Þægilegur sprettuhnífur til að skera á saumspor þegar rekja þarf upp eða spretta upp saumum. Ómissandi áhald, sérstaklega í vélsaumi. Hlíf fylgir.
-
CLOVER 45mm skurðarblöð í skurðarhníf. 5 stk. í pakka.Skurðarblöðin eru í stöðluðum stærðum þannig að það á að vera hægt að nota þau í allar gerðir skurðarhnífa.
-
CLOVER 18mm skurðarblað í skurðarhníf. 2 stk. í pakka.Skurðarblöðin eru í stöðluðum stærðum þannig að það á að vera hægt að nota þau í allar gerðir skurðarhnífa.
-
Góður skurðarhnífur með 45mm blaði fyrir alla námkvæmisvinnu í bútasaumi. Skurðarhnífar eru ómissandi áhald fyrir bútasaumara. Hnífurinn situr vel í hendi og það er auðvelt að skera fljótt og vel með honum. • Hentar bæði rétthentum og örvhentum. Hlífinni er einfaldlega snúið eftir því hvor höndin er notuð. • Sker vel sama hvernig hnífnum er beitt; lóðrétt eða á ská, því blaðhlífin hefur nægilegt svigrúm en blaðið sjálft nær mátulega langt út fyrir brúnina til að gæta öryggis. • Gripið á handfanginu er þægilegt með stömum en mjúkum snertiflötum. • Hægt að stilla hve hratt skurðarblaðið rennur. Ef skrúfan er hert hægist á blaðinu sem auðveldar skurð á þykkari efnum.
-
Frábærar merkikrækjur, enda ein af okkar allra vinsælustu vörum. Þær eru úr efni sem endist vel (brotna ekki). Krækjurnar eru mest notaðar til að merkja umferðir, t.d. úrtökur eða útaukningar. Það eru tvær stærðir fáanlegar. Þessar eru minni. Innihald: 20 merkikræjur í tveimur litum, plastumslag til að geyma þær í fylgir. Athugið að það er betra að hafa krækjurnar lokaðar þegar þær eru ekki í notkun.
-
ADDI hringprjónar úr málmi. Prjónaoddarnir eru léttir úr kopar, húðaðir með hvítu bronsi. Snúrurnar eru mjúkar og samskeyti snúru og prjóns slétt. ADDI prjónarnir eu hannaðir og framleiddir í Þýskalandi fyrir prjónara sem vilja aðeins bestu gæði. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. 12mm prjónarnir eru með slöngur, ekki snúru.
-
Þessar pakkningar innihalda vettlingauppskrift með mynsturteikningu og ullargarni. Vettlingamynstrið er hefðbundið frá svæðinu Kurzeme í Lettlandi. Hvert vettlingapar hefur sína sögu og sína merkingu. Í Lettlandi hafa vettlingar verið aðalgjafirnar um aldaskeið. Nú til dags eru þeir, í öllum sínum litríku útgáfum, enn mikilvægur hluti af vetrarklæðnaði fólks. Allar pakkningarnar innihalda 100% nýull frá bóndabæ í eigu fjölskyldu sem vinnur ullina sjálf fyrir spunann. Allt er handgert, þ.m.t. kassinn. Í Knit Like a Latvian pakkningunni er:
- litprentuð mynsturteikning
- 100% ull í litum sem duga í vettlingapar í stærð M/L
- vettlingauppskrift