Panamajafi úr hvítri bómull. Selt í pakkningu með 50 x 65 cm.
Grófleiki 4,4 þræðir/1 cm.
Jafi fyrir krosssaum og önnur úttalin útsaumsspor. Jafinn er það þéttur að hann gæti líka hentað í frjálsan útsaum.
ÚtsaumsmyndKrosssaumur á stramma með ullargarni. Nál fylgir og mynsturteikning sem reitirnir eru bæði litaðir og með táknum.Hönnuður: Pelse AsboeStærð: 16,5 cm x 16,5 cmÞéttleiki: 44 spor / 10 cm.
Sokkamál til að mæla lengdina á sokkbolnum frá hæl áður en byrjað er á úrtöku á tátotunni. Sniðugt þegar verið er að prjóna til gjafa.
Sokkamálið mælir líka prjónastærðirnar!
Laserskorið úr við.
Handunnin garn- eða hnotuvinda úr tré sem getur undið allt að 450 g af garni í fínbands (4ply/fingering) grófleika. Garnvindan er alveg hljóðlaus og hún er hönnuð þannig að snertifletir eru fáir og því er gengur vindingin ljúft og snuðrulaust fyrir sig.
Gúmmítappar eru á botninum svo vindan renni ekki til eða rispi borð. Borðfesting fylgir. Fyrirhafnarminna að vinda garn í hnotu í þessari vindu því hver hringur sem snúið er eins og þrír á minni garnvindum. Hægt að kaupa auka gúmmíreim ef á þarf að halda.
Útsaumshringur Ø 18 cm, heldur efninu vel strekktu. Auðvelt að herða og losa. Sérstaklega hannað fyrir útsaum með flosnál, hringurinn stendur á fótum sem hægt er að hækka og lækka eftir þörfum.
Sæbjörg er sokkar sem eru þægilegir í prjóni. Hællinn er hefðbundinn bandhæll, sem er líka þekktur undir nafninu Halldóruhæll. Hér er þó útgáfa þar sem hælstallurinn er með garðaprjónskanti sem minnkar líkur á að það myndist göt þegar hælstallslykkjurnar eru prjónaðar upp. Þá er bæði hælstallurinn og hæltungan með styrkingu eða prjónað með óprjónuðum og prjónuðum lykkjum á víxl til að gera hælinn þéttari og mýkri.
Gægt er að hafa stroffið á sokkleggnum hærra og brjóta það tvöfalt, ykkar er valið. Þægindin við að stroffið nái niður að hæl er að þá er svo auðvelt að bregða sér í og úr sokkunum.
Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku. Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni, smellið á hana til að hlaða henni niður. Það er einnig hægt að smella á slóðina sem er að finna í kvittuninni sem send er í tölvupósti.
Prjónamál úr tré með lógói Storksins. Mælir 14 prjónastærðir frá 2 mm upp í 10 mm.
Einnig mælistika t.d. til að mæla prjónfestuna.
Lítð og létt og handhægt úr hörðum við sem tryggir nákvæma mælingu.
Stærð 12 x 4,5 cm.
Framleitt á Íslandi af UGLU.
Þessar snudduklemmur eru úr málmi og eru ætlaðar til að festa band eða borða við sem síðan tengist við snudduna sjálfa.
Þessar klemmur eru líka fínar á axlabönd.
Veljið lit hér fyrir neðan.
Rollfix málböndin eru þýsk gæðaframleiðsla og vinsælustu málböndin hjá okkur. Þau eru þægileg í notkun; málbandið er dregið út og er með stoppara. Dregið aftur inn með því að ýta á miðjuna.
Skelin er úr sterku ABS plasti og fást með alls konar skreytingum. Málbandið sjálft er líka úr endingargóðu efni sem teygist ekki. Merkingin er svört á hvítum grunni.
Skelin er 5 cm í þvermál og málbandið mælir bæði í cm og tommum. Lengd 150 cm.
Handunnin garn- eða hnotuvinda úr birkivið sem getur undið allt að 450 g af garni í fínbands (4ply/fingering) grófleika. Garnvindan er alveg hljóðlaus og hún er hönnuð þannig að snertifletir eru fáir og því er gengur vindingin ljúft og snuðrulaust fyrir sig.
Borðfesting fylgir. Fyrirhafnarminna að vinda garn í hnotu í þessari vindu því hver hringur sem snúið er eins og þrír á minni garnvindum. Hægt að kaupa auka gúmmíreim ef á þarf að halda. Allt í senn falleg og nytsamleg.
Hægt er að kaupa aukareim ef á þarf að halda.