Mjúkspjalda | 68 bls.
Tungumál: Enska Þyngd: 278 g | Mál: 210 x 260 x 7 mm-
Afsláttur!Höfundur: Kim Hargreaves Útgefandi: Kim Hargreaves (2020)
-
Afsláttur!Höfundur: Kim Hargreaves Útgefandi: Kim Hargreaves (2010)Mjúkspjalda | 104 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 520 g | Mál: 220 x 280 x 8 mm
-
Afsláttur!Höfundur: Kim Hargreaves Útgefandi: Kim Hargreaves (2008)Mjúkspjalda | 108 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 540 g | Mál: 220 x 280 mm
-
Höfundur: Aimée Gille Útgefandi: Laine Publishing (2021)Harðspjalda | 160 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 650 g | Mál: 190 x 225 x 17 mmÞessi fallega bók kemur frá LAINE. Worsted er safn 14 prjónauppskrifta eftir tíu flotta hönnuði. Aimée Gille frá La Bien Aimée ritstýrði og valdi uppskriftirnar. Mismunandi prjóntækni og fjölbreytileiki einkennir bókina. Sami grófleiki af garni, þykkband / worsted / aran er notaður í allar uppskriftirnar. Á meðal 14 uppskrifta eru 5 peysur, 2 golftreyjur, 1 slá, 3 sjöl, 2 kragar og 1 húfa. Peysurnar eru í mörgum stærðum frá stærð 1 (75 cm yfirvídd) upp í stærð 8 (165 cm yfirvídd).
-
Höfundur: Julie WeisenbergerÚtgefandi: Cocoknits (2017) Mjúkspjalda | 144 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 567 g | Mál: 220 x 281 x 15 mmJulie Weisenberger hefur að baki 30 ára reynslu í prjónhönnun og prjónkennslu og þetta er hennar fyrsta bók: Cocoknits Sweater Workshop sem inniheldur átta peysuuppskriftir. Hún leggur áherslu á einfaldar peysur prjónaðar ofan frá án sauma.Bókin er ekki bara uppskriftabók, heldur er aðferðafræði hennar the Cocoknits Method – prjónakerfi þar sem þú fylgist með framganginum í prjóninu og fyllir út vinnublað á auðveldan og aðgengilegan hátt. Ólíkt flestum hefðbundnum peysuuppskriftum sem ger flöt stykki, þá er hér gert ráð fyrir þrívíðu peysuformi sem lagar sig að efri hluta líkamans og passar vel. Allar peysurnar eru prjónaðar frá hálsmáli. Um leið og lokið er við hálsmálið og axlarstykkið er leikur einn að prjóna það sem eftir er af peysunni. Það er augljós kostur við að prjóna ofan frá; hægt er að máta peysuna til að ákvarða sídd á ermum og bol. Bókin inniheldur einnig leiðbeiningar um hvernig á að velja gott snið miðað við þína líkamsstærð eða lögun m.t.t. litavals eða litasamsetningar, útprjóni (upphleyptar lykkjur), faldar og sídd og fleira sem skiptir máli. Hægt er að kaupa vinnuhefti fyrir þessa bók og prjónakerfi.
-
Höfundur: Julie WeisenbergerÚtgefandi: Cocoknits (2021) Mjúkspjalda | 28 bls. Tungumál: EnskaÞyngd: 200 g | Mál: 220 x 280 x 10 mmSWEATER WORKSHEET JOURNAL COCOKNITS Sweater Worksheet er hluti af prjónakerfi frá Cocoknit (samheiti yfir svona aðferðir er tengiaðferð) til að prjóna peysu ofan frá, aðsniðna yfir axlir, án sauma eða í einu stykki. Vinnubókin er fyrir þá/þær sem hafa tileinkað sér Cocoknits aðferðina. Prjónari fyllir inn upplýsingar um peysuprjónið, lykkjufjölda, umferðir, cm o.fl. og getur svo í framhaldinu notað þær upplýsingar til að prjóna fleiri peysur í sömu stærð. Vinnubókin inniheldur 24 vinnublöð og grunnupplýsigar um hvernig þau eru notuð.
-
Afsláttur!Höfundur: Michelle Wang Ritstjórn: Brooklyn Tweed (2017)Mjúkspjalda | 138 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 499 g |
CAPSULE | Michele Wang fyrir Brooklyn Tweed
Þessi bók; CAPSULE frá Brooklyn Tweed beinir sviðsljósinu að prjónhönnun Michele Wang. Þetta er önnur bókin í CAPSULE seríunni, og þar notar hönnuðurinn tweed garnið frá Brooklyn Tweed til að hanna nútímalegar peysur á bæði kynin. Peysurnar eru allt frá því að vera einfaldar og stílhreinar í flóknari mynsturpeysur. Átta uppskriftir, hver annari áhugaverðari, tilvísun á ánægjulegar prjónastundir og frábærar flíkur til að eiga og nota.