-
Fatakrít í duftformi. Hægt að kaupa áfyllingar í 5 litum. Fatakrít með lausu dufti er frábært áhald til að merkja efni. Í stað þess að draga blýant eða penna eftir efninu, er hjóli á enda krítarhylkisins rúllað til að merkja línu. Hjólið er með örlitlum götum sem hleypa krítinni út um leið og þrýst er á það. Það myndast lína með þéttum, smáum punktum. Krítin þvæst auðveldlega úr. Hægt að velja um mismunandi liti eftir lit efnisins sem vinna á með. -
Áfylling á fatakrít í duftformi. Fást í 4 litum: Gul, hvít, bleik, blá og silfur. Fatakrít með lausu dufti er frábært áhald til að merkja efni. Í stað þess að draga blýant eða penna eftir efninu, er hjóli á enda krítarhylkisins rúllað til að merkja línu. Hjólið er með örlitlum götum sem hleypa krítinni út um leið og þrýst er á það. Það myndast lína með þéttum, smáum punktum. Krítin þvæst auðveldlega úr. Hægt að velja um mismunandi liti eftir lit efnisins sem vinna á með. -
Aukanál fyrir flosnál með handfangi. MEDIUM/FINE nálin er grófari fyrir garn í fínbandsgrófleika (4ply/fingering). 6-PLY nálin er fínni fyrir útsaumsgarn (4-6 þræði af árórugarni eða sambærilegt). 3-PLY nálin sem fylgir með Flosnál með handfangi er enn fínni. Sjá nánar upplýsingar með Flosnál með handfangi. -
Saumaðu út á einfaldan hátt með því að þrýsta nálinni í gegnum strekkt efni. Strekktu efnið á útsaumshring og teiknaðu með nálinni! Innihald- Flosnál með handfangi
- 3-ply nál (fyrir 2-3 þræði af árórugarni)
- Nálaþræðari
- Þrýstu nálinni í gegnum vel strekkt efni og dragðu upp.
- Renndu nálinni eftir efninu og endurtaktu.
- Útsaumsgarn t.d. árórugarn.
- Heklugarn nr. 40 eða annað garn í sama grófleika.
- Þéttofin efni (meðalþykk eða þykk): Poplín, denim, ullarefni, flóki o.fl.
-
Saumaðu út á einfaldan hátt með því að þrýsta nálinni í gegnum strekkt efni. Strekktu efnið á útsaumshring og teiknaðu með nálinni! Innihald- Flosnál með handfangi
- Hringur, jafanál og þræðitvinni
- Þrýstu nálinni í gegnum vel strekkt efni og dragðu upp.
- Renndu nálinni eftir efninu og endurtaktu.
- Léttband (medium eða DK) til stórband (bulky) garn.
- Grófur panamajafi (monk cloth) fæst í Storkinum.
-
Lykkjunælur eða lykkjuhaldarar sem eru hannaðar með þarfir prjónara í huga. Í staðhefðbundinnar nælu er prjónn með teygju úr silíkóni sem festist utan um prjóninn. Þannig haldast lykkjurnar á öruggum stað. Það sem gerir þetta áhald svo gott er að hægt er að hleypa lykkjunum fram af báðum endum. Frábært til að geyma lykkjur í handvegi og á fleiri stöðum. Kemur í fjórum gerðum eftir grófleika garnsins. Innihald: 2 lykkjunælur í pakka. -
"Quick-Cut" er þráðskeri sem flýtir fyrir þegar klippa þarf þræði eftir saumaskap. Hannaður til að skera á þræði fljótt og örugglega.- Auðvelt aðgengi.
- Hentar jafnt tvinna sem garni.
- Fingurnir geta ekki snert hnífinn sem eykur öryggið.
-
Þetta faldamál er hannað til að auðvelda þér að merkja saumför fljótt og nákvæmlega. Það er með merkingar frá 1 til 5 cm með 5 mm millibili og hentar flestum saumverkefnum. Faldamálið er úr málmi sem gott er að nota til að mynda skörp brot með straujárni eða sem sniðmát fyrir skörp horn á vösum og öðrum saumaskap. -
Wonder klemmur eru hannaðar til að gera saumalífið einfaldara. Brúnir sem á að sauma saman eru klemmdar saman á auðveldan hátt.- Frábært í staðinn fyrir títuprjóna, sérstaklega ef unnið er með þykk efni eða efni sem ekki er hægt að stinga í.
- Heldur vel saman mörgum lögum af efnum án þess að þau renni til.
- Festir efni vel saman þegar binding er saumuð á bútasaumsteppi.
- Klemmurnar eru áberandi og auðvelt að finna, líka þegar þær detta á gólfið.
- Henta vel þegar lokusaumsvélar (overlock válar) eru notaðar.
- Saumfar getur verið 5 mm, 7 mm and 10 mm.
-
Air erasable merkipennarnir eru góðir þegar þegar merkja þarf fyrir saumum eða öðru á ljós og dökk efni efni. Það gefst nægur tími áður en merkingin hverfur. Leyfið blekinu að hverfa af sjálfu sér eða strokið merkinguna út með strokleðrinu á hinum enda pennans. Tíminn sem það tekur fyrir merkingarnar að hverfa alveg fer eftir rakasigi, hitastigi og magni bleks á efninu. -
Frábærar merkikrækjur, enda ein af okkar allra vinsælustu vörum. Þær eru úr efni sem endist vel (brotna ekki). Krækjurnar eru mest notaðar til að merkja umferðir, t.d. úrtökur eða útaukningar. Það eru tvær stærðir fáanlegar. Þessar eru minni. Innihald: 20 merkikræjur í tveimur litum, plastumslag til að geyma þær í fylgir. Athugið að það er betra að hafa krækjurnar lokaðar þegar þær eru ekki í notkun. -
Nálahús með 2 grófum jafanálum. Bogni oddurinn auðveldar þræðingu í gegnum lykkjur. Nálarhúsið er með áskrúfuðu loki sem geymir nálarnar vel. Nálarnar eru Ø 2,5 x 7 mm á lengd. Fleiri nálahús með nálum fáanleg:- Jafanálasett (# 339)
- Jafanálasett með bognum oddum (# 3121)
- Jafanálasett með fínum nálum (# 3168)
-
Nálahús með 3 fínum jafanálum. Bogni oddurinn gerir það auðveldara að þræða nálina í gegnum lykkjur. Nálarhúsið er með áskrúfuðu loki sem geymir nálarnar vel. Nálarnar eru nr. 20, 22 og 24. Fleiri nálahús með nálum fáanleg:- Jafanálasett (# 339)
- Jumbo jafanálasett (# 340)
- Jafanálasett með bognum oddum (# 3121)
-
Nálahús með 3 jafanálum. Bogni oddurinn gerir það auðveldara að þræða nálina í gegnum lykkjur. Nálarhúsið er með áskrúfuðu loki sem geymir nálarnar vel. Nálarnar eru nr. 15 (2 stk.) og nr. 17 (1 stk.). Fleiri nálahús með nálum fáanleg:- Jafanálasett (# 339)
- Jumbo jafanálasett (# 340)
- Jafanálasett með fínum nálum (# 3168)
-
- Nálarnar renna vel í gegnum efni.
- Nálarnar eru með gyllt auga sem er auðveldara að þræða.
- Nálarnar eru úr sérstaklega hertu stáli svo þær bogna hvorki né brotna.
- Nálaroddarnir eru beittir og henta í frjálsan útsaum, jafnvel með ullargarni því augað er stórt.
- Nálarnar fást í ýmsum grófleikum; hærra númer = fínni nál.
-
Þessi nál er sérstaklega hönnuð til að gera við prjónaðan og/eða ofinn fatnað þegar dregst til í honum. Tvær stærðir af nálum fylgja. Grófari nálin er góð fyrir lausar ofna/prjónaða voð. Fínni nálin er góð fyrir þéttara ofið/prjónaða voð. Hver nál er með kúlulaga oddi svo að þræðirnir í efninu klofni ekki. Nálarnar eru án auga og að hluta til með hrjúfa áferð. Notkun- Settu nálina í gegnum efnið þar sem dregið hefur til.
- Dragðu nálina í gegnum efnið, þá festist þráðurinn sem stendur út á réttunni við nálina og dregst yfir á röngu.
-
Þessar fingurbjargir sameina mýkt, teygjanleika og góða vörn. Á endanum er málmplata sem verndar fingurinn og gúmmíhlutinn hleypir lofti í gegn. Teygjanleikinn auðveldar fingurbjörginni að laga sig að fingrinum. Léttar og notendavænar. Mál- Lítil (#6025) - 14,5 mm
- Miðstærð (#6026) - 15,5 mm
- Stór (#6027) - 17 mm
-
Fingurbjargir úr leðri sem laga sig að fingrinum. Það eru engir saumar á því svæði sem nálin snertir. Einstök lögunin myndar sléttan flöt yfir fingurgóminn.- Engir saumar eða spor sem hindra þegar þrýst er á nálina.
- Saumaðir í þrívídd svo þær passi betur á fingurinn.
- Tvöfalt leður fyrir öryggið.
- Lítil (#6028) - 14,5 mm
- Miðstærð (#6029) - 16 mm
- Stór (#6030) - 17,5 mm
-
Segularmband sem geymir nálar, títuprjóna og jafnvel lítil skæri á meðan saumað er. Þægilegt í notkun og sparar vinnu og tíma. Raufin í miðjunni auðveldar að ná takinu af nálunum/títuprjónunum. Ef eitthvað dettur á gólfið eða ofan í skúffu er leikur einn að halda seglinum nálægt og allt sem loðir við segul hoppar upp í hann!
