-
Góður skurðarhnífur með 18 mm blaði fyrir alla námkvæmisvinnu í bútasaumi. Skurðarhnífar eru ómissandi áhald fyrir bútasaumara. Hnífurinn situr vel í hendi og það er auðvelt að skera fljótt og vel með honum. • Hentar bæði rétthentum og örvhentum. Hlífinni er einfaldlega snúið eftir því hvor höndin er notuð. • Sker vel sama hvernig hnífnum er beitt; lóðrétt eða á ská, því blaðhlífin hefur nægilegt svigrúm en blaðið sjálft nær mátulega langt út fyrir brúnina til að gæta öryggis. • Gripið á handfanginu er þægilegt með stömum en mjúkum snertiflötum. • Hægt að stilla hve hratt skurðarblaðið rennur. Ef skrúfan er hert hægist á blaðinu sem auðveldar skurð á þykkari efnum. -
"Quick-Cut" er þráðskeri sem flýtir fyrir þegar klippa þarf þræði eftir saumaskap. Hannaður til að skera á þræði fljótt og örugglega.- Auðvelt aðgengi.
- Hentar jafnt tvinna sem garni.
- Fingurnir geta ekki snert hnífinn sem eykur öryggið.
-
Höfundur: Anna JohannaÚtgefandi: Quadrille Publishing (2022)Mjúkspjalda | 176 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 760 g | Mál: 215 x 270 x 21 mmStrands of Joy inniheldur 20 fjölbreyttar uppskriftir, þ.á.m. heilar og opnar peysur og flottan kjól, húfu og krakkapeysu. Allar uppskriftirnar gera ráð fyrir að prjónað sé ofan frá og í hring. Fitjaðu upp á tvíbandaprjónaðri flík, láttu hugann finna ró á meðan þú tekst á við verkefni sem þarfnast meiri einbeitingar. Anna Johanna er prjónhönnuður frá Muurame í mið Finnlandi. Hún er þekkt fyrir rómantískar flíkur og leggur áherslu á smáatriðin, áferð og liti. Hún er tölfræðingur en hefur frá 2020 eingöngu unnið við prjónhönnun. Strands of Joy (á finnsku Onnensäikeitä) er fyrsta bókin hennar. Innihald: 20 prjónaverkefni með tvíbandaprjóni (10 peysur, 7 jakkapeysur, 1 kjóll, 1 húfa, 1 krakkapeysa). Uppskriftirnar fyrir fullorðins peysur koma í 9 - 12 stærðum. ATH. Þessi bók kom upprunalega út hjá LAINE sem harðspjaldabók en er hér í mjúkspjaldaútgáfu frá bresku forlagi. -
Afsláttur!
POMPOM #43 - vetur 2023. Nú í stærra broti! Árstímabundin tímarit frá Bretlandi, uppfull af áhugaverðri prjónhönnun. Ritstjórarnir velja til samstarfs mismunandi hönnuði hverju sinni og reyna að hafa gott úrval af peysum og fylgihlutum. Vel gerðar uppskriftir, klassískar í bland við nýstárlegar. Eitthvað fyrir alla! Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að POMPOM tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að POMPOM kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur. -
- Grófleiki: Smáband / sport
- Innihald: 100% merínóull
- Lengd/þyngd: 250m/100g
- Prjónar: 3 - 3,5 mm
- Prjónfesta: 25 lykkjur og 36 umferðir = 10 cm
- Þvottur: Ullarvagga 30°C
-
Höfundur: Keiko Okamoto & Cassandra Harada Útgefandi: Tuttle Publishing (2021)Mjúkspjalda | 120 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 640 g | Mál: 216 x 292 mm Whether you want to recreate an Irish lace in creamy neutrals or play with stitches that stand out for their unusual shape and dimension, this book has it all. Seven practice projects help you cut loose with some creative application, including: two elegant, lacy shawls, two fun flowery necklaces, a bohemian vest in neutral tones, a wildly-embellished rainbow scarf and the most one-of-a-kind bag you'll ever see. A technical section demonstrates the stitches step by step, so readers can become familiar with crocheting in the Japanese style. Amazing Japanese Crochet Stitches is a joy for the experienced crocheter, and a valuable reference for needlecraft enthusiasts everywhere! -
Afsláttur!
Höfundur: Auður Björt SkúladóttirÚtgefandi: Forlagið (2022) Mjúkspjalda | 160 bls. Tungumál: Íslenska Þyngd: 1.000 gSjöl og teppi - eins báðum megin er, eins og heiti bókarinnar gefur til kynna, er með sjölum og teppum sem er með báðar hliðar eins. Yfir tuttugu uppskriftir eru í bókinni og eru þær á ýmsum erfiðleika stigum, einfaldari fyrir byrjendur upp í flóknari fyrir vana prjónara. Auður Björt Skúladóttir hefur áður sent frá sér bókina Lopapeysuprjón – fyrir byrjendur og lengra komna. Hún starfar sem textílkennari og er með langa reynslu af prjónaskap. -
Höfundur: Meiju K.P. Útgefandi: Laine Publishing (2021)Harðspjalda | 280 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 1.300 g | Mál: 205 x 270 x 27 mmÞessi dásamlega fallega bók frá Meiju P endurspeglar metnaðarfulla prjónhönnun. Allar uppskriftirnar eru með útprjóni; köðlum eða öðru til að gera áferðina skemmtilega í einlitum flíkum. Bókin inniheldur 22 uppskriftir (9 peysur, 5 golftreyjur, 1 slá, 4 sjöl, 3 húfur). Sígild prjónhönnun! Uppskriftirnar innihalda bæði mynsturteikningar og skriflegar vinnulýsingar. -
Debbie Bliss er einn þekktasti prjónhönnuður Bretlands. Hér er uppskrift af toppi eða vesti með gataprjóni. Sjö stærðir. Vestið er prjónuð í stykkjum, fram og til baka og saumuð saman. Þessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír og er á ENSKU.Ath. ef þú ert eingöngu að kaupa eina útprentaða uppskrift og vilt fá hana senda veldu þá sækja í verslun og við sendum uppskriftina sem bréfapóst frítt. -
Debbie Bliss er einn þekktasti prjónhönnuður Bretlands. Hér er uppskrift af fíngerðri dömupeysu með gataprjóni. Fjórar stærðir. Peysan er prjónuð í stykkjum, fram og til baka og saumuð saman. Þessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír og er á ENSKU.Ath. ef þú ert eingöngu að kaupa eina útprentaða uppskrift og vilt fá hana senda veldu þá sækja í verslun og við sendum uppskriftina sem bréfapóst frítt. -
Brooklyn Tweed eru þekkt fyrir góðar, vel útfærðar uppskriftir. Vinnulýsingar og mynsturteikningar ítarlegar og margar ljósmyndir. Hér er fallegur kragi sem passar bæði fyrir konur og karla. Notaðir eru þrír grófleikar af prjónum til að ná víddinni sem þarf.Þessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír (12 bls. hefti) og er á ENSKU. Ath. ef þú ert eingöngu að kaupa eina útprentaða uppskrift og vilt fá hana senda veldu þá sækja í verslun og við sendum uppskriftina sem bréfapóst. -
Einrúm er ekki aðeins með garnlínu heldur einnig fullt af flottum uppskriftum. Þær eru margar hverjar hannaðar af Kristínu Brynju sjálfri en einnig öðrum hönnuðum. Upphafsstafir hönnuðarins eru merki uppskriftarinnar.PEYSA - KBG 07 Hönnuður: Kristín Brynja Garn: E-band 300 (300) 350 g Prjónar: 3,5 mm hringprjónar og sokkaprjónar. Stærðir: S (M) LÞessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír og er á þremur tungumálum; íslensku, dönsku og ensku.