Þægileg prjónamerki sem koma í 6 litum. Þau eru búin til úr nælonhúðuðu stáli og festast við segul.
Þvermál: 9mm.
-
Prjónamerkin eru búin til úr stáli með gull, silfur eða koparlitaðri húð og festast við segul. Í pakkningunni eru: Stórir hringir fyrir allt að 10 mm prjóna, litlir hringir fyrir allt að 5,5 mm prjóna og merkikrækjur fyrir allt að 8 mm prjóna. Samtals 54 merki í öskju úr kraftpappír með segulloku.
- 6 gulllitaðir, silfurlitaðir og koparlitaðir minni hringir.
- 6 gulllitaðir, silfurlitaðir og koparlitaðir stærri hringir.
- 6 gulllitaðar, silfurlitaðar og koparlitaðar merkikrækjur.
-
Þægileg þríhyrnd prjónamerki sem koma í 6 litum. Þau eru úr nælonhúðuðu stáli og festast við segul eins og t.d. segularmbandið sem fæst líka frá Cocoknits. Boxið inniheldur:
- Stór prjónamerki fyrir allt að 9 mm prjóna - 3 stk. í 6 mismunandi litum = 18 stk.
- Meðalstór prjónamerki fyrir allt að 6 mm prjóna - 3 stk. í 6 mismunandi litum = 18 stk.
- Lítil prjonamerki fyrir allt að 4 mm prjóna - 3 stk. í 6 mismunandi litum = 18 stk.
- Samtals 54 prjónamerki.
-
Löngu Cubics sokkaprjónarnir frá Knit Pro eru góðir í sokkaprjón, vettlingaprjón, ermar og hálsmál. Cubics prjónar eru ferkantaðir prjónar úr birki, hafa slétta og mjúka áferð og oddarnir eru góðir. Cubics prjónar hentar þeim sem prjóna laust eða halda laust um prjónana og þeim sem vilja prjóna þéttar. Lögunin á prjónunum veldur því að það er þægilegt að halda á þeim, gripið þarf ekki að vera eins þétt og þeir renna síður í höndunum. Prjónastærðin er mæld með sama hætti og ávölu, venjulegu prjónarnir. Fást einnig 15 cm langir. Knit Pro prjónarnir eru framleiddir í Indlandi við bestu mögulegar aðstæður fyrir starfsfólk. Þar á sér stað stöðug vöruþróun og þarfir prjónara eru alltaf í fyrirrúmi.
-
Útsaumshringur úr tré með góðum festingum (hægt að herða með fingrum og/eða skrúfjárni ef þarf), nauðsynlegt áhald fyrir þá sem sauma út. Ef útsaumsefnið er viðkvæmt er mælt með því að hringurinn sé vafinn með þunnri léreftsræmu eða t.d. teygjanlegri grisju sem fæst í apótekum. Þetta auðveldar vinnuna og heldur, sérstaklega þunnum, efnum betur strekktum og markar þau ekki. Það er mikilvægt að velja stærð útsaumshringsins í samræmi við verkefnið sem unnið er. Ef hringurinn er of lítill fyrir verkefnið fer mikill tími á að færa hringinn til og efnið getur skemmst.
-
Höfundur: NOVITA Útgefandi: Novita (Vor 2024)Tungumál: Sænska Þyngd: 350 g | Mál: 21 x 29,5 mm NOVITA tímaritin koma út fjórum sinnum á ári; vor-, sumar-, haust- og vetrarblöð. Hvert tímarit með um eða yfir 40 uppskriftum fyrir börn, fullorðna og heimilið.Uppskriftirnar eru með teikningum ef við á og er auðvelt að fylgja. Í hverju blaði er er kennsla á tiltekinni aðferð í hannyrðum.
-
Afsláttur!POMPOM # 33 - sumar 2020. Árstímabundin tímarit frá Bretlandi, uppfull af áhugaverðri prjónhönnun. Ritstjórarnir velja til samstarfs mismunandi hönnuði hverju sinni og reyna að hafa gott úrval af peysum og fylgihlutum. Vel gerðar uppskriftir, klassískar í bland við nýstárlegar. Eitthvað fyrir alla! Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að POMPOM tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að POMPOM kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur.
-
CLOVER TAKUMI bambusprjónarnir eru toppurinn, hágæða prjónar sem uppfylla ströngustu skilyrði. Áferðin er rennislétt, oddarnir hæfilega beittir, samskeyti prjónaodds og snúru alveg slétt og.... það er er sérstakt við þessa prjóna er að samskeyti odda og snúru snúast. Þessir prjónar hafa fengið hæstu einkunn í samanburðarprófum á prjónategundum. Ef þér líkar við bambusprjóna þá munu þessir verða í uppáhaldi. Slétta áferðin gerir prjónið áreynslulaust og skilar jöfnum lykkjum og snúarn snýst með og þvælist því aldrei fyrir. Oddurinn mjókkar aflíðandi fram og bláoddurinn er rúnnaður þannig að það er auðvelt að prjóna 2-3 lykkjur saman og oddurinn klýfur ekki garnið. Snúarn er glær úr næloni, samskeytin úr stáli og alveg snuðrulaus, oddurinn úr þéttasta hluta bambussins sem gerir prjóninn sterkan og endingargóðan.
-
Búið til skúfa með alls konar garni! Hægt að nota útsaumsgarn, prjónagarn eða hvað sem ykkur dettur í hug. Sniðugt að eiga skúfa til að merkja/skreyta skærin og önnur áhöld. Hér er PDF skjal með leiðbeiningum um hvernig skúfarnir eru búnir til með þessu áhaldi: SKÚFAGERÐ.
-
Afsláttur!LAINE SJÖ Finnskt tímarit (á ensku) með prjónhönnun á heimsmælikvarða. Margir hönnuðir leggja hönd á plóg og tryggja úrval að áhugaverðum peysum og fylgihlutum. Mikil áhersla er lögð á greinagóðar uppskriftir. Þá fyglir ein mataruppskrift að auki. Stílhreint tímarit á ensku með fallegri myndatöku. Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að LAINE tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að LAINE kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur.
-
Afsláttur!Höfundur: ROWAN Útgefandi: Rowan (2020)Mjúkspjalda | 65 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 410 g | Mál: 195 x 270 mm
-
Afsláttur!Höfundur: ROWAN Útgefandi: Rowan (2021)Mjúkspjalda | 152 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 400 g | Mál: 195 x 270 mm
-
Afsláttur!POMPOM # 36 - vor 2021. Árstímabundin tímarit frá Bretlandi, uppfull af áhugaverðri prjónhönnun. Ritstjórarnir velja til samstarfs mismunandi hönnuði hverju sinni og reyna að hafa gott úrval af peysum og fylgihlutum. Vel gerðar uppskriftir, klassískar í bland við nýstárlegar. Eitthvað fyrir alla! Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að POMPOM tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að POMPOM kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur.