Mjúkspjalda | 88 bls.
Tungumál: Enska
Þyngd: 350 g | Mál: 200 x 270 mm
Skemmtilega bók um lettneska vettlingahefð eftir japanskan höfund. Í bókinni eru uppskriftir af vettlingum og öðrum fylgihlutum. Góðar mynsturteikningar gera prjónaskapinn auðveldari og ættu að opna öllum áhugasömum leiðina að tvíbanda vettlingaprjóni.
Mjúkspjalda | 161 bls.
Tungumál: Enska
Þyngd: 850 g | Mál: 240 x 310 mm
ROWAN tímaritin koma út tvisvar á ári, vor- og sumarblað og haust- og vetrarblað. Hver tímarit er fullt af uppskriftum fyrir dömur og herra, peysur og fylgihlutir eftir helstu hönnuði Rowan hvers tíma. Flestar uppskriftirnar eru fyrir prjón en það eru einnig hekluppskriftir inn á milli.
Í nýjustu blöðunum hefur peysum sem eru prjónaðar í hring og jafnvel ofan frá fjölgað.
Storkurinn er ein af fáum garnbúðum sem hafa selt Rowan garn og tímarit frá upphafi Rowan. Við eigum því sýnishorn af öllum útgefnum blöðum og mörg þeirra eru enn í sölu.
Höfundur: Jenna Kostet
Útgefandi: Laine Publishing (2024)
Harðspjalda | 200 bls.
Tungumál: Enska
Þyngd: 810 g | Mál: 190 x 250 x 20 mm
KNITTED KALEVALA BÓK II
Bók með fallegum tvíbandaprjónuðum peysum. Svar finnska hönnuðarins Jenni Kostet við íslensku lopapeysunni. Ef þú ætlar að eignast eina klassíska bók með tvíbandaprjóni þá er það þessi. Það gerist ekki oft að allar peysurnar í bókinni kalla á mann og vilja láta prjóna sig. Fyrir þá sem vilja fylgir ljóð og þjóðsaga úr Kalevala með hverri uppskrift.
Bókin inniheldur 20 uppskriftir (13 peysur, 2 jakkapeysur, 1 kjól, 3 sokka og einn hálsklút.
Sígild prjónhönnun!
Uppskriftirnar innihalda bæði mynsturteikningar og skriflegar vinnulýsingar.
Endurskinsþráður fyrir prjón eða hekl. Lagður með garni t.d. neðst á húfu. Nokkrar umferðir gera gagn.
Þráðurinn er flatur, 0,5 mm á breidd - 50 m á kefli.
Útgefandi: Vaka Helgafell (2024)
Harðspjalda | 285 bls.
Tungumál: Íslenska
Þyngd: 1.285 g
ULLARÆÐI 2
Hin finnska Heli Nikula sló í gegn á Instagram með síðuna sína VILLAHULLU sem þýðir bókstaflega ullaræði. Þess var ekki langt að bíða að bókaútgefandi hafði samband við hana og lagði til að hún skrifaði prjónabók. Hún er mikill aðdáandi lopapeysunnar en fer sínar eigin leiðir í mynsturgerð og peysuhönnun. Í bókinni er bæði að finna uppskriftir, fyrir fullorðna, fyrst og fremst peysur en líka húfur, lambhúshettu og vettlinga. Hún notar sjálf mest lopa en einnig aðra ull í tveimur grófleikum; þykkband fyrir prjóna 4,5-5 mm og grófband fyrir prjóna 6-7 mm. Hér er að finna margar skemmtilegar peysuuppskriftir sem eiga eftir að verða klassískar.
Peysurnar eru allar prjónaðar á hefðbundinn hátt, neðan frá og upp.
Það er nýr og ferskur blær yfir þessari bók og hún verður mikill fengur fyrir aðdáendur lopapeysunnar.
Guðrún Hannele Henttinen þýddi.
Tungumál: Enska & hollenska (sama heftið)
Þyngd: 160 g | Mál: 21 x 29 mm
NOVITA gefur reglulega út prjónahefti með uppskriftum. Í þessu hefti eru 11 uppskriftir af peysum og fylgihlutum karlmenn og smábörn.
Peysurnar eru stílhreinar og klassískar og hannaðar til að nota vel og lengi. Uppskriftirnar eru á tveimur tungumálum; ensku og hollensku.
Tungumál: Sænska
Þyngd: 350 g | Mál: 21 x 29,5 mm
NOVITA tímaritin koma út fjórum sinnum á ári; vor-, sumar-, haust- og vetrarblöð. Hvert tímarit með um eða yfir 40 uppskriftum fyrir börn, fullorðna og heimilið.
Uppskriftirnar eru með teikningum ef við á og er auðvelt að fylgja. Í hverju blaði er er kennsla á tiltekinni aðferð í hannyrðum.
Harðspjalda | 191 bls.
Tungumál: Sænska
Þyngd: 890 g | Mál: 197 x 267 x 23 mm
Við höfum áður verið með þessa bók á norsku og ensku en hér er hún komin á sænsku. Sama góða vettlingabókin sem hefur slegið öll vinsældarmet og nú á frábæru verði.
Jorid Linvik er höfundur nokkurra mjög vinsælla prjónabóka um vettlinga- og sokkaprjón. Þessi bók eru með fjölbreyttum uppskriftum af vettlingum í litríkum og fallegum mynstrum. Alls 45 prjónaverkefni, í stíl Joridar, glaðleg og uppáhald margra, enda metsöluhöfundur í prjónaheiminum. Mikið af góðum myndum, mynsturteikningum og skýringum á aðferðum.
Bókin inniheldur: Góðar leiðbeiningar um vettlingaprjón, mynsturteikningar og að auki reiti til að gera þitt eigið mynstur.
Margar stærðir bæði á börn og fullorðna. Eitthvað fyrir alla, bæði hefðbundið, rómantískt og nýjar hugmyndir.
Höfundur: Linka Neumann
Útgefandi: Lind & Co (2021)
Mjúkspjalda | 143 bls.
Tungumál: Sænska
Þyngd: 670 g | Mál: 200 x 257 x 15 mm
Ævintýrið heldur áfram - meira af peysum fyrir yngri og eldri frá Linka Neumann
Hér er önnur bók Linku Neumann með meira af flottum útivistarpeysum fyrir börn og fullorðna. Margar peysur úr bókinni eiga eftir að rata í jólapakka fjölskyldunnar.
Bókin inniheldur 26 prjónaverkefni; peysur, vettlingar, húfur og fleira. Mynsturteikninfar fylgja öllum uppskriftum og myndirnar í bókinni munu fylla alla prjónara innblæstri því þær eru svo fallegar. Peysurnar er bæði í anda lopapeysunnar með hringmynstri á axlastykkinu, en líka með ísettum ermum og laskaermum.
Stærð barna er breytileg og því borgar sig alltaf að mæla barnið sem á að fá peysuna, fremur en að styðjast eingöngu við aldur.
Höfundur: Karin Kahnlund
Harðspjalda | 151 bls.
Tungumál: Sænska
Þyngd: 550 g | Mál: 177 x 253 x 19 mm
Prjónameistarinn Karin Kahnlund prjónar vettlingar allan ársins hring.
Í Svíþjóð eru veturnir kaldir og vettlingar nauðsynlegir. Allir eiga vettlinga og það er löng vettlingahefð í Svíþjóð. Í bókinni eru hefðbundnir sænskir vettlingar ásamt nýrri hönnun; fingravettlingar, belgvettlingar, og grifflur í mörgum ólíkum útfærslum.
Karin Kahnlund gerir góðar uppskriftir með smáatriðum og tækni þannig að prjónarar geti gert mismunandi kanta, stofna, þumaltungur, úrtökur á totu og mynstur. Virkilega eiguleg bók fyrir áhugafólk um vettlingaprjón.
Höfundur: Anna Bauers
Ùtgefandi: Bokförlaget Polaris (2023)
Harðspjalda | 150 bls.
Tungumál: Sænska
Þyngd: 680 g | Mál: 258 x 188 x 18 mm
Anna Bauer er textíllistakona hefur safnað saman gömlum rúðumynstrum sem er hægt að nota í prjóni og úttalinn útsaum. Mjög skemmtileg bók sem á eftir að nýtast mörgum sem vilja setja mynsturbekki á peysur, sokka eða vettlinga. Eiguleg handbók fyrir hannyrðafólk.
Það hafa áður komið út tvær bækur um "hönsestrik" eftir Anna Bauer þar sem þessi mynstur nýtast vel.
Höfundur: Kate Davies
Útgefandi: Kate Davies Designs (2020)
Mjúkspjalda | 119 bls.
Tungumál: Enska
Þyngd: 470 g | Mál: 210 x 260 mm
Warm Hands
Dásamlega falleg vettlingabók þar sem líka leynast handstúkur og grifflur.
When Jeanette Sloan and Kate Davies got together to develop a new design collection the results were sure to be colourful and creative. From their line-up of 15 original patterns, you might choose to knit mismatched mitts in bold two-tone intarsia or a dramatic pair of elbow-length cabled gauntlets. From warm mittens to delicate wristlets, from fingerless to full gloves, Jeanette and Kate’s design selection includes a wide variety of shades and styles, while among the book’s many different takes on texture, lace and colourwork, you’ll be sure to find your favourite kind of knitting, or interesting new techniques to explore. Featuring patterns from globally-renowned knitting names alongside the work of talented new faces, this innovative collection brings the work of designers around the world together with fresh ideas, ready needles—and warm hands.
Harðspjalda | 175 bls.
Tungumál: Enska
Þyngd: 860 g | Mál: 212 x 277 x 21 mm
Strands of Joy Vol. II er önnur bókin hennar Önnu Jóhönnu sem mörg hafa beðið spennt eftir. Bókin stendur undir væntingum, full af alls konar peysum og fylgihlutum.
Smellið á hlekkinn hérna fyrir neðan til að skoða sýnishorn úr bókinni.
Nánar um bókina:Pattern Previews for Strands of Joy Vol. II
Tungumál: Enska, þýska & hollenska og sænska (sama heftið)
Þyngd: 475 g | Mál: 21 x 27 mm
NOVITA gefur reglulega út prjónahefti með uppskriftum. Í þessu hefti eru þau í samstarfi við hið alkunna ARABIA fyrirtækið, sem gerir ýmsa fallega heimilismuni, keramik og textíl. Í blaðinu má finna 23 uppskriftir af ýmsum nytja og skrautmunum, til dæmis púðum, glasamottum, teppu, mottu, peysu og tösku.
Þægilegur teljari sem telur uppi 99. Hann er með lykkju sem er ætluð til að setja utan um prjóninn. Þannig er hægt að nota teljarann sem merki fyrir byrjun umferðar um leið og fylgst er með umferða- eða lykkjufjölda. Ef það hentar ekki að hafa teljarann utan um prjóninn er hægt að festa hann við prjónverkið með lykkjukrækju.
Hægt er að snúa teljaranum 360° á lykkjunni, þannig snýr hann alltaf rétt.
Passar fyrir 2 mm - 10 mm hringprjóna og bandprjóna.