Mjúkspjalda | 127 bls.
Tungumál: Enska
Þyngd: 575 g | Mál: 250 x 250 mm
-
CLOVER Amour heklunálar eru einstaklega þægilegar í notkun. Krókurinn fremst er hannaður með það í huga að auðvelt sé að stinga í gegn og sækja nýja lykkju. Áferðin á málmhlutanum er hæfilega sleip þannig að lykkjurnar renna vel en haldast samt á sínum stað. Snilldarhönnun sem gerir heklið skemmtilegra og reynir minna á hendurnar. Handfang er úr mjúku efni sem er þægilegt viðkomu, rennur ekki og er hæfilega breitt og situr vel í hendi. Það er reynsla margra að Clover heklunálar reyni minna á hendurnar í hekli og þá verður auðveldara að hekla lengur áreynslulaust. Hvert númer af heklunál er í sérstökum lit. Í þessu setti eru 9 heklunálar í stærðum 2mm, 2,5mm, 3mm, 3,5mm, 4mm, 4,5mm, 5mm, 5,5mm og 6mm. Hægt er að kaupa stakar Amour heklunálar í stærðum 0,6mm til 15mm. -
Áfylling á fatakrít í duftformi. Fást í 4 litum: Gul, hvít, bleik, blá og silfur. Fatakrít með lausu dufti er frábært áhald til að merkja efni. Í stað þess að draga blýant eða penna eftir efninu, er hjóli á enda krítarhylkisins rúllað til að merkja línu. Hjólið er með örlitlum götum sem hleypa krítinni út um leið og þrýst er á það. Það myndast lína með þéttum, smáum punktum. Krítin þvæst auðveldlega úr. Hægt að velja um mismunandi liti eftir lit efnisins sem vinna á með. -
Það er auðvelt og öruggt að skipta um skurðarblöð í Clover skurðarhnífunum. Hvert skurðarblað kemur í sérstökum umbúðum til að koma í veg fyrir óþarfa snertingu.CLOVER 18mm skurðarblað í skurðarhníf. 5 stk. í pakka.Skurðarblöðin eru í stöðluðum stærðum þannig að það á að vera hægt að nota þau í allar gerðir skurðarhnífa. -
Afsláttur!
Segularmband sem geymir nálar, títuprjóna og jafnvel lítil skæri á meðan saumað er. Þægilegt í notkun og sparar vinnu og tíma. Raufin í miðjunni auðveldar að ná takinu af nálunum/títuprjónunum. Ef eitthvað dettur á gólfið eða ofan í skúffu er leikur einn að halda seglinum nálægt og allt sem loðir við segul hoppar upp í hann!