6.995kr.

Verkefnatöskuna frá COCOKNITS er hægt að nota eins og ílát eða körfu sem stendur vel á borði eða sem tösku ef bætt er við leðurhöldum sem eru seldar sér.

Efni: Sterkur pappír sem þolir þvott og eldist vel.

Stærð: 15cm á dýpt  x 29cm breidd x 16,5cm hæð.

Inniheldur: Þrír ytri vasa, níu innri vasa.

Meðferð: Þolir þvott. Sjá neðar.

Gott til að halda skipulagi á prjónadótinu sínu. Hægt að nota eitt og sér eða setja inn í aðra tösku til að hafa allt á sínum stað. Prjónaverkefnið rúmast í miðhólfinu, og fylgihlutirnir og uppskriftin í hliðarvösunum. Pláss fyrir vatnsflösku, gleraugu, penna, hleðslusnúrur, lykla og annað sem þér dettur í hug að hafa með.

Höldur: Göt fyrir leðurhöldur til staðar ef vill. ATH. þær þarf að kaupa sér!

Meðferð:

Þvotturinn mýkir efnið sem líkist þá notuðu leðri. Þegar taskan er þvegin, fjarlægið þá teygjuna (og höldurnar), setjið í þvottavél á kerfi fyrir viðkvæman þvott í köldu vatni. Kreistið vatnið úr og krumpið ef þið viljið fá þannig áferð. Mótið og leyfið að þorna þar sem loftræsting er góð.