Lítil taska sem leynir á sér því hún hefur mikið notagildi. Frábær fyrir fólk á ferðinni! Létt, vatnsfráhrindandi með fjölbreytta notkunarmöguleika sem hægt er að aðlaga að þörfum hvers og eins. Hafðu töskuna á ská yfir öxlina með töskuna bakmegin eða að framan eftir því hvað er þægilegra. Allt það nauðsynlega kemst í töskuna, síminn, lítið prjónaverkefni og allt hitt. Nógu lítil til að hindra ekki athafnir en nógu stór fyrir allt það sem fylgir okkur daglega.

Hugsuð fyrir prjónaverkefnið eða hvað sem er. Góð handtaska fyrir hversdagslífið. Hönnuð fyrir skapandi einstaklinga á ferðinni.

Framleiðandinn hefur sjálfbærni að leiðarljósi við framleiðslu þessarar tösku. Hver taska er handunnin og tímalaus hönnun.

MAKER’S MINI MESSENGER taskan:

  • Stillanleg axlaról, verður allt að 105 cm löng.
  • Stutt handfang efst að auki.
  • Þykkt vaxborið bómullarkakí í ytra byrðinu og leðurhöldur og ólar.
  • Málmfestingar úr antík bronsi.
  • Falinn vasi á bakhlutanum með smellu.
  • Ytri vasi að framan með rennilás, tvö rennd innri hólf, tvo hólf að innan fyrir vatnsflöskur.
  • Innri vasar fyrir penna/prjóna, síma og garnmatari og þráðskeri.
  • Stærð: 20cm x 35cm x 10cm.

Hver taska kemur innpökkuð í umhverfisvænan poka.

Þessi vara er ekki til á lager og þvi ófáanleg eins og er.