Original price was: 2.395kr..Current price is: 1.437kr..

40% Off

Allir litir á 40% afslætti á meðan birgðir endast!

  • Grófleiki: Fínband / 4ply / fingering
  • Innihald: 100% ull
  • Lengd/þyngd: 207 m/50g
  • Prjónar: 2-3,5 mm
  • Prjónfesta: 24 L á 3,5 mm prjóna, 28 L á 2,75 mm og 32 L á 2 mm prjóna = 10 cm
  • Handþvottur

LOFT er fíngerðasta garnið í tweed-fjölskyldunni frá Brooklyn Tweed og er mjög létt. Það er linspunnið tvíband, eins og grófari útgáfan Shelter, og því þarf að vinda það og prjóna varlega (en það venst fljótt). Eftir þvottinn mynda lykkjurnar slétta og áferðarfallega heild. Prjónafestan í Loft garninu er sveigjanleg eftir grófleika prjónanna og óskum þess sem prjónar. Á 2mm prjóna fæst þétt og ágætlega sterk prjónavoð en laus og lipur á 4mm prjóna. Hægt er að nota Loft tvöfalt í staðinn fyrir einfalt Shelter sem býður upp á möguleika á sprengdu mynstri með tveimur ólíkum litum.

Það kemur í 50g hespum í mörgum fallegum, náttúrulegum litum. Ullin er af bandarísku Targhee-Colombia fé. Það sem gerir þetta garn sérstakt er að í spunaferlinu lokast loft á milli þráða og garnið verður gljúpt og loftmikið. Útlitslega minnir garnið á einspinnu en er sterkara og nýtur sín betur í kaðlaprjóni og öðru útprjóni.

Loft fer í gegnum vinnsluferli þar sem þess er gætt að ullin haldi eiginleikum sínum og aðeins mild þvottaefni eru notuð. Þess vegna er viðbúið að einstaka sinnum finnist smá trefjar úr jurtaríkinu. Loft nýtur sín best eftir þvott en það ætti ekki á hafa áhrif á stærð eða breytingu á prjónfestu.

Hentar mjög vel í peysur, heilar eða opnar og alls konar fylgihluti eins húfur, sjöl og trefla. Uppáhaldsgarn margra sem hafa prjónað peysur úr því og notað mikið.

Þvottur

Fyllið vask með ylvolgu vatni – ekki meira en 30°C og setjið prjónaða flíkina á kaf í vatnið, kreistið varlega úr allar loftbólur sem myndast svo að flíkin haldist á kafi. Látið hana liggja í bleyti í 20-30 mínútur, svo að flíkin nái að blotna alveg í gegn. Fjarlægið aukableytu með því að rúlla flíkinni inn í hrein handklæði og þrýstið varlega. Leggið flíkina flata til þerris þar sem er nægt loftstreymi.