• ANCHOR árórugarn er 6 þráða útsaumsgarn úr 100% egýpskri hágæða bómull. Garnið er spunnið úr extra löngum, fíngerðum þráðum og merseríserað tvisvar sem gefur garninu gljáa, styrk og litunum dýpt. Útsaumsgarnið fæst einlitt í yfir 400 litum og nokkrum marglitum. Árórugarn hentar í alls konar útsaum, úttalin spor sem og frjálsan útsaum. Garnið er klofið og notaðir einn eða fleiri þræðir eftir grófleika jafans sem saumað er í. ANCHOR árórugarn er sambærilegt í gæðum við annað árórugarn á markaðnum. Fyrir þá sem þurfa er hægt að fá upplýsingar um hvernig er hægt að para saman litnúmer á milli kerfa eða framleiðenda. ANCHOR árórugarn þolir þvott í allt að 95°C heitu vatni. Hvert kefli er 30m (á meðan það eru 8m á hefðbundinni dokku).
  • Jafanálar, oddlausar fyrir úttalinn útsaum. Nálagrófleiki 18/24. Nálahús fylgir með.
  • Grófar frágangsnálar fyrir prjón, hekl og annað. Nálahús fylgir með.
  • Langur þræðari fyrir flosnál. 2 stk. í pakka. Sjá nánar upplýsingar með Flosnál með handfangi.
  • Nálar með opnu auga. Hentar vel fyrir:
    • viðgerðir
    • lykkjuföll
    • frágang
    • þræða garn
    Koma 2 í pakka.
  • Aukanál fyrir flosnál með handfangi. MEDIUM/FINE nálin er grófari fyrir garn í fínbandsgrófleika (4ply/fingering). 6-PLY nálin er fínni fyrir útsaumsgarn (4-6 þræði af árórugarni eða sambærilegt). 3-PLY nálin sem fylgir með Flosnál með handfangi er enn fínni. Sjá nánar upplýsingar með Flosnál með handfangi.
  • Útsaumshringir fánalegir í þremur stærðum Ø 15,2 cm, Ø 20,3 cm og Ø 25,4 cm. Þær eru úr sterku plastefni með smá glimmeri. Þær halda efninu vel strekktu og er auðvelt að herða og losa. Frábært fyrir allan venjulegan útsaum með nál. Veljið lit og stærð hér fyrir neðan.
  • Wonder klemmur eru hannaðar til að gera saumalífið einfaldara. Brúnir sem á að sauma saman eru klemmdar saman á auðveldan hátt.
    • Frábært í staðinn fyrir títuprjóna, sérstaklega ef unnið er með þykk efni eða efni sem ekki er hægt að stinga í.
    • Heldur vel saman mörgum lögum af efnum án þess að þau renni til.
    • Festir efni vel saman þegar binding er saumuð á bútasaumsteppi.
    • Klemmurnar eru áberandi og auðvelt að finna, líka þegar þær detta á gólfið.
    • Henta vel þegar lokusaumsvélar (overlock válar) eru notaðar.
    • Saumfar getur verið 5 mm, 7 mm and 10 mm.
    Innihald: 10 marglitar klemmur í pakka.
  • Þessi nál er sérstaklega hönnuð til að gera við prjónaðan og/eða ofinn fatnað þegar dregst til í honum. Tvær stærðir af nálum fylgja. Grófari nálin er góð fyrir lausar ofna/prjónaða voð. Fínni nálin er góð fyrir þéttara ofið/prjónaða voð. Hver nál er með kúlulaga oddi svo að þræðirnir í efninu klofni ekki. Nálarnar eru án auga og að hluta til með hrjúfa áferð. Notkun
    • Settu nálina í gegnum efnið þar sem dregið hefur til.
    • Dragðu nálina í gegnum efnið, þá festist þráðurinn sem stendur út á réttunni við nálina og dregst yfir á röngu.
  • Lín /hör, þéttofinn fyrir frjálsan útsaum. Fæst í nokkrum litum. Stærð búts 50 x 75 cm, þéttleiki/þykkt 160 g/m². Hágæða vefnaður úr líni frá SAJOU, frönsku fyrirtæki sem sérhæfir sig í hefðbundinni hannyrðavöru í frönskum stíl.
  • Stramminn leysist upp í 40-50°C heitu vatni á 5-10 mínútum. Sniðugt þegar sauma á út í flík eða annað. Hægt er að klippa strammann í hæfilega stóra búta. Stærð: 20 x 22 cm Grófleiki: 5,5 þræðir á cm.
  • Nálaþræðari sérstaklega hannaður fyrir útsaumsgarn og útsaumsnálar. Endinn á þræðaranum er flatur svo auðvelt sé að þræða, jafnvel þótt garnið sé gróft.
  • Sajou fyrirtækið er hvað þekktast fyrir nálabréfin. Þetta bréf er með úrvali af 40 nálum. Saumnálar með góðum oddi, 20 talsins ásamt 20 fíngerðum jafanálum.  Fullkomið fyrir fíngerða útsauminn og annan saumaskap. Frábær gjöf fyrir áhugafólk um hannyrðir.
  • Saumaðu út á einfaldan hátt með því að þrýsta nálinni í gegnum strekkt efni. Strekktu efnið á útsaumshring og teiknaðu með nálinni! Innihald
    • Flosnál með handfangi
    • 3-ply nál (fyrir 2-3 þræði af árórugarni)
    • Nálaþræðari
    Hægt að kaupa grófari nálar og þræðara sér. Notkun
    1. Þrýstu nálinni í gegnum vel strekkt efni og dragðu upp.
    2. Renndu nálinni eftir efninu og endurtaktu.
    Hægt að fá aukanál fyrir grófara garn. Garn
    • Útsaumsgarn t.d. árórugarn.
    • Heklugarn nr. 40 eða annað garn í sama grófleika.
    Heppileg efni
    • Þéttofin efni (meðalþykk eða þykk): Poplín, denim, ullarefni, flóki o.fl.
    Hentar ekki fyrir teygjanleg efni, leðurlíki eða gróf/gisin efni.
  • Sweet 'n Sharp Macaron er nálasegull sem heldur nálum og títiprjónum á sínum stað. Ekki bara sætur heldur líka nytsamlegur. Oddinum á saumnál er stungið í mjúka púðann í raufinni til að brýna hana. Fæst í tveimur litum:
    • Hindberjableikt (#4130)
    • Pistasíuhnetugrænt (#4131)
  • Eco Vita #3. The Mender's Wardrobe

    Útsaums- og mynsturbók frá DMC í Eco Vita línunni. Hér geta þau sem vilja lengja líf flíkanna sinna eða endurnýjað og skreytt með útsaumi fengið fullt af flottum hugmyndum. Í bókinni eru 21 hugmynd til að fegra og gera við fatnað með stæl. Hver flík mun endurspegla skapandi lífstíl og sjálfbærni! Allur útsaumur gerir ráð fyrir að notað sé DMC Eco Vita organic útsaumsgarnið.
  • Eco Vita #1. The Botanist's Cabinet

    Útsaums- og mynsturbók frá DMC í Eco Vita línunni. Mynstur furor b´æði frjálsan útsaum og krosssaum. Fjórtán mismunandi mynstur, hvert og eitt með góðum útskýringum, og myndum. Mynstrin eru öll saumuð með DMC Eco Vita organic útsaumsgarninu.  
  • Útsaumshringur Ø 18 cm, heldur efninu vel strekktu. Auðvelt að herða og losa. Frábært fyrir allan venjulegan útsaum með nál, en líka með flosnál og couture nál (þar sem efnið þarf að haldast vel strekkt).
  • Panamajafi úr beinhvítri bómull. Selt í pakkningu með 50 x 65 cm. Grófleiki 4,4 þræðir/1 cm. Jafi fyrir krosssaum og önnur úttalin útsaumsspor. Jafinn er það þéttur að hann gæti líka hentað í frjálsan útsaum.  
  • Panamajafi úr hvítri bómull. Selt í pakkningu með 50 x 65 cm. Grófleiki 4,4 þræðir/1 cm. Jafi fyrir krosssaum og önnur úttalin útsaumsspor. Jafinn er það þéttur að hann gæti líka hentað í frjálsan útsaum.  
  • Eco Vita #2. The Forester Wall

    Útsaums- og mynsturbók frá DMC í Eco Vita línunni. Í bókinni eru 19 mynstur fyrir frjálsan útsaum, krosssaum og flos, allar í anda náttúrunnar; skógar, engi og blóm. Allur útsaumur gerir ráð fyrir að notað sé DMC Eco Vita organic útsaumsgarnið.
  • Afsláttur!

    MAKING magazine #12

    Original price was: 4.895kr..Current price is: 2.937kr..
    MAKING #12 -DUSK. Bandarískt tímarit sem fjalla um hannyrðir og vélsaum frá ýmsum hliðum. Prjón, bútasaumur, fatasaumur og útsaumur, auk annarra aðferða. Hvert tímarit er með ákveðið þema. Margir hönnuðir leggja sitt af mörkum og útkoman er stórkostleg. Þetta er af mörgum talið fallegasta hannyrðatímarit sem gefið er út í dag! Skoðið myndirnar til að sjá sýnishorn af verkefnunum. Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að MAKING tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að MAKING kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur.
  • Afsláttur!

    MAKING magazine #13

    Original price was: 4.895kr..Current price is: 2.937kr..
    MAKING #13 - OUTSIDE. Bandarískt tímarit sem fjalla um hannyrðir og vélsaum frá ýmsum hliðum. Prjón, bútasaumur, fatasaumur og útsaumur, auk annarra aðferða. Hvert tímarit er með ákveðið þema. Margir hönnuðir leggja sitt af mörkum og útkoman er stórkostleg. Þetta er af mörgum talið fallegasta hannyrðatímarit sem gefið er út í dag! Skoðið myndirnar til að sjá sýnishorn af verkefnunum. Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að MAKING tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að MAKING kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur.
  • Afsláttur!

    MAKING magazine #11

    Original price was: 4.895kr..Current price is: 2.937kr..
    MAKING #11 - DAWN. Bandarískt tímarit sem fjalla um hannyrðir og vélsaum frá ýmsum hliðum. Prjón, bútasaumur, fatasaumur og útsaumur, auk annarra aðferða. Hvert tímarit er með ákveðið þema. Margir hönnuðir leggja sitt af mörkum og útkoman er stórkostleg. Þetta er af mörgum talið fallegasta hannyrðatímarit sem gefið er út í dag! Skoðið myndirnar til að sjá sýnishorn af verkefnunum. Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að MAKING tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að MAKING kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur. Með hverju tímariti fylgir kóði til að hlaða því niður rafrænt.
Go to Top