• Fatakrít í duftformi. Hægt að kaupa áfyllingar í 5 litum. Fatakrít með lausu dufti er frábært áhald til að merkja efni. Í stað þess að draga blýant eða penna eftir efninu, er hjóli á enda krítarhylkisins rúllað til að merkja línu. Hjólið er með örlitlum götum sem hleypa krítinni út um leið og þrýst er á það. Það myndast lína með þéttum, smáum punktum. Krítin þvæst auðveldlega úr. Hægt að velja um mismunandi liti eftir lit efnisins sem vinna á með.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Hringur sem er teljari. Telur upp í 99. Mismunandi stærðir í boði. Flestir hafa hringinn/teljarann á vísifingri eða þumli. Stærðir 7, 8, 9, 10, 11 og 12.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Handunnin garn- eða hnotuvinda úr tré sem getur undið allt að 450 g af garni í fínbands (4ply/fingering) grófleika. Garnvindan er alveg hljóðlaus og hún er hönnuð þannig að snertifletir eru fáir og því er gengur vindingin ljúft og snuðrulaust fyrir sig. Gúmmítappar eru á botninum svo vindan renni ekki til eða rispi borð. Borðfesting fylgir. Fyrirhafnarminna að vinda garn í hnotu í þessari vindu því hver hringur sem snúið er eins og þrír á minni garnvindum. Hægt að kaupa auka gúmmíreim ef á þarf að halda.
  • Addi HRINGPRJÓNAR

    Price range: 1.195kr. through 2.595kr.
    ADDI hringprjónar úr málmi. Prjónaoddarnir eru léttir úr kopar, húðaðir með hvítu bronsi. Snúrurnar eru mjúkar og samskeyti snúru og prjóns slétt. ADDI prjónarnir eu hannaðir og framleiddir í Þýskalandi fyrir prjónara sem vilja aðeins bestu gæði. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. 12mm prjónarnir eru með slöngur, ekki snúru.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Other Loops | Ripple Loops Sweater

    Þetta er rafræn uppskrift. Við kaup á rafrænni uppskrift færð þú aðgang að öllum tungumálum sem búið er að þýða uppskriftina á.
    Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads.
    Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.
  • Isager er rótgróið dankst fyrirtæki stofnað af Marianne Isager. Þau framleiða gæða garn úr náttúrulegum hráefnum ásamt uppskriftum sem henta vel fyrir garnið frá þeim. Uppskriftirnar eru vandaðar og skýrar og gott er að fylgja þeim. Þetta er rafræn uppskrift. Við kaup á rafrænni uppskrift færð þú aðgang að öllum tungumálum sem búið er að þýða uppskriftina á.
    Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads.
    Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.
  • Panamajafi (Aida) fyrir útsaum Litur: beinhvítt (antique white) Innihald: 100% bómull Þræðir per cm: 5,4 Hver lengdareining er 25 cm x 130 cm (breidd efnisins). Hægt er að velja eina eða fleiri lengdareiningar og við afgreiðum efnið í einum bút. 1 eining = 25 cm, 2 einingar = 50 cm, 3 einingar = 75 cm, 4 einingar = 100 cm. 25 cm lengdareining = 1.750 kr. Metraverð 7.000 kr. Athugið að það getur verið erfitt að sýna hárétta liti á tölvuskjá eða símaskjá.
  • Vinkona prjónaði Merkimiðar úr vaskaskinni. Áferðin á vaskaskinni minnir á rúskinn, en er mýkra. Það heldur mýktinni, þolir þvott og lætur ekki lit. Áletrunin er hitaprentuð og endist því vel. Það eru göt á hverju horni þannig að það er auðvelt að festa við flíkina. Stærð 1,2 x 5 cm
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Ást í hverri lykkju Merkimiðar úr vaskaskinni. Áferðin á vaskaskinni minnir á rúskinn, en er mýkra. Það heldur mýktinni, þolir þvott og lætur ekki lit. Áletrunin er hitaprentuð og endist því vel. Það eru göt á hverju horni svo auðvelt sé að festa merkið við flíkina. Stærð 1,2 x 5 cm
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Isager Baby Yarn

    • Grófleiki: Léttband - Þykkband / DK - Aran
    • Innihald: 68% alpaka, 32% bómull
    • Lengd/þyngd: 150 m/50 g
    • Prjónfesta 10 x 10 cm:
    • Baby yarn: 3,5 mm prjónar = 22 L / 30 umf
    • Baby yarn + Alpaca 1: 3,5 mm prjónar = 20 L / 29 umf
    • Baby yarn + Silk Mohair: 5 mm prjónar = 16 L / 22 umf
    • Þvottur: Handþvottur við 30°C
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Jafnþráða jafi fyrir útsaum, ólitaður. Þessi jafi hentar fyrir úttalin spor eins og t.d. krosssaum. Innihald: 100% hör/lín Þræðir per cm: 10 Hver lengdareining er 25 cm x 140 cm (breidd efnisins). Hægt er að velja eina eða fleiri lengdareiningar og við afgreiðum efnið í einum bút. 1 eining = 25 cm, 2 einingar = 50 cm, 3 einingar = 75 cm, 4 einingar = 100 cm. 25 cm lengdareining = 2.375 kr. Metraverð 9.500 kr. Athugið að það getur verið erfitt að sýna hárétta liti á tölvuskjá eða símaskjá.
  • Frágangsnálar með stóru, sveigjanlegu auga, fullkomnar fyrir garn af öllum grófleika. Þrjár stærðir í pakka.
  • Box fyrir árórugarn. Hólfin eru hönnuð fyrir sérstök spjöld sem útsaumsgarnið er valfið utan um. Það fylgja 50 spjöld úr þykkum pappa með boxinu. Einnig fylgir lítil vinda úr plasti til að flýta fyrir þegar garnið er undið á spjöldin. Þessi box eru ómissandi fyrir þau sem sauma út með árórugarni. Hægt er að hafa góða yfirsýn yfir litina og garnið helst í röð og reglu og flækist ekki.
  • Jafnþráða jafi úr hör/líni. Selt í pakkningu með 46 x 46 cm. Grófleiki 13 þræðir/1 cm. Nokkrir litir í boði.  
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Sérhönnuð prjónamerki af FIREFLY fyrir fagurkera. Þessi merki eru fyrir prjónara sem elska garn! Pakkningin inniheldur 8 merki, 2 hvít, 2 bleik, 2 græn og 2 svört. Búin til úr málmi með emelaraðri skreytingu með 10mm messinghringjum. FIREFLY er kanadískt vörumerki.

    Fullkomin gjöf fyrir þau sem prjóna og kunna að meta fallega fylgihluti!

  • Petite Knit | Key Sweater

    Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Þetta er rafræn uppskrift.  Þessi uppskrift er fáanleg á Íslensku. Við kaup á rafrænni uppskrift færð þú aðgang að öllum tungumálum sem búið er að þýða uppskriftina á.
    Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads.
    Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.
  • Hefðbundin útsaumskæri, lítil og handhæg.  Þau eru ekki bara falleg heldur góð fyrir útsauminn eða til að klippa spotta. Stærð: 9 cm.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Buddan er saumuð á stramma með krosssaumi með útsaumsgarni úr 100% ull.  Það eru fylgja margir litir af útsaumsgarni með. Hönnuðurinn leggur til að þið veljið litina af handahófi þegar saumað er. Þá verður þetta óvissuferð, en kemur alltaf fallega út því litirnir passa allir vel saman. Rennilás fylgir og liturinn á honum er mismunandi, en alltaf í stíl við garnið. Innihald: Strammi, jafanál, útsaumsgarn úr ull, rennilás, leðursnúra, mynsturteikning, efni fyrir frágang og leiðbeiningar á dönsku. Hönnuður: Søren Nielsen Stærð: 15 cm x 22 cm Þéttleiki: 44 spor / 10 cm.
  • ÖRYGGISAUGU Plast Stærð 8 mm Litur: Svört 1 par = 195 kr. Tvö augu og tvær festingar.
    • Grófleiki:  Grófband / Aran
    • Innihald:  86% ull, 20% pólýamíd, 4% viskós
    • Lengd/þyngd:  100 g/200 m
    • Prjónar:  4 - 5 mm
    • Prjónfesta:  18 lykkjur og 26 umferðir = 10 x 10 cm
    • Þvottur:  Ullarþvottakerfi við 40°C
     
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
    • Sokkar í kvenstærð fyrir NORO Silk Garden Sock  garnið sem fæst bæði einlitt og kaflalitað.
    • Þessir sokkar eru prjónaðir frá sokklegg að tá.
    • Það þarf eina 100 g hnotu af NORO Silk Garden Sock garninu í sokkapar. Ef notað er kaflalitað garn og sokkarnir eiga að vera eins þarf 200 g (þá er afgangur í annað sokkapar).
    • Prjónastærð er 2,75 mm eða sú stærð sem þarf til að ná réttri prjónfestu.
    UPPSKRIFTIN ER Á ÍSLENSKU ATH. Ef þið kaupið NORO Silk Garden Sock garn í sokkana fylgir uppskriftin með FRÍTT. Veljið garnið, setjið í körfu og setjið í skilaboðagluggann hvaða uppskrift þið veljið með (fimm mismunandi í boði). Uppskriftin verður send í tölvupósti um leið og varan er afgreidd. NORO Sokkauppskrift: FLOTLYKKJUR (prjónaðir frá sokklegg) NORO Sokkauppskrift: HLYNUR (prjónaðir frá tá) NORO Sokkauppskrift: LAUF (prjónaðir frá sokklegg) NORO Sokkauppskrift: SNÚRA (prjónaðir frá sokklegg) NORO Sokkauppskrift: STUÐLAR & GÖT (prjónaðir frá sokklegg)  
  • Sjálflímandi fatabót með endurskini sem henta á útivistarfatnað, regnfatnað, hlífðarfatnað o.þ.h. Stærð 10 x 20 cm. Hægt að klippa til í þá stærð sem þarf.
  • Ullarskafa til að hreinsa ló af ullarflíkum sem hnökra. Stundum hnökra peysur, sérstaklega ef þær eru prjónaðar úr mjúkri, snúðlinri ull. Oft eru þetta laus hár að ganga úr bandinu og peysan þannig að hreinsa sig. En stundum hnökra flíkur á álagssvæðum. Hver sem ástæðan er er gott að eiga áhald til að ná lónni af án þess að skemma peysuna eða þynna hana. Gleener er búið að margsanna notagildi sitt. Það fylgja þrír kambar með sem auðvelt er að skipta um, auk fatabursta. Fínn kambur fyrir fíngerðustu peysurnar, jafnvel úr silki eða silkiblöndu, miðlungs grófleiki sem hentar á flestar peysur og grófasti sem væri góður kambur fyrir lopapeysur eða sambærilegt garn. Þetta er smærri útgáfan af Gleener, en það fæst einnig Gleener til heimilisnota með stærra handfangi. Kambarnir eru jafnbreiðir, en ferðaútgáfan er minni um sig, án handfangs. Það er geymsluhólf fyrir kambana inni í kambinum. Poki fylgir til að geyma allt saman. Gleener er ekki bara fyrir peysur heldur einnig húsgögn, teppi og aðrar flíkur. Fataburstinn sem fylgir er upplagður til að ná dýrahárum og öðru kuski af. Engar rafhlöður. Gott fyrir umhverfið og hjálpar þér að láta flíkur og annan textíl endast lengur.  
  • Peysan PÁLÍNA er klassísk peysa eftir Helgu Thoroddsen. Notuð er tengiaðferð til að prjóna hálsmál, axlir og efri hluta erma. Allt prjónað, ekkert saumað saman. Peysur með þessu sniðu smellpassa og eru mjög klæðilegar.
    Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku.  Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðin birtist einnig í tölvupóstinum sem þið fáið eftir kaupin. Hægt er að hlaða uppskriftinni í tölvuna, spjaldtölvuna eða símann allt að fimm sinnum.
Go to Top