-
Löngu Cubics sokkaprjónarnir frá Knit Pro eru góðir í sokkaprjón, vettlingaprjón, ermar og hálsmál. Cubics prjónar eru ferkantaðir prjónar úr birki, hafa slétta og mjúka áferð og oddarnir eru góðir. Cubics prjónar hentar þeim sem prjóna laust eða halda laust um prjónana og þeim sem vilja prjóna þéttar. Lögunin á prjónunum veldur því að það er þægilegt að halda á þeim, gripið þarf ekki að vera eins þétt og þeir renna síður í höndunum. Prjónastærðin er mæld með sama hætti og ávölu, venjulegu prjónarnir. Fást einnig 15 cm langir. Knit Pro prjónarnir eru framleiddir í Indlandi við bestu mögulegar aðstæður fyrir starfsfólk. Þar á sér stað stöðug vöruþróun og þarfir prjónara eru alltaf í fyrirrúmi. -
Eitt skipti – 23. september Miðvikudagur kl. 17:30 - 20:3oFalleg merki með perlusaumi. Hægt að festa t.d. á veski eða jakka.
Námskeiðslýsing Við saumum barmmerki með Miyuki perlum frá Japan. Förum yfir spor og aðferðir við perlusaum. Saumað er beint á filtefni og ekki þarf að nota útsaumshring.Val um nokkrar gerðir af merkjum.Hafa meðferðis eða kaupa á staðnum: Útsaumsskæri.Góð gleraugu ef þið þurfið, perlurnar eru mjög litlar. Allt efni er innifalið.Kennari: Magna RúnGreiðsluskilmálar vegna námskeiðsgjalda Ef ekki næst lágmarksþátttaka og námskeið er fellt niður endurgreiðum við öll námsskeiðsgjöld að fullu. Ef skráður þátttakandi á námskeiði forfallast og kemst ekki á námskeiðið þá þarf tilkynning að berast Storkinum með tölvupósti á netfangið [email protected] eigi síðar en 48 klukkustundum (tveimur sólarhringum) áður en námskeið hefst. Ef tilkynning berst síðar áskilur Storkurinn sér rétt til að innheimta 10% af námskeiðsgjaldi vegna umsýslu. -
Other Loops | Ripple Loops Sweater
Þetta er rafræn uppskrift. Við kaup á rafrænni uppskrift færð þú aðgang að öllum tungumálum sem búið er að þýða uppskriftina á.Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads.
Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.
-
Dásamlega fallegar öskjur undir smáhluti, t.d. prjónamerki, lítil skæri, nálar o.fl. Myndin á lokinu er sett á öskjuna á handverksstæði FIREFLY. Gljáandi yfirborðið er úr resín sem endist lengi. FIREFLY vörurnar eru handunnar í Kanada.Tvær stærðir í boði:
🐰 Lítil: Lengd 6 cm x breidd 3,4 cm x dýpt 1,2 cm
🐰 Stór: Lengd 9,5 cm x breidd 6,2 cm x dýpt 2 cmFullkomin gjöf fyrir þau sem prjóna, hekla, sauma og aðra sem kunna að meta fallega fylgihluti!
Athugið að hægt er að fá segulplötu í botninn á stærri öskjunni!
-
Útgefandi: Laine (2026)Mjúkspjalda | bls. 148 Tungumál: Enska Þyngd: 500 g | Mál: 214 x 275 mmSkoða myndir af flíkunum hér -
Frábært stimplasett sem gerir þér kleift að hanna þína eigin merkimiða fyrir fatnað. Í settinu er stimpill sem þú getur raðað í bókstöfum og táknum eftir þínum smekk og stimplað þau á efnismerki sem síðan eru saumuð á flíkurnar. 25 merki fylgja með í pakkanum. Bleikið þolir þvott í allt að 90°C. Einnig má stimpla beint á flíkur. Inniheldur:
1 stimpil
2 sett af myndtáknum og bókstöfum
1 töng til þess að raða í stimpilinn
20 stk. taumiðar til að sauma í flíkur (stærð 20 x 50 mm) Staðsetningarleiðbeiningar -
Ástþrúður Sif Sveinsdóttir | Tvist
Falleg peysa úr smiðju Ástþrúðar Sifjar Sveinsdóttur. Við mælum með að nota í hana: Rowan Mode SOFTEST ALPACA, Kaos Yarn CHUNKY ANDEAN WOOL, Schoppel Wolle ALPACA QUEENValkostir:
- Útprentuð uppskrift – sótt í verslun eða send frítt með öðrum vörukaupum
- Útprentuð uppskrift, send stök með bréfpósti
- Rafræn uppskrift, send með tölvupósti – öll fáanleg tungumál fylgja, sendar á virkum dögum
Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads. Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.
-
Stephen West | Exploration Station
Uppskriftirnar frá Stephen West og þá sérstaklega sjölin hafa notið mikilla vinsælda í gegnum árin. Mikið er um djarft litaval og skemmtilegar og skýrar uppskriftir. Garn sem myndi henta vel:Urth Yarns – HARVEST FINGERING, MAL Handlitað fínband, NOVITA X LAINE 4PLY, Urth Yarns – UNEEK FINGERING
Valkostir:
- Útprentuð uppskrift – sótt í verslun eða send frítt með öðrum vörukaupum
- Útprentuð uppskrift, send stök með bréfpósti
- Rafræn uppskrift, send með tölvupósti – öll fáanleg tungumál fylgja, sendar á virkum dögum
Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads. Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.
-
SASHIKO nálar - langar Nálar sem eru hentugar í sashiko útsaum þar sem mynstrum eru línulaga. Nálin rennur vel í gegnum efni, en það getur verið þægilegt að ýta á eftir nálinni með fingurbjörg, sérstaklega ef saumað er í gengum mörg lög af efni í sömu aðgerð. Efni: Stál Magn: 4 nálar í pk Framleiðsluland:Japan Stærðir: 1 nál 0,84 x 51,5 mm, 1 nál 0,99 x 44,5 mm, 1 nál 0,84 x 41,3 mm, 1 x 0,84 x 33,3 mm 1 stk. þræðari fylgir með. Mælt er með sashiko útsaumsgarni í grófleika #20 eða #30. -
SASHIKO nálar - langar Nálar sem eru hentugar í sashiko útsaum þar sem mynstrum eru línulaga. Nálin rennur vel í gegnum efni, en það getur verið þægilegt að ýta á eftir nálinni með fingurbjörg, sérstaklega ef saumað er í gengum mörg lög af efni í sömu aðgerð. Efni: Stál Magn: 3 nálar í pk Framleiðsluland:Japan Stærðir: 1 nál 0,97 x 66,7 mm, 1 nál 0,97 x 60 mm, 1 nál 0,97 x 54 mm. 1 stk. þræðari fylgir með. Mælt er með sashiko útsaumsgarni í grófleika #20 eða #30. -
Panamajafi (Aida) fyrir útsaum Litur: beinhvítt (antique white) Innihald: 100% bómull Þræðir per cm: 5,4 Hver lengdareining er 25 cm x 130 cm (breidd efnisins). Hægt er að velja eina eða fleiri lengdareiningar og við afgreiðum efnið í einum bút. 1 eining = 25 cm, 2 einingar = 50 cm, 3 einingar = 75 cm, 4 einingar = 100 cm. 25 cm lengdareining = 1.750 kr. Metraverð 7.000 kr. Athugið að það getur verið erfitt að sýna hárétta liti á tölvuskjá eða símaskjá.
