20.995kr.
Maker’s Midi Backpack er bakpoki sem er ekki of stór og ekki of lítill. Fullkominn fyrir þau sem stunda hvers kyns handíðir og eru á ferðinni, en líka fyrir hin því þetta er fyrst og fremst góður og vandaður bakpoki. Axlarólarnar eru nógu breiðar til að dreifa þyngdinni í bakpokanum jafnt. Hann getur staðið óstuddur þökk sé fimm málmtöppum sem veita stuðning en koma líka í veg fyrir að botninn óhreinkist. Handföngin efst á töskunni eru þægileg þegar axlarólarnar eru ekki í notkun. Margir góðir vasar til að hafa skipulag á öllu sem er meðferðis.
Góð taska fyrir hversdagslífið. Hönnuð fyrir skapandi einstaklinga á ferðinni.
Framleiðandinn hefur sjálfbærni að leiðarljósi við framleiðslu þessarar tösku. Hver taska er handunnin og tímalaus hönnun.
Stærð: Lengd 35,5 cm x breidd 10 cm x hæð 32,3 cm.