6.995kr.

Þetta fylgihlutaveski er ómissandi fyrir alla prjónara og heklara. Hagnýt, lítil taska með aukahlutum sem passar örugglega í hvaða verkefnatösku sem er.

Innihald: Textíltaska með þrýstihnappi og augnholu, málband (allt að 150 cm), gullin einhyrningsskæri (10 cm), 5 lykkjukrækjur (2 gull, 3 silfur), 1 frágangsnál.

Er á lager

ADDI prjónar eru framleiddir af Selter fyrirtækinu. Fyrsta varan sem var framleidd var heklunál í Altena í Þýskalandi árið 1829. Vörumerkið ADDI varð til eftir 1950 og urðu vörurnar urðu fljótt vinsælar.

Af vöruúrvali ADDI þá framleiða þau sjálf 93% enn þá í Altena og flest er handgert. Gæði og notagildi hefur verið og er enn þeirra aðalsmerki.