ástþrúður Sif Sveinsdóttir | Tvist

    Price range: 1.050kr. through 1.350kr.

    Ástþrúður Sif Sveinsdóttir | Tvist

    Falleg peysa úr smiðju Ástþrúðar Sifjar Sveinsdóttur. Við mælum með að nota í hana: Rowan Mode SOFTEST ALPACA, Kaos Yarn CHUNKY ANDEAN WOOL, Schoppel Wolle ALPACA QUEEN

    Valkostir:

    • Útprentuð uppskrift – sótt í verslun eða send frítt með öðrum vörukaupum
    • Útprentuð uppskrift, send stök með bréfpósti
    • Rafræn uppskrift, send með tölvupósti – öll fáanleg tungumál fylgja, sendar á virkum dögum

    Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads. Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar. 

    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Þetta er rafræn uppskrift. Þessi uppskrift er fáanleg á Íslensku. Við kaup á rafrænni uppskrift færð þú aðgang að öllum tungumálum sem búið er að þýða uppskriftina á.
    Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads.
    Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.
  • SOKKAUPPSKRIFT Á ÍSLENSKU
    Góðir sokkar í þremur stærðum 36, 38 og 40 fyrir 7 BRÆÐUR sokkagarnið.
    Hællinn er bandhæll með styrkingu. Þá verður hællinn þykkari, mýkri og sterkari.
    Það er sérstaklega þægilegt að fara í og úr sokkum sem eru með stroffi frá legg niður að hæl.
    Þetta verða bestu heimasokkarnir!
    Prjónastærð: 3,5 mm
    Garnmagn: 100 (100) 150 g af 7 Bræður garni
    Þið getið skoðað  7 Bræður garnið HÉR.
    Þið getið skoðað 7 Bræður Nummi garnið HÉR.
  • FRÍ SOKKAUPPSKRIFT þegar 7 BRÆÐUR garnið er keypt, gildir til 15. ágúst. Ef verslað er í vefverslun setjið þá kaðlasokkauppskrift í athugasemdir.
    SOKKAUPPSKRIFT Á ÍSLENSKU
    Góðir kaðlasokkar í þremur stærðum 36, 38 og 40 fyrir 7 BRÆÐUR sokkagarnið.
    Hællinn er bandhæll með styrkingu. Þá verður hællinn þykkari, mýkri og sterkari.
    Það er góð tilbreytinga að prjóna sokka með köðlum!
    Prjónastærð: 3,5 mm
    Garnmagn: 100 (150) 150 g af 7 Bræður / Veljestä
    Þið getið skoðað  7 Bræður garnið HÉR.
    Þið getið skoðað 7 Bræður Nummi garnið HÉR.
  • Sérhannað prjónamerki af FIREFLY fyrir fagurkera. Þetta merki eru fyrir prjónara sem elska sætar kökur! Pakkningin inniheldur eitt merki. Búin til úr málmi með emelaraðri skreytingu með hring. FIREFLY er kanadískt vörumerki.

    Fullkomin gjöf fyrir þau sem prjóna og kunna að meta fallega fylgihluti!

  • Fyrirferðarlítið prjónamál úr plasti. Þægilegt til að hafa með í prjónatöskunni. Myndin sýnir US stærðir en á hinni hliðinni eru mm stærðir.  
  • Sterkar lykkjunælur úr áli. Þrjár stærðir í þremur litum.
  • ADDI teljarinn er digital. Ýtt er á einn takka til að telja og annan til að núllstilla. Hægt að festa um fingurinn eða utan um handfang eða hafa lausan. Það getur sparað mikinn tíma í prjóni að nota teljara til að telja lykkjur eða umferðir, úrtökur eða útaukningar.
  • Addi Click Lace PRJÓNAODDAR – stuttir

    Price range: 1.495kr. through 1.795kr.
    Prjónaoddar til að festa við snúru í addiClick kerfinu. Þetta eru LACE prjónar með góðum oddi sem er mjög gott að prjóna með. Sömu gæða prjónarnir og aðrir málmprjónar frá ADDI. Lace Short prjónaodda er hægt að nota með 40cm og lengri snúrum. Snúrurnar eru seldar sér, ein í pakka eða fleiri.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Frábærar merkikrækjur, enda ein af okkar allra vinsælustu vörum. Þær eru úr efni sem endist vel (brotna ekki). Krækjurnar eru mest notaðar til að merkja umferðir, t.d. úrtökur eða útaukningar. Það eru tvær stærðir fáanlegar. Þessar eru minni. Innihald: 20 merkikræjur í tveimur litum, plastumslag til að geyma þær í fylgir. Athugið að það er betra að hafa krækjurnar lokaðar þegar þær eru ekki í notkun.
  • Merkikrækjur í mismunandi litum fyrir prjónið og heklið. Það er líka hægt að nota merkin opin. Lögunin á merkinu kemur í veg fyrir að það teygist á prjónuðum lykkjum. Hentugt box til að geyma merkin. Innihald: 36 stk. í boxi
    • Lítil: 10 stk.
    • Miðstærð: 20 stk.
    • Stór: 6 stk.
  • Góður skurðarhnífur með 45mm blaði fyrir alla námkvæmisvinnu í bútasaumi. Skurðarhnífar eru ómissandi áhald fyrir bútasaumara. Hnífurinn situr vel í hendi og það er auðvelt að skera fljótt og vel með honum. • Hentar bæði rétthentum og örvhentum. Hlífinni er einfaldlega snúið eftir því hvor höndin er notuð. • Sker vel sama hvernig hnífnum er beitt; lóðrétt eða á ská, því blaðhlífin hefur nægilegt svigrúm en blaðið sjálft nær mátulega langt út fyrir brúnina til að gæta öryggis. • Gripið á handfanginu er þægilegt með stömum en mjúkum snertiflötum. • Hægt að stilla hve hratt skurðarblaðið rennur. Ef skrúfan er hert hægist á blaðinu sem auðveldar skurð á þykkari efnum.
  • Nálaþræðari sérstaklega hannaður fyrir útsaumsgarn og útsaumsnálar. Endinn á þræðaranum er flatur svo auðvelt sé að þræða, jafnvel þótt garnið sé gróft.
    • Útsaumsnálar með stóru auga.
    • Nálarnar renna vel í gegnum efni.
    • Nálarnar eru með gyllt auga sem auðveldara er að þræða.
    • Nálarnar eru sérstaklega hertar svo þær bogna hvorki né brotna.
    • Nálaroddarnir eru beittir.
  • Má kynna þig fyrir Della Q Hook & Needle Notebook eða áhaldamöppunni, sem er hönnuð til að einfalda líf þeirra sem prjóna og hekla. Þetta er skipulagsmappa með síðum/spjöldum sem hefur hver með sinn tilgang og geymir á vísum stað heklunálar, prjóna, smáhluti, uppskriftir/mynstur o.fl. Hver mappa inniheldur fjórar síður og bráðlega verður einnig hægt að fá stakar viðbótarsíður. Á innanverðri kápunni eru tvær frágangsnálar, málband, skæri og þægilegur renndur vasi fyrir alls konar smádót. Flettið í gegnum allar myndirnar til að skoða innihald möppunnar. Þessi mappa er vönduð og gerð til að endast. Síður sem fylgja með Hook & Needle Notebook eru:
    • fyrir sokkaprjóna eða heklunálar
    • fyrir heklunálar eða prjónaodda
    • fyrir hringprjóna eða fylgihluti
    • innbyggður gegnsær renndur poki
    STÆRÐ | 26,7 cm (hæð) x 23 cm (breidd) x 6,5 cm (dýpt)
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Afsláttur!

    Cocoknits FYLGIHLUTAHIRSLA

    Original price was: 6.995kr..Current price is: 4.897kr..
    Efni: Sterkur pappír sem hægt er að þvo. Innihald: Fjögur hólf, þríhyrningslaga sem lokast eins og umslag með smellum. Þrjár marglitar teygjur sem er hægt að nota á ýmsa vegu. Utan um hvern hólk er beinhvít teygja. Stærð: Ytri mál eru 16,5 cm x 6,3 cm x 6,3 cm. Innri mál hvers hólks eru 14,5 cm x 4,5cm x 2,5 cm. Hugmyndin á bak við hönnunina er að halda skipulagi á smáhlutunum. Setjið prjónamerkin og annað sem fylgir ykkur í hólfin, takið öll með eða bara eitt með því sem skiptir máli hverju sinni, því þau eru fest saman með smellum. ATH. Innihald sem sést á mynd fylgir ekki með.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Holoshimmer er glitþráður úr  60% polyester og 40% polyethylene. Glitþráðinn er hægt að nota í vélsaum, handsaum og leggja með garni í prjón og hekl. Það glitrar hæfilega á hann og af því hann er svo fíngerður þá hefur hann engin áhrif á prjónfestuna. Upplagt þegar óskað er eftir smá gliti t.d. í mynsturkafla á peysu. 200m í kefli.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Nálahús með 3 jafanálum. Bogni oddurinn gerir það auðveldara að þræða nálina í gegnum lykkjur. Nálarhúsið er með áskrúfuðu loki sem geymir nálarnar vel. Nálarnar eru nr. 15 (2 stk.) og nr. 17 (1 stk.). Fleiri nálahús með nálum fáanleg:
    • Jafanálasett (# 339)
    • Jumbo jafanálasett (# 340)
    • Jafanálasett með fínum nálum (# 3168)
     
  • Þessar fingurbjargir sameina mýkt, teygjanleika og góða vörn. Á endanum er málmplata sem verndar fingurinn og gúmmíhlutinn hleypir lofti í gegn. Teygjanleikinn auðveldar fingurbjörginni að laga sig að fingrinum. Léttar og notendavænar. Mál
    • Lítil (#6025) - 14,5 mm
    • Miðstærð (#6026) - 15,5 mm
    • Stór (#6027) - 17 mm
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Auðveldar að ná taki á nálinni. 2 stk. í pakka.
    • Með fingurbjörgina á vísifingri er auðveldara að draga nálina í gegnum efnið.
    • Sveigjanleg svo hún passi betur á fingurinn.
    • Örsmá göt svo fingurbjörgin andi.
    Fást í tveimur stærðum
    • Miðstærð (#6031) - 16 mm
    • Stór (#6032) - 18 mm
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
Go to Top