Í Finnlandi er rík vettlingahefð. Þaðan koma mörg geómetrík mynstur eða símynstur með ferningum, tíglum, þríhyrningum o.fl. sem hægt er að leika sér endalaust með. Þetta vettlingamynstur er undir áhrifum þeirrar hefðar. Með því að nota síðan einlitan grunn en marglitt garn í mynstrið kemur mikil hreyfing í mynstrið sem gerir það enn áhrifaríkara. Hér er ein útgáfa af nokkrum í vettlingaseríunni: Geómetrískir vettlingar.
Garn: Bio Merino 1 x 50g/150m & Edition 3 1 x 50g/50g frá Schoppel Wolle eða sambærilegt garn. Garnið í mynsturlitnum er kaflalitað og sprengt og því verða vettlingarnir ekki alveg eins!
Prjónar: Sokkaprjónar 2,5mm og 3 mm
Stærðir: Lítil, miðstærð og stór unglinga-/fullorðinsstærð
Tvíbandaprjónaðir vettlingar, ekki úr fíngerðasta garninu, prjónast því hraðar fyrir vikið. Íprjónaður þumall, auðvelt að stækka og minnka vettlingana ef þarf. Mynstrið er auðlært og fljótprjónað. Uppskriftinni fylgir teikning af mynstrinu og nákvæm vinnulýsing.
Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku.
Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðina er einnig að finna í kvittuninni sem send er í tölvupósti.