• Fatablýantur, einn í pakka, sem auðvelt er að ydda og gera fínar merkingar á efni. Auðvelt að hreinsa burt með vatni. Fyrir nákvæmar merkingar í fata- eða bútasaumi. Hægt að kaupa pakkningu með þremur fatablýöntum.
  • Áfylling á fatakrít í duftformi. Fást í 4 litum: Gul, hvít, bleik, blá og silfur. Fatakrít með lausu dufti er frábært áhald til að merkja efni. Í stað þess að draga blýant eða penna eftir efninu, er hjóli á enda krítarhylkisins rúllað til að merkja línu. Hjólið er með örlitlum götum sem hleypa krítinni út um leið og þrýst er á það. Það myndast lína með þéttum, smáum punktum. Krítin þvæst auðveldlega úr. Hægt að velja um mismunandi liti eftir lit efnisins sem vinna á með.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Merkipenni á efni. Hentar í bútasaum, fatasaum og aðra handavinnu. Merkingin fer úr þegar efnið blotnar. Sjá nánar hér fyrir neðan. Tveir grófleikar í boði
    • Merkipenni vatnsleysanlegur (fínn) - #515
    • Merkipenni vatnsleysanlegur (grófur) - #516
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Spjöld til að vefja garni utan um þegar myndprjón (intarsia) er prjónað. Það er þægilegra að vefja garni um spjöld í myndprjóni frekar en að hafa margar hnotur sem flækjast. Sex spjöld í pakka.
  • Prjónatappar koma í veg fyrir að lykkjurnar renni fram af prjóninum. Fyrir prjóna 8 mm - 10.0mm; 4 stk. í pakka.
  • Clover merkikrækjur - 20 stk. í pakka í tveimur litum. Hentug merki til að merkja úrtökur eða útaukningar á bol eða ermum.
  • Handhægur teljari sem telur uppi 99. Hægt að hafa hann um hálsinn, festa við verkefnatösku eða hafa lausann. Hægt að læsa honum þannig að talningin breytist ekki óvart í töskunni.
  • CLOVER Amour heklunálar eru einstaklega þægilegar í notkun. Krókurinn fremst er hannaður með það í huga að auðvelt sé að stinga í gegn og sækja nýja lykkju. Áferðin á málmhlutanum er hæfilega sleip þannig að lykkjurnar renna vel en haldast samt á sínum stað. Snilldarhönnun sem gerir heklið skemmtilegra og reynir minna á hendurnar. Handfang er úr mjúku efni sem er þægilegt viðkomu, rennur ekki og er hæfilega breitt og situr vel í hendi. Það er reynsla margra að Clover heklunálar reyni minna á hendurnar í hekli og þá verður auðveldara að hekla lengur áreynslulaust. Hvert númer af heklunál er í sérstökum lit. Í þessu setti eru 9 heklunálar í stærðum 2mm, 2,5mm, 3mm, 3,5mm, 4mm,  4,5mm, 5mm, 5,5mm og 6mm. Hægt er að kaupa stakar Amour heklunálar í stærðum 0,6mm til 15mm.  
  • Hringprjónar hannaðir fyrir börn og þá sem eru að læra að prjóna.  Annar oddurinn er gylltur og hinn silfraður svo ekki þurfi að vísa í vinstri og hægri prjón. Snilld!
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • ADDI Click SOS snúrur, 3/pk; 60cm, 80cm og 100cm. ADDI SOS snúrur eru eins og aðrar snúrur, nema það er lítið gat beggja vegna þar sem samskeytin eru. Götin eru til að þræða fíngert garn eða þráð í gegnum og hnýta. Síðan er umferðin prjónuð eins og venjulega. Þráðurinn er losaður og hnýttur saman. Ef villa uppgötvast er snilld að geta sleppt lykkjunum af prjóninum, rakið upp og lykkjurnar sitja öruggar á þræðinum. Þetta þarf svo að endurtaka reglulega svo ekki þurfi að rekja mjög langt niður í hvert sinn, t.d. á 10-20 umferða fresti. Það er upplagt að nota þessa aðferð við alls konar gataprjón og klukkuprjón sem getur verið erfitt að rekja upp.  
  • Aukareim í NATURAL hnotuvinduna frá Knit Pro.
  • Púðinn er saumaður á ámálaðan stramma með ullargarni. Nál fylgir og leiðbeiningar um hvernig á að sauma körfusporið (nánast eins og hálfur krossaumur) sem notað er. Hönnuður: Kaffe Fassett Stærð: 41 cm x 41 cm Þéttleiki: 30 spor / 10 cm.
  • Púðinn er saumaður á ámálaðan stramma með ullargarni. Nál fylgir og leiðbeiningar um hvernig á að sauma körfusporið sem notað er (líkist hálfu krosssaumsspori). Hönnuður: Kaffe Fassett Stærð: 41 cm x 41 cm Þéttleiki: 48 spor / 10 cm.
  • Púðinn er saumaður á ámálaðan stramma með ullargarni. Nál fylgir og leiðbeiningar um hvernig á að sauma körfusporið (nánast eins og hálfur krossaumur) sem notað er. Hönnuður: Kaffe Fassett Stærð: 38 cm x 38 cm Þéttleiki: 40 spor / 10 cm.  
  • Púðinn er saumaður á ámálaðan stramma með ullargarni. Nál fylgir og leiðbeiningar um hvernig á að sauma körfusporið (nánast eins og hálfur krossaumur) sem notað er. Hönnuður: Kaffe Fassett Stærð: 38 cm x 40 cm Þéttleiki: 40 spor / 10 cm.
    • Grófleiki:  Léttband / DK
    • Innihald:  100% extra fín merínóull
    • Lengd/þyngd:  120m/25g
    • Prjónar:  3,5-4,5 mm
    • Prjónfesta:  22 lykkjur og 34 umferðir = 10 x 10cm
    • Þvottur:  Ullarvagga 30°C
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Afsláttur!

    Special Knits

    Original price was: 3.990kr..Current price is: 1.995kr..
    Höfundur:  Debbie Bliss Útgefandi: Anova Book Company (2006)
    Mjúkspjalda | 127 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 575 g | Mál: 250 x 250 mm
    Klassísk bók frá Debbie Bliss með 22 uppskriftum fyrir yngstu börnin. Ungbarnapeysur og ungbarnateppi.
Go to Top