1.295kr.

Einrúm er ekki aðeins með garnlínu heldur einnig fullt af flottum uppskriftum. Þær eru margar hverjar hannaðar af Kristínu Brynju sjálfri en einnig öðrum hönnuðum. Upphafsstafir hönnuðarins eru merki uppskriftarinnar.

HÁKARLAPEYSAN  – HB 04

Hönnuður: Halla Ben

Garn: E-band 300 (300) g

Prjónar: 4 og 5 mm hringprjónn

Stærðir: S/M (M/L)

Peysan á myndunum er prjónuð úr lit 1008 gabbró.

Þessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír og er á íslensku

Er á lager

HÖNNUÐUR: HALLA BENHalla Ben hannaði þessa peysu. Þegar Halla var búin að prjóna HB 03 eða „hákarla-peysuna“ eins og við köllum hana sá hún í hendi sér að mynstrið væri tilvalið fyrir síða jakkapeysu. Úr varð síð jakkapeysa sem pokar örlítið við stroffið á ermunum. Létt og þægileg peysa sem er fljótleg og auðvelt að prjóna.

AÐFERÐ

Bolurinn er prjónaður fram og til baka, jaðarlisti er prjónaður á fínni prjóna jafnhliða bolnum. Ermar eru prjónaðar í hring upp að handvegi. Laskaúrtaka er á axlarstykki. 

STÆRÐIR: S/M (M/L)

Hálf yfirvídd 45 (47) cm
Sídd frá handvegi, með stroffi: 48 (50) cm
Ermalengd, með stroffi: 45 (47) cm

BAND

Allar tegundir af E-bandi.

STÆRÐIR: S/M (M/L) 300 g (300) g

Á myndunum er peysan prjónuð í lit E 1008 Gabbró.

PRJÓNARHringprjónar og sokkaprjónar 4 og 5 mm.

Title

Go to Top