• Afsláttur!

    POMPOM magazine #41

    Original price was: 4.200kr..Current price is: 2.520kr..
    POMPOM #41 - sumar 2022. Nú í stærra broti! Árstímabundin tímarit frá Bretlandi, uppfull af áhugaverðri prjónhönnun. Ritstjórarnir velja til samstarfs mismunandi hönnuði hverju sinni og reyna að hafa gott úrval af peysum og fylgihlutum. Vel gerðar uppskriftir, klassískar í bland við nýstárlegar. Eitthvað fyrir alla! Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að POMPOM tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að POMPOM kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur.
  • Eco Vita #3. The Mender's Wardrobe

    Útsaums- og mynsturbók frá DMC í Eco Vita línunni. Hér geta þau sem vilja lengja líf flíkanna sinna eða endurnýjað og skreytt með útsaumi fengið fullt af flottum hugmyndum. Í bókinni eru 21 hugmynd til að fegra og gera við fatnað með stæl. Hver flík mun endurspegla skapandi lífstíl og sjálfbærni! Allur útsaumur gerir ráð fyrir að notað sé DMC Eco Vita organic útsaumsgarnið.
  • Eco Vita #1. The Botanist's Cabinet

    Útsaums- og mynsturbók frá DMC í Eco Vita línunni. Mynstur furor b´æði frjálsan útsaum og krosssaum. Fjórtán mismunandi mynstur, hvert og eitt með góðum útskýringum, og myndum. Mynstrin eru öll saumuð með DMC Eco Vita organic útsaumsgarninu.  
  • Afsláttur!

    POMPOM magazine #39

    Original price was: 4.295kr..Current price is: 2.577kr..
    POMPOM #39 - vetur 2021. Árstímabundin tímarit frá Bretlandi, uppfull af áhugaverðri prjónhönnun. Ritstjórarnir velja til samstarfs mismunandi hönnuði hverju sinni og reyna að hafa gott úrval af peysum og fylgihlutum. Vel gerðar uppskriftir, klassískar í bland við nýstárlegar. Eitthvað fyrir alla! Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að POMPOM tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að POMPOM kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur.
    • Grófleiki: Fínband / fingering / 4 ply
    • Innihald: 100 % ull
    • Lengd/þyngd: 400m/100g
    • Prjónar: 2 – 3 mm
    • Prjónfesta: 30-36 lykkjur = 10 cm eftir grófleika prjóna
    • Þvottur: Handþvottur
    Ath. þetta garn er líka gott í ullarútsaum!
  • Höfundur: Lene Holme Samsøe
    Útgefandi: Lene Holme Samsøe (2013) Mjúkspjalda | 42 bls. Tungumál: Danska Þyngd: 168 g
    BABYSTRIK på pinde 3,5-4 er eitt af mörgum uppskrftaheftum eftir hina vinsælu Lene Holme. Hér eru uppskriftir af peysum, buxum og húfum og fleiru fyrir 0 - 2 ára börn. Falleg, tímalaus hönnun á ungbörnin. Allar uppskriftirnar eru fyrir sama grófleika af garni eða léttband/DK, garn með prjónfestuna 22 lykkjur = 10 cm í sléttprjóni.  Uppskriftirnar eru vel útfærðar og myndefni er fjölbreytt.
  • Merchant & Mills skæri - 10 cm. Frábær skæri; beitt og svört með slétta áferð. M-ið stendur fyrir Merchant & Mills sem er þekkt, breskt fyrirtæki sem leggur áherslu á að gera upplifun þeirra sem sauma skemmtilega.
  • Lykkjusnúrur / prjónasnúrur / geymslusnúrur. Snúrurnar eru úr sílíkóni og gefa því vel eftir. Prjónaoddinum er þrýst inn í hola snúruna og lykkjurnar dregnar varlega yfir. Þegar snúran er losuð er besta að ýta snúrunni til baka með nöglinni, ekki toga í hana. Þægilegt að nota þegar peysur eru prjónaðar ofan frá. Hægt að færa hluta af lykkjunum eða allar yfir á snúruna á meðan mátað er. Lykkjur bols og/eða erma eru einnig  hægt að geyma tímabundið á snúrunum ef nota þarf prjóninní annað verkefni. Seldar í boxi - 3 stk. (1 x 150 cm, 2 x 75 cm). 10 litir í boði.
  • Hefðbundin storkaskæri eru ekki bara falleg heldur góð fyrir útsauminn eða til að klippa spotta. Stærð: 9 cm.
  • Fallegur skreyttur taupoki með úrvali af 100 prjónamerkjum úr Mindful línunni. Hringir í þremur stærðum, 20 stk. af hverri. Opnir hringir; 20 stk. Krækjur; 20 stk. Fimm nælur til geyma merkin eða nota sem lykkjunælur.  
  • Búið til skúfa með alls konar garni! Hægt að nota útsaumsgarn, prjónagarn eða hvað sem ykkur dettur í hug. Sniðugt að eiga skúfa til að merkja/skreyta skærin og önnur áhöld. Hér er PDF skjal með leiðbeiningum um hvernig skúfarnir eru búnir til með þessu áhaldi: SKÚFAGERÐ.
  • Afsláttur!

    Radåm 03 CONFIDENCE

    Original price was: 4.395kr..Current price is: 2.637kr..
    Radåm er nýtt og spennandi tímarit fyrir prjónara sem vilja hafa puttann á púlsinum í nýrri prjónhönnun.
  • ADDI Crasy Trio eru þríprjónar eða þrír bognir prjónar með stuttri snúru í miðjunni. Þeir eru 23cm langir og hver prjónn er með einum beittum oddi og einum bljúgum. Þannig er hægt að velja hvorum oddinum er prjónað með. Þeir henta í sokkaprjón, vettlingaprjón og ermaprjón á barnapeysum. Fást í 2 - 5 mm. Fást einnig 26cm langir.
  • Merkikrækjur í mismunandi litum fyrir prjónið og heklið. Það er líka hægt að nota merkin opin. Lögunin á merkinu kemur í veg fyrir að það teygist á prjónuðum lykkjum. Hentugt box til að geyma merkin. Innihald: 36 stk. í boxi
    • Lítil: 10 stk.
    • Miðstærð: 20 stk.
    • Stór: 6 stk.
    • Lykkjustopparar fyrir prjóna 2mm - 10mm.
    • 6 stærðir; 4 stk. af hverri stærð = 24 lykkjustopparar.
    • Framleitt úr umhverfisvænu efni.
    • Notkun: Setjið stopparann alla leið upp á prjóninn til að halda við lykkjurnar. Hægt að nota á sokkaprjóna og hringprjóna. Setjið á hringprjóna eða snúru af samsettum prjónum að halda lykkjunum öruggum á meðan peysan er mátuð.
  • Fingurbjargir úr leðri sem laga sig að fingrinum.  Það eru engir saumar á því svæði sem nálin snertir.  Einstök lögunin myndar sléttan flöt yfir fingurgóminn.
    • Engir saumar eða spor sem hindra þegar þrýst er á nálina.
    • Saumaðir í þrívídd svo þær passi betur á fingurinn.
    • Tvöfalt leður fyrir öryggið.
    Mál
    • Lítil (#6028) - 14,5 mm
    • Miðstærð (#6029) - 16 mm
    • Stór (#6030) - 17,5 mm
  • Útsaumshringur Ø 18 cm, heldur efninu vel strekktu. Auðvelt að herða og losa. Frábært fyrir allan venjulegan útsaum með nál, en líka með flosnál og couture nál (þar sem efnið þarf að haldast vel strekkt).
  • Inniheldur:
    • 6 kringlótta segla í 6 mildum litum.
  • Panamajafi úr beinhvítri bómull. Selt í pakkningu með 50 x 65 cm. Grófleiki 4,4 þræðir/1 cm. Jafi fyrir krosssaum og önnur úttalin útsaumsspor. Jafinn er það þéttur að hann gæti líka hentað í frjálsan útsaum.  
  • Panamajafi úr hvítri bómull. Selt í pakkningu með 50 x 65 cm. Grófleiki 4,4 þræðir/1 cm. Jafi fyrir krosssaum og önnur úttalin útsaumsspor. Jafinn er það þéttur að hann gæti líka hentað í frjálsan útsaum.  
  • Höfundur: NOVITA Útgefandi: Novita (Haust 2023)
    Tungumál: Enska, þýska & hollenska (sama heftið) Þyngd: 475 g | Mál: 21 x 27 mm NOVITA gefur reglulega út prjónahefti með uppskriftum. Í þessu hefti eru 12 uppskriftir af peysum og fylgihlutum. Peysurnar eru allar stílhreinar og klassískar kvenpeysur sem hafa mikið notagildi. Uppskriftirnar eru á þremur tungumálum; ensku, hollensku og þýsku.
    Novita Essentials inniheldur uppskriftir fyrir byrjendur og lengra komna prjónara. Athugið að myndirnar eru af áhugasömum prjónurum sem hafa sent Novita sína útfærslu af peysum úr heftinu.
  • Þægileg þríhyrnd prjónamerki sem koma í 6 litum. Þau eru úr nælonhúðuðu stáli og festast við segul eins og t.d. segularmbandið sem fæst líka frá Cocoknits. Boxið inniheldur:
    • Stór prjónamerki fyrir allt að 9 mm prjóna - 3 stk. í 6 mismunandi litum = 18 stk.
    • Meðalstór prjónamerki fyrir allt að 6 mm prjóna - 3 stk. í 6 mismunandi litum = 18 stk.
    • Lítil prjonamerki fyrir allt að 4 mm prjóna - 3 stk. í 6 mismunandi litum = 18 stk.
    • Samtals 54 prjónamerki.
  • Fjórir feitir fjórðungar; hver 50 x 55 cm eða samtals 1 metri af bómullarefni frá Makover.
  • Eco Vita #2. The Forester Wall

    Útsaums- og mynsturbók frá DMC í Eco Vita línunni. Í bókinni eru 19 mynstur fyrir frjálsan útsaum, krosssaum og flos, allar í anda náttúrunnar; skógar, engi og blóm. Allur útsaumur gerir ráð fyrir að notað sé DMC Eco Vita organic útsaumsgarnið.
Go to Top