-
ADDI hringprjónar úr málmi. Prjónaoddarnir eru léttir úr kopar, húðaðir með hvítu bronsi. Snúrurnar eru mjúkar og samskeyti snúru og prjóns slétt. ADDI prjónarnir eu hannaðir og framleiddir í Þýskalandi fyrir prjónara sem vilja aðeins bestu gæði. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. Addi Sockwonder eru frábærir fyrir sokka, ermar, vettlinga og allt smávaxið prjónaverk. Með 70 mm lace odd og 45 mm venjulegum oddi verður mun auðveldara að prjóna fíngerðar og smágerðar flíkur.
-
- Grófleiki: Fisband / Lace
- Innihald: 60% móhár, 40% viskós
- Lengd/þyngd: 25 g/225 m
- Prjónar: 3 - 4 mm
- Prjónfesta: 23 lykkjur og 30 umferðir = 10 x 10 cm
- Þvottur: Handþvottur við 30°C
-
Bráðnauðsynlegt áhald í frágangi í prjóni er góða jafanál (oddlaus nál með stóru auga). Þessar eru með örlítið bognum oddi sem gerir saumaskapinn auðveldari. Hvort sem gengið er frá endum eða stykki saumuð saman, þá koma þessar nálar sér vel. Það er mjög þægilegt að nota nál með bognum oddi í ítalskri affellingu. Frábært að nota með segularmbandinu. Innihald: 4 jafanálar, 2 fínni og 2 grófari.
-
Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Þessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír og er á DÖNSKU.
-
Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim.
Þessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír og er á DÖNSKU.
-
Hefbundinn saumatvinni úr 100% polyester. Hentar í allan vélsaum. Kosturinn við þennan tvinna er ekki bara styrkurinn, heldur gefur hann örlítið eftir. Þegar reynir á saum, þá eru minni líkur á saumsprettu ef þessi tvinni er notaður. Við mælum með þessum tvinna í verkefni með löngum saumum. Sparkefli með 500m.
-
Aukanál fyrir flosnál með handfangi. MEDIUM/FINE nálin er grófari fyrir garn í fínbandsgrófleika (4ply/fingering). 6-PLY nálin er fínni fyrir útsaumsgarn (4-6 þræði af árórugarni eða sambærilegt). 3-PLY nálin sem fylgir með Flosnál með handfangi er enn fínni. Sjá nánar upplýsingar með Flosnál með handfangi.
-
Air erasable merkipennarnir eru góðir þegar þegar merkja þarf fyrir saumum eða öðru á ljós og dökk efni efni. Það gefst nægur tími áður en merkingin hverfur. Leyfið blekinu að hverfa af sjálfu sér eða strokið merkinguna út með strokleðrinu á hinum enda pennans. Tíminn sem það tekur fyrir merkingarnar að hverfa alveg fer eftir rakasigi, hitastigi og magni bleks á efninu.
-
CLOVER 45mm skurðarblað í skurðarhníf. 1 stk. í pakka.Skurðarblöðin eru í stöðluðum stærðum þannig að það á að vera hægt að nota þau í allar gerðir skurðarhnífa.
-
- Grófleiki: Fisband / Lace
- Innihald: 58% alpakaull / 22% ull / 20% pólíamíð
- Lengd/þyngd: 212m/25g
- Prjónar: 3,25-5 mm
- Prjónfesta: 18-24 lykkjur og 27-38 umferðir = 10 x 10 cm
- Þvottur: Handþvottur 30°C
-
Brooklyn Tweed eru þekkt fyrir góðar, vel útfærðar uppskriftir. Vinnulýsingar og mynsturteikningar ítarlegar og margar ljósmyndir. Hér er ein með flottum trefli sem passar fyrir alla, konur og karla.Þessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír (8 bls. hefti) og er á ENSKU. Ath. ef þú ert eingöngu að kaupa eina útprentaða uppskrift og vilt fá hana senda veldu þá sækja í verslun og við sendum uppskriftina sem bréfapóst.