-
ADDI Lace hringprjónarnir með góða oddinum! Þeir eru úr málmi með löngum oddi sem hentar mjög vel fyrir gataprjón, en líka allt annað prjón. Prjónaoddarnir eru léttir úr kopar, húðaðir með hvítu bronsi. Snúrurnar eru mjúkar og samskeyti snúru og prjóns slétt. ADDI prjónarnir eu hannaðir og framleiddir í Þýskalandi fyrir prjónara sem vilja aðeins bestu gæði. Vanir prjónarar sem prjóna hratt finna vel muninn á að nota þessa prjóna því lykkjurnar renna svo vel á prjóninum og þá tefur þig ekkert! Það er ekki skrítið að þessir prjónar eru kallaðir Turbo í BNA. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. -
Afsláttur!
- Grófleiki: Léttband / light worsted weight
- Innihald: 100% extrafine merinóull
- Lengd/þyngd: 124m/50g
- Prjónar: 4 - 5 mm
- Prjónfesta: 21 - 24 lykkjur = 10 cm
- Þvottur: Ullarvagga 30°C
-
Afsláttur!
POMPOM #29 - sumar 2019. Árstímabundin tímarit frá Bretlandi, uppfull af áhugaverðri prjónhönnun. Ritstjórarnir velja til samstarfs mismunandi hönnuði hverju sinni og reyna að hafa gott úrval af peysum og fylgihlutum. Vel gerðar uppskriftir, klassískar í bland við nýstárlegar. Eitthvað fyrir alla! Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að POMPOM tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að POMPOM kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur. -
Afsláttur!
- Grófleiki: Grófband / chunky
- Innihald: 40% mohair, 39% alpaka, 10% polyamide, 8% bómull, 3% polyester
- Lengd/þyngd: 120m/50g
- Prjónar: 6 mm
- Prjónfesta: 14,5 lykkjur og 20 umferðir = 10 x 10 cm
- Þvottur: Handþvottur 30°C
-
Eco Vita 12 Embroidery Projects
12 Útsaumsverkefni fyrir sokka.Allur útsaumur gerir ráð fyrir að notað sé DMC Eco Vita organic útsaumsgarnið. -
Box fyrir árórugarn. Hólfin eru hönnuð fyrir sérstök spjöld sem útsaumsgarnið er valfið utan um. Það fylgja 50 spjöld úr þykkum pappa með boxinu. Einnig fylgir lítil vinda úr plasti til að flýta fyrir þegar garnið er undið á spjöldin. Þessi box eru ómissandi fyrir þau sem sauma út með árórugarni. Hægt er að hafa góða yfirsýn yfir litina og garnið helst í röð og reglu og flækist ekki. -
Vinsældir ADDI Novel hringprjónanna aukast stöðugt. Þeir eru hrufóttir með góðum oddi, úr málmi og lykkjurnar renna ekki eins vel á þeim sem gerir þá mjög hentuga fyrir þau sem vilja prjóna þéttar/fastar. Prjónaoddarnir eru léttir úr kopar, húðaðir með hvítu bronsi. Snúrurnar eru mjúkar og samskeyti snúru og prjóns slétt. ADDI prjónarnir eu hannaðir og framleiddir í Þýskalandi fyrir prjónara sem vilja aðeins bestu gæði. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. -
Knit Pro Symfonie sokkaprjónar er úr birki með góðum oddi og sléttri áferð. Uppáhaldsprjónar margra. Hægt er að fá Symfonie sokkaprjóna, styttri 15 cm og lengri 20 cm. Knit Pro prjónarnir eru framleiddir í Indlandi við bestu mögulegar aðstæður fyrir starfsfólk. Þar á sér stað stöðug vöruþróun og þarfir prjónara eru alltaf í fyrirrúmi. -
INNOX er snilldarlausn fyrir okkur öll sem prjónum og saumum út. Þetta eru 20 x 10 cm miðar í áberandi litum. Hver miði nær því þvert yfir flestar bækur, blöð og skjái. Snilldin felst í því að það er ekkert lím! Miðarnir loða við allt, pappír, gler, tré, steypu og málm. Hægt er að taka þá af, færa til og endurnota aftur og aftur. Hægt er að skrifa á miðana ef vill. Fyrir okkur sem erum í hannyrðum þá eru þetta gott hjálpartæki en þetta nýtist líka mörgum öðrum sem eru að skipuleggja verkefni og vilja setja marga miða á vegg, skrifa á þá og færa til eftir þörfum. Stærð: 20 x 10 mm. 100 miðar í hefti. 4 litir í boði: bleikt, appelsínugult, grænt, blátt. -
Panamajafi (Aida) fyrir útsaum Litur: beinhvítt (antique white) Innihald: 100% bómull Þræðir per cm: 5,4 Hver lengdareining er 25 cm x 130 cm (breidd efnisins). Hægt er að velja eina eða fleiri lengdareiningar og við afgreiðum efnið í einum bút. 1 eining = 25 cm, 2 einingar = 50 cm, 3 einingar = 75 cm, 4 einingar = 100 cm. 25 cm lengdareining = 1.750 kr. Metraverð 7.000 kr. Athugið að það getur verið erfitt að sýna hárétta liti á tölvuskjá eða símaskjá. -
25 cm lengdareining = 1.750 kr. Metraverð 7.000 kr. Innihald: 100% bómull Þræðir per cm: 4,0 Hver lengdareining er 25 cm x 90 cm (breidd efnisins). Hægt er að velja eina eða fleiri lengdareiningar og við afgreiðum efnið í einum bút. 1 eining = 25 cm, 2 einingar = 50 cm, 3 einingar = 75 cm, 4 einingar = 100 cm. Athugið að það getur verið erfitt að sýna hárétta liti á tölvuskjá eða símaskjá. -
Þægilegur teljari sem telur uppi 99. Hann er með lykkju sem er ætluð til að setja utan um prjóninn. Þannig er hægt að nota teljarann sem merki fyrir byrjun umferðar um leið og fylgst er með umferða- eða lykkjufjölda. Ef það hentar ekki að hafa teljarann utan um prjóninn er hægt að festa hann við prjónverkið með lykkjukrækju. Hægt er að snúa teljaranum 360° á lykkjunni, þannig snýr hann alltaf rétt. Passar fyrir 2 mm - 10 mm hringprjóna og bandprjóna. -
Þetta faldamál er hannað til að auðvelda þér að merkja saumför fljótt og nákvæmlega. Það er með merkingar frá 1 til 5 cm með 5 mm millibili og hentar flestum saumverkefnum. Faldamálið er úr málmi sem gott er að nota til að mynda skörp brot með straujárni eða sem sniðmát fyrir skörp horn á vösum og öðrum saumaskap. -
Hentugar heklunálar til laga lykkjuföll og leiðrétta lykkjur í prjóni. Notið oddinn til að rekja upp lykkurnar eins og þarf og krókinn til að hekla upp nýjar lykkjur. • Framleiddar úr “Takumi” gæða bambus. • Auðvelt að rekja upp lykkjur með oddinum. • Góður oddur á heklunálinni sem rennur auðveldlega í gegnum lykkjurnar. • Hægt að nota til að prjóna upp lykkjur. • Hægt að nota sem stutta heklunál. • Nytsamleg til að greiða úr garnflækju með oddinum t.d. í móhár garni. Tvær stærðir: 4,5 mm x 10 cm og 3,5 mm x 10 cm
