• Einrúm er ekki aðeins með garnlínu heldur einnig fullt af flottum uppskriftum. Þær eru margar hverjar hannaðar af Kristínu Brynju sjálfri en einnig öðrum hönnuðum. Upphafsstafir hönnuðarins eru merki uppskriftarinnar.
    SKOKKUR - KBG 06 Hönnuður: Kristín Brynja Garn: 100 (150) 200 (200) g E-band.Prjónar: 3 mm hringprjónar og sokkaprjónar. Stærðir: 1 (3) 5 (7) ára
    Þessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír og er á þremur tungumálum; íslensku, dönsku og ensku.
  • Vefnaðarrammi fyrir börn. Stærð 23 x 23 cm. Raufar til að strekkja uppistöðuna utan um rammann. Einfalt og skemmtilegt fyrir krakka að vefa kringlótt stykki með grófri jafanál. Best að nota bómullargarn fyrir uppistöðuna og síðan alls konar afgangsgarn til að vefa með.
  • Vefnaðarrammi fyrir börn. Þvermál 21 cm. Göt til að þræða uppistöðuna í gegnum. Einfalt og skemmtilegt fyrir krakka að vefa kringlótt stykki með grófri jafanál. Best að nota bómullargarn fyrir uppistöðuna og síðan alls konar afgangsgarn til að vefa með.
Go to Top