-
Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Þessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír og er á DÖNSKU. -
Útsaumsnálar með oddi. 25 stk í pakka. Stærð 22. Fróðleikur um nálastærðir HÉR. -
Stuttu Cubics sokkaprjónarnir frá Knit Pro eru góðir í sokkaprjón, vettlingaprjón og ermar á ungbarnapeysur. Cubics prjónar eru ferkantaðir prjónar úr birki, hafa slétta og mjúka áferð og oddarnir eru góðir. Cubics prjónar hentar þeim sem prjóna laust eða halda laust um prjónana og þeim sem vilja prjóna þéttar. Lögunin á prjónunum veldur því að það er þægilegt að halda á þeim, gripið þarf ekki að vera eins þétt og þeir renna síður í höndunum. Prjónastærðin er mæld með sama hætti og ávölu, venjulegu prjónarnir. Fást einnig 20 cm langir. Knit Pro prjónarnir eru framleiddir í Indlandi við bestu mögulegar aðstæður fyrir starfsfólk. Þar á sér stað stöðug vöruþróun og þarfir prjónara eru alltaf í fyrirrúmi. -
Knit Pro DREAMZ sokkaprjónar er úr birki með góðum oddi og sléttri áferð. Uppáhaldsprjónar margra. Hægt er að fá Symfonie sokkaprjóna, styttri 15 cm og lengri 20 cm. Í DREAMZ línunni er hver grófleiki í sér lit. Knit Pro prjónarnir eru framleiddir í Indlandi við bestu mögulegar aðstæður fyrir starfsfólk. Þar á sér stað stöðug vöruþróun og þarfir prjónara eru alltaf í fyrirrúmi. -
Afsláttur!
Segularmband sem geymir nálar, títuprjóna og jafnvel lítil skæri á meðan saumað er. Þægilegt í notkun og sparar vinnu og tíma. Raufin í miðjunni auðveldar að ná takinu af nálunum/títuprjónunum. Ef eitthvað dettur á gólfið eða ofan í skúffu er leikur einn að halda seglinum nálægt og allt sem loðir við segul hoppar upp í hann! -
Hefðbundnir sokkaprjónar frá Addi sem eru góðir í sokkaprjón, vettlingaprjón, ermar og hálsmál. Colibri prjónarnir eru úr áli og hver prjónn er í sérstökum lit. Þeir hafa slétta áferð og eru léttir. Annar oddurinn er beittari og hinn er bljúgari þannig að hægt er að velja hvaða oddi er beitt eftir verkefni. Kosturinn við álprjóna er að þeir brotna ekki og allir prjónar frá Addi eru lausir við nikkel. Fást einnig 15 cm langir.