• Útsaumshringur Ø 18 cm, heldur efninu vel strekktu. Auðvelt að herða og losa. Sérstaklega hannað fyrir útsaum með flosnál, hringurinn stendur á fótum sem hægt er að hækka og lækka eftir þörfum.
  • Saumaðu út á einfaldan hátt með því að þrýsta nálinni í gegnum strekkt efni. Strekktu efnið á útsaumshring og teiknaðu með nálinni! Innihald
    • Flosnál með handfangi
    • Hringur, jafanál og þræðitvinni
    Notkun
    1. Þrýstu nálinni í gegnum vel strekkt efni og dragðu upp.
    2. Renndu nálinni eftir efninu og endurtaktu.
    Garn
    • Léttband (medium eða DK) til stórband (bulky) garn.
    Heppileg efni
    • Grófur panamajafi (monk cloth) fæst í Storkinum.
     
  • MOUCHE & FRIENDS Höfundur: Cinthia Vallet Útgefandi: Laine Publishing (2023)
    Mjúkspjalda | 216 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 605 g | Mál: 192 x 225 x 20 mm 
  • Höfundur: ROWAN Útgefandi: Rowan (2023)
    Mjúkspjalda | 161 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 850 g | Mál: ‎240 x 310 mm ROWAN tímaritin koma út tvisvar á ári, vor- og sumarblað og haust- og vetrarblað. Hver tímarit er fullt af uppskriftum fyrir dömur og herra, peysur og fylgihlutir eftir helstu hönnuði Rowan hvers tíma. Flestar uppskriftirnar eru fyrir prjón en það eru einnig hekluppskriftir inn á milli. Í nýjustu blöðunum hefur peysum sem eru prjónaðar í hring og jafnvel ofan frá fjölgað. Storkurinn er ein af fáum garnbúðum sem hafa selt Rowan garn og tímarit frá upphafi Rowan. Við eigum því sýnishorn af öllum útgefnum blöðum og mörg þeirra eru enn í sölu. Hér getið þið séð yfirlit yfir innihald ROWAN #73.
  • Grófar frágangsnálar fyrir prjón, hekl og annað. Nálahús fylgir með.
  • Faldalím eða straulím til að falda buxur, pils, kjóla eða jafnvel gluggatjöld. Einfald og þægilegt, enginn saumaskapur, bara straujárn! Breidd 3 cm Lengd 10 m
  • Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Þessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Afsláttur!

    Della Q Maker’s Canvas TOTE

    Original price was: 26.995kr..Current price is: 18.897kr..
    Þetta er rúmgóð hliðartaska með góðu handfangi. Vandlega handunnin taska þar sem hugað er að öllum smáatriðum. Nútímaleg og hefðbundin í senn, taska sem hefur mikið notagildi og fer aldrei úr tísku! Hugsuð fyrir prjónaverkefnið eða hvað sem er. Góð handtaska fyrir hversdagslífið. Hönnuð fyrir skapandi einstaklinga á ferðinni. Framleiðandinn hefur sjálfbærni að leiðarljósi við framleiðslu þessarar tösku. Hver taska er handunnin og tímalaus hönnun.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Afsláttur!

    Della Q Maker’s Canvas SATCHEL

    Original price was: 29.995kr..Current price is: 20.997kr..
    Maker's Canvas Satchel taskan er fyrir þá sem vilja það besta. Hún er hönnuð í anda gömlu læknataskanna. Hún opnast vel og helst opin þannig að auðvelt er að hafa yfirlit yfir allt innihaldið. Botninn er flatur og því stendur taskan vel og getur virkað sem karfa á meðan prjónað er. Tvær krækjur loka töskunni, það er fullt af vösum og stöðum til að geyma allt smádótið og verkefnin. Bryddingar, höldur o.fl. eru úr leðri með festingum úr antík bronsi. Hugað  er að öllum smáatriðum. Taskan er nútímaleg og hefðbundin í senn, hefur mikið notagildi og fer aldrei úr tísku! Góð handtaska fyrir prjónalífið og hversdagslífið. Hönnuð fyrir skapandi einstaklinga á ferðinni. Framleiðandinn hefur sjálfbærni að leiðarljósi við framleiðslu þessarar tösku. Hver taska er handunnin og tímalaus hönnun.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Höfundur: NOVITA Útgefandi: Novita (Haust 2023)
    Tungumál: Enska, þýska & hollenska (sama heftið) Þyngd: 475 g | Mál: 21 x 27 mm NOVITA gefur reglulega út prjónahefti með uppskriftum. Í þessu hefti eru 12 uppskriftir af peysum og fylgihlutum. Peysurnar eru allar stílhreinar og klassískar kvenpeysur sem hafa mikið notagildi. Uppskriftirnar eru á þremur tungumálum; ensku, hollensku og þýsku.
    Novita Essentials inniheldur uppskriftir fyrir byrjendur og lengra komna prjónara. Athugið að myndirnar eru af áhugasömum prjónurum sem hafa sent Novita sína útfærslu af peysum úr heftinu.
  • Textíllím, fljótandi í túbu. Hægt að nota á alls konar textílefni, bætur, leður, PVC plast o.m.fl. Límið festist hratt og varanlega, þolir þvott að 40°C og samskeytin með líminu halda sveigjanleika sínum.
  • Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Skoða fleiri uppskriftir frá PetiteKnit sem þýddar hafa verið á íslensku HÉR. 

    Valkostir:

    • Útprentuð uppskrift, val um ensku eða dönsku  – sótt í verslun eða send frítt með öðrum vörukaupum
    • Útprentuð uppskrift, send stök með bréfpósti
    • Rafræn uppskrift, send með tölvupósti – öll fáanleg tungumál fylgja, sendar á virkum dögum
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Afsláttur!

    Silfa LYKKJUMERKI / EYRNALOKKAR / PAR

    Original price was: 6.695kr..Current price is: 4.687kr..
    SILFA lykkjumerki sem er líka hægt að nota sem eyrnalokka. Fást með 18 karata gyllingu eða úr hápóleruðu læknastáli. Val um mismunandi liti í ferskvatnsperlum - seld í pörum - tvö saman.  
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • John James | JAFA- & FRÁGANGSNÁLAR

    Price range: 450kr. through 495kr.
    Jafanálar (oddlausar nálar) fyrir krosssaum eða annan útalinn útsaum, einnig frábærar í að ganga frá í prjóni. Athugið að hærra númer = fínni nál. Grófleikar í boði: #13 - 2 stk/pk #13/18 - ein af hvorum grófleika #14 - 2 stk/pk #14/18 - ein af hvorum grófleika #16 - 5 stk/pk #18 - 6 stk/pk #20 - 6 stk/pk #22 - 6 stk/pk Veljið hér fyrir neðan:
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim.

    Valkostir:

    • Útprentuð uppskrift, val um dönsku – sótt í verslun eða send frítt með öðrum vörukaupum
    • Útprentuð uppskrift, send stök með bréfpósti
    • Rafræn uppskrift, send með tölvupósti – öll fáanleg tungumál fylgja, sendar á virkum dögum
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Þessar sveigjanlegu segulklemmur (2 í pakka) eru einföld leið til að geyma alls konar áhöld á sínum stað. Segullinn sem er í sitt hvorum endanum loða hvor við annan eða við alla stálfleti. Notkun: Festið penna við  SEGULBRETTIÐ eða VERKEFNAMÖPPUNA, skipuleggðu hringprjónasnúrur, festið UMFERÐATELJARA á uppskriftina, hafið prjónamerki við höndina eða hafið stjórn á hleðslusnúrunni. Það kemur á óvart hve nytsamlegar segulklemmurnar eru. Innihald:
    • Sveigjanlegar klemmur með seglum í sitt hvorum enda
    • Mál:
      • 9 cm x 2 cm
    Valkostir:
    • Tvær segulklemmur
    • Litaval:
      • Colorful
        • Ein í lit Wild Rose (bleikt) og ein í lit Duck Egg (ljósblágrænt)
      • Neutral
        • Ein í lit Storm (grátt) og ein í lit Linen (fölgrátt)
      • Earth Tones
        • Ein í lit Clay (leirbrúnt) og ein í Mustard Seed (sinnepsgult)
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Peysan SIF er klassísk peysa eftir Helgu Thoroddsen. Notuð er tengiaðferð til að prjóna hálsmál, axlir og efri hluta erma. Allt prjónað, ekkert saumað saman. Peysur með þessu sniðu smellpassa og eru mjög klæðilegar.
    Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku.  Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðin birtist einnig í tölvupóstinum sem þið fáið eftir kaupin. Hægt er að hlaða uppskriftinni í tölvuna, spjaldtölvuna eða símann allt að fimm sinnum.
  • Peysan ÁRÓRA er klassísk peysa eftir Helgu Thoroddsen. Notuð er tengiaðferð til að prjóna hálsmál, axlir og efri hluta erma. Allt prjónað, ekkert saumað saman. Peysur með þessu sniðu smellpassa og eru mjög klæðilegar.
    Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku.  Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðin birtist einnig í tölvupóstinum sem þið fáið eftir kaupin. Hægt er að hlaða uppskriftinni í tölvuna, spjaldtölvuna eða símann allt að fimm sinnum.
  • Höfundur: Kotomi Hayashi
    Ùtgefandi: Tuttle Publishing (2023)
    Harðspjalda | 96 bls. Þyngd: 780 g |  Mál: ‎216 x 279 x 16 mm 

    55 Fantastic Japanese Knitting Stitches

    • Falleg mynstur sem eru eins báðum megin.
    • Mynstur sem setja þrívídd í prjónið
    • Nýlegar útfærslur á klassísku prjóni, svo sem köðlum og öðru áferðarprjóni
    • Mynstur og lykkjur í óvanalegum litasamsetningum sem gefa endalausa möguleika fyrir sköpunargleðina
     
  • ANCHOR árórugarn er 6 þráða útsaumsgarn úr 100% egypskri hágæða bómull. Garnið er spunnið úr extra löngum, fíngerðum þráðum og merseríserað tvisvar sem gefur garninu gljáa, styrk og litunum dýpt. Útsaumsgarnið fæst einlitt í yfir 400 litum og nokkrum marglitum. Árórugarn hentar í alls konar útsaum, úttalin spor sem og frjálsan útsaum. Garnið er klofið og notaðir einn eða fleiri þræðir eftir grófleika jafans sem saumað er í. ANCHOR árórugarn er sambærilegt í gæðum við annað árórugarn á markaðnum. Fyrir þá sem þurfa er hægt að fá upplýsingar um hvernig er hægt að para saman litnúmer á milli kerfa eða framleiðenda. ANCHOR árórugarn þolir þvott í allt að 95°C heitu vatni.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Fallegur skreyttur taupoki með teljara úr Mindful línunni. Telur upp í 99.  
  • Líðtið og létt prjónamál sem mælir prjónastærðir 2 mm - 15 mm.
    • Sokkar í kvenstærð fyrir NORO Silk Garden Sock  garnið sem fæst bæði einlitt og kaflalitað.
    • Þessir sokkar eru prjónaðir frá sokklegg og niður.
    • Það fylgir teikning af mynstrinu.
    • Það þarf eina 100 g hnotu af NORO Silk Garden Sock garninu í sokkapar. Ef notað er kaflalitað garn og sokkarnir eiga að vera eins þarf 200 g (þá er afgangur í annað sokkapar).
    • Prjónastærð er 3,5 mm eða sú stærð sem þarf til að ná réttri prjónfestu.
    UPPSKRIFTIN ER Á ÍSLENSKU ATH. Ef þið kaupið NORO Silk Garden Sock garn í sokkana fylgir uppskriftin með FRÍTT. Veljið garnið, setjið í körfu og setjið í skilaboðagluggann hvaða uppskrift þið veljið með (fimm mismunandi í boði). Uppskriftin verður send í tölvupósti um leið og varan er afgreidd. NORO Sokkauppskrift: FLOTLYKKJUR (prjónaðir frá sokklegg) NORO Sokkauppskrift: HLYNUR (prjónaðir frá tá) NORO Sokkauppskrift: LAUF (prjónaðir frá sokklegg) NORO Sokkauppskrift: SNÚRA (prjónaðir frá sokklegg) NORO Sokkauppskrift: STUÐLAR & GÖT (prjónaðir frá sokklegg)  
    • Sokkar í kvenstærð fyrir NORO Silk Garden Sock  garnið sem fæst bæði einlitt og kaflalitað.
    • Þessir sokkar eru prjónaðir frá sokklegg að tá.
    • Það fylgir teikning af mynstrinu.
    • Það þarf eina 100 g hnotu af NORO Silk Garden Sock garninu í sokkapar. Ef notað er kaflalitað garn og sokkarnir eiga að vera eins þarf 200 g (þá er afgangur í annað sokkapar).
    • Prjónastærð er 2,75 mm eða sú stærð sem þarf til að ná réttri prjónfestu.

Go to Top