-
KNIT PRO Cubics hringprjónar eru úr birki og eru ferkantaðir. Áferðin er slétt og mjúk en kantarnir hindra að lykkjurnar renni of auðveldlega á prjónunum. Þess vegna er líklegra að prjónfestan verði þéttari með Cubics prjónum en hefðbundnum prjónum í sama grófleika. Þessir prjónar hafa fengið góð meðmæli frá þeim sem prjóna laust og eiga erfitt með að halda þétt um prjónana. Hægt er að fá Cubics sokkaprjóna, bæði stutta og langa. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. Knit Pro prjónarnir eru framleiddir í Indlandi við bestu mögulegar aðstæður fyrir starfsfólk. Þar á sér stað stöðug vöruþróun og þarfir prjónara eru alltaf í fyrirrúmi -
CLOVER Soft Touch heklunálar eru einstaklega þægilegar í notkun. Krókurinn er mátulega beittur svo auðvelt er að stinga honum í gegnum lykkjuna án þess að kljúfa garnið. Áferðin á málmhlutanum er hæfilega sleip þannig að lykkjurnar renna vel en haldast samt á sínum stað. Snilldarhönnun sem gerir heklið skemmtilegra. Handfangið er með gripfleti úr mjúku efni svo nálin sitji vel í hendi. Það er reynsla margra að Clover heklunálar reyni minna á hendurnar og þá verður auðveldara að hekla lengur áreynslulaust. Hægt er að kaupa Soft Touch heklunálar í stærðum 0,5mm til 6mm. -
Symfonie DREAMZ prjónaoddarnir eru úr birki, hver grófleiki í sérstökum lit og fást í tveimur lengdum. Þessir eru 13 cm eða lengri og passa fyrir 60 cm og lengri snúrur. Hægt er að nota oddana á allar aðrar lengdir af snúrum eftir þörfum. Prjónaoddarnir eru skrúfaðir á snúrur sem fást í nokkrum lengdum. Snúrumegin við samskeytin eru göt þar sem meðfylgjandi pinna er stungið inn í til að herða og losa. Við mælum með því að pinninn sé alltaf notaður til og losa og festa prjónaodda og snúrur, annars getur prjónninn losnað á meðan prjónað er. Þægindin við að nota samsetta prjóna eru ótvíræð. Þá þarf maður ekki að eiga næstum eins marga prjóna, því samsetningarmöguleikarnir eru svo miklir. -
KnitPro DREAMZ hringprjónar er úr birki með góðum oddi, sléttri áferð og lipurri snúru. Uppáhaldsprjónar margra. Hægt er að fá Dreamz sokkaprjóna, styttri og lengri, og prjónaodda og snúrur til að skrúfa saman. Hver grófleiki er í sérstökum lit. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. Prjónarnir eru til í 40 cm, 60 cm og 80cm lengdum. Knit Pro prjónarnir eru framleiddir í Indlandi við bestu mögulegar aðstæður fyrir starfsfólk. Þar á sér stað stöðug vöruþróun og þarfir prjónara eru alltaf í fyrirrúmi. -
Prjónasnúrur fyrir Knit Pro prjónaoddana. Þessar eru úr stálvír sem er nælonhúðaður og þær eru "minnislausar". Snúran snýst 360° við samskeytin sem minnkar verulega líkurnar á því að prjónninn losni. En eins og í öllum samsettum prjónum frá Knit Pro þarf að nota sérstakan pinna til að herða og losa þegar skipt er um prjón (ef pinninn týnist er alltaf hægt að nota nál). Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. Snúrurnar fást í lengdum til að mynda 40cm, 50cm, 60cm, 80cm og 100cm. Einnig er hægt að nota snúrurnar til að geyma lykkjur því það fylgja tveir tappar með hverri snúru. Þá er líka hægt að fá millistykki til að tengi saman tvær snúrur eða tengja eina snúru í hring til að geyma lykkjur. -
SOAK 375ml er flaska sem dugar í 75+ þvotta. Hvað er Soak? Soak er nútíma þvottalögur sem er umhverfisvænn. Þvottur með Soak er þægilegur, því ekki þarf að skola. Þú leggur í bleyti, setur teskeið af Soak og lætur liggja í 20-30 mínútur. Mikilvægt að hafa vatnið ylvolgt eða kalt. Sparar tíma og vinnu við handþvott og fer vel með flíkina/prjónaverkefnið. Soak er frábær þvottalögur til nota fyrir allt sem við prjónum, heklum eða saumum. Allt annað sem er viðkvæmt s.s. fínn undirfatnaður, mjúkar peysur, ungbarnafatnaður, bútasaumsteppi, sundföt, líkamsræktarfatnaður og allt annað sem þú vilt fara sérstaklega vel með. Notkun: Leggja í bleyti og kreista. Þarf ekki að skola. Leggja flatt til þerris. Alltaf skynsamlegt að kanna hve litekta flík er áður en hún er lögð í bleyti. -
- Grófleiki: Smáband /sport
- Innihald: 40% ull, 25% silki, 25% nælon, 10% mohair
- Lengd/þyngd: 300m/100g
- Prjónar: 3-4 mm
- Prjónfesta: 23-26 lykkjur = 10 cm
- Þvottur: Handþvottur 30°C
-
Vinsældir ADDI Novel hringprjónanna aukast stöðugt. Þeir eru hrufóttir með góðum oddi, úr málmi og lykkjurnar renna ekki eins vel á þeim sem gerir þá mjög hentuga fyrir þau sem vilja prjóna þéttar/fastar. Prjónaoddarnir eru léttir úr kopar, húðaðir með hvítu bronsi. Snúrurnar eru mjúkar og samskeyti snúru og prjóns slétt. ADDI prjónarnir eu hannaðir og framleiddir í Þýskalandi fyrir prjónara sem vilja aðeins bestu gæði. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. -
Petite Knit | Cumulus Blouse O-Neck
Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Skoða Cumulus Blouse með V hálsmáli. Þetta er rafræn uppskrift.
Þessi uppskrift er fáanleg á Íslensku. Við kaup á rafrænni uppskrift færð þú aðgang að öllum tungumálum sem búið er að þýða uppskriftina á.
Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads.
Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.
-
Útsaumsgarn úr 100% bómull. Hentar vel fyrir japanskar útsaumsaðferðir eins og Sashiko og Boro en einnig allan annan útsaum. Þráðurinn er 6-faldur, en saumað er úr honum óklofnum. Hvert spor mun sjást vel og hentar því fyrir stórgerðari mynstur. Hvert spjald inniheldur 30 m. Garnið kemur á spjöldum sem auðveldar að geyma garnið og hafa skipulag á litunum. Margir litir í boði. Framleiðsluland: Japan
