-
Prjónasett úr birki sem er sterkur viður og með slétta og mjúka áferð. Hver prjónaoddur er 9 cm langur eða hæfileg lengd á oddum fyrir stuttar snúrur eða 40 cm +. Allir LYKKE prjónaoddarnir eru merktir með stærðunum og merkingin endist vel og lengi. Innihald: 9 oddapör í grófleikum 3,25/3,5/3,75/4,0/4,5/5,0/5,5/6,0/6,5 mm. 4 snúrur - 2 х 40 cm, 1 х 50 cm, 1 х 60 cm. 2 snúrutengi, 4 lyklar (til að losa og herða) og 8 tappar (til að setja framan á snúrurnar þegar lykkjur eru geymdar). Prjónaveski sem lokast með smellu og vasa fyrir alla smáhlutina. FRÍ SENDING!
-
Prjónasnúrur fyrir Knit Pro prjónaoddana. Þessar eru úr stálvír sem er nælonhúðaður og þær eru "minnislausar". Snúran snýst 360° við samskeytin sem minnkar verulega líkurnar á því að prjónninn losni. En eins og í öllum samsettum prjónum frá Knit Pro þarf að nota sérstakan pinna til að herða og losa þegar skipt er um prjón (ef pinninn týnist er alltaf hægt að nota nál). Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. Snúrurnar fást í lengdum til að mynda 40cm, 50cm, 60cm, 80cm og 100cm. Einnig er hægt að nota snúrurnar til að geyma lykkjur því það fylgja tveir tappar með hverri snúru. Þá er líka hægt að fá millistykki til að tengi saman tvær snúrur eða tengja eina snúru í hring til að geyma lykkjur.
-
ADDI Click SOS snúrur, 3/pk; 60cm, 80cm og 100cm. ADDI SOS snúrur eru eins og aðrar snúrur, nema það er lítið gat beggja vegna þar sem samskeytin eru. Götin eru til að þræða fíngert garn eða þráð í gegnum og hnýta. Síðan er umferðin prjónuð eins og venjulega. Þráðurinn er losaður og hnýttur saman. Ef villa uppgötvast er snilld að geta sleppt lykkjunum af prjóninum, rakið upp og lykkjurnar sitja öruggar á þræðinum. Þetta þarf svo að endurtaka reglulega svo ekki þurfi að rekja mjög langt niður í hvert sinn, t.d. á 10-20 umferða fresti. Það er upplagt að nota þessa aðferð við alls konar gataprjón og klukkuprjón sem getur verið erfitt að rekja upp.
-
Prjónasnúrur fyrir Knit Pro prjónaoddana. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. Snúrurnar fást í lengdum til að mynda 40cm, 50cm, 60cm, 80cm og 100cm. Hver lengd kemur í sérstökum lit til þæginda fyrir okkur. Einnig er hægt að nota snúrurnar til að geyma lykkjur því það fylgja tveir tappar með hverri snúru, svo og pinni til að festa og losa þegar prjóninn er skrúfaður á. Við mælum með því að nota alltaf pinnann til að losa og festa svo að prjóninn losni ekki þegar prjónað er. Þá er líka hægt að fá millistykki til að tengi saman tvær snúrur eða tengja eina snúru í hring til að geyma lykkjur.