-
Knit Pro DREAMZ sokkaprjónar er úr birki með góðum oddi og sléttri áferð. Uppáhaldsprjónar margra. Hægt er að fá Symfonie sokkaprjóna, styttri 15 cm og lengri 20 cm. Í DREAMZ línunni er hver grófleiki í sér lit. Knit Pro prjónarnir eru framleiddir í Indlandi við bestu mögulegar aðstæður fyrir starfsfólk. Þar á sér stað stöðug vöruþróun og þarfir prjónara eru alltaf í fyrirrúmi. -
Knit Pro DREAMZ Symfonie sokkaprjónar er úr birki með góðum oddi og sléttri áferð. Uppáhaldsprjónar margra. Hægt er að fá Symfonie sokkaprjóna, styttri 15 cm og lengri 20 cm. Í DREAMZ línunni er hver grófleiki í sér lit. Knit Pro prjónarnir eru framleiddir í Indlandi við bestu mögulegar aðstæður fyrir starfsfólk. Þar á sér stað stöðug vöruþróun og þarfir prjónara eru alltaf í fyrirrúmi. -
3 skipti – þriðjudagar kl. 17:30 - 19:30 15., 22. og 29. september Heklnámskeið þar sem farið er í allt sem skiptir máli í hekli. Heklaðar eru prufur til að læra aðferðir en einnig er hægt að velja sér stærra verkefni ef vill og fá aðstoð við það. Eiguleg heklbók á íslensku með öllum grunnaðferðum í hekli fylgir með námskeiðinu sem og garn í prufur. Námskeiðið hentar bæði byrjendum í hekli svo og þeim sem vilja bæta við sig nýrri hekltækni eða rifja upp.Hafa meðferðis eða kaupa á staðnum: Heklunál 3,5 - 4 mm.Kennari: Sólveig Sigurvinsdóttir -
Eitt skipti – 23. september Miðvikudagur kl. 17:30 - 20:3oFalleg merki með perlusaumi. Hægt að festa t.d. á veski eða jakka.
Námskeiðslýsing Við saumum barmmerki með Miyuki perlum frá Japan. Förum yfir spor og aðferðir við perlusaum. Saumað er beint á filtefni og ekki þarf að nota útsaumshring.Val um nokkrar gerðir af merkjum.Hafa meðferðis eða kaupa á staðnum: Útsaumsskæri.Góð gleraugu ef þið þurfið, perlurnar eru mjög litlar. Allt efni er innifalið.Kennari: Magna RúnGreiðsluskilmálar vegna námskeiðsgjalda Ef ekki næst lágmarksþátttaka og námskeið er fellt niður endurgreiðum við öll námsskeiðsgjöld að fullu. Ef skráður þátttakandi á námskeiði forfallast og kemst ekki á námskeiðið þá þarf tilkynning að berast Storkinum með tölvupósti á netfangið [email protected] eigi síðar en 48 klukkustundum (tveimur sólarhringum) áður en námskeið hefst. Ef tilkynning berst síðar áskilur Storkurinn sér rétt til að innheimta 10% af námskeiðsgjaldi vegna umsýslu. -
Örnámskeið - eitt skipti Miðvikudagur 30. september kl. 17:30 - 20 Útsaumur er mjög skemmtileg iðja, ekki síst þegar hægt er að nota hann til að skreyta flíkur. Á þessu örnámskeiði ætlum við að velja mynstur úr bókinni EMBROIDERY ON KNITS eftir Judit Gummlich. Við munum fyrst og fremst nota alls konar ullargarn og sauma út í prjónaða prufu sem þið prjónið heima og komið með á námskeiðið (fyrirmæli um prufuna send í tölvupósti tímanlega fyrir námskeiðsbyrjun). Byrjum á nokkrum grunnsporum eins og varplegg, aftursting, lykkjuspori, fræhnútum 0g bætum fleiri sporum við eftir þörfum. Innifalið Bókin Embroidery on Knits (afhent þegar að námskeiðið byrjar) (ef þið eigið bókina þá getið þið valið að sleppa henni þegar þið skráið ykkur á námskeiðið) Útprentað mynstur úr bókinni til að draga í gegn Flíselín sem hverfur þegar að það er bleytt Útsaumsgarn í prufuna Útsaumsnálar Kaffi/te og meðlæti Hafa með eða kaupa á staðnum: Útsaumshringur (15-18 cm) Skæri Upplagt námskeið fyrir þau sem vilja læra eitthvað nýtt eða rifja upp útsaum.Kennari: Guðrún Hannele
