1.295kr.

Einrúm er ekki aðeins með garnlínu heldur einnig fullt af flottum uppskriftum. Þær eru margar hverjar hannaðar af Kristínu Brynju sjálfri en einnig öðrum hönnuðum. Upphafsstafir hönnuðarins eru merki uppskriftarinnar.

SKOKKUR – KBG 06

Hönnuður: Kristín Brynja

Garn: 100 (150) 200 (200) g E-band.Prjónar: 3 mm hringprjónar og sokkaprjónar.

Stærðir: 1 (3) 5 (7) ára

Þessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír og er á þremur tungumálum; íslensku, dönsku og ensku.

Aðeins 1 eftir á lager

HÖNNUÐUR: KRISTÍN BRYNJA

Litlar stelpur í stórum peysum eru eitt af því krúttlegasta sem ég veit. Þegar elsta stelpan mín var lítil var ekki hægt að klæða hana í annað en kjóla og stórar peysur í nokkur ár. Skokkurinn hentar vel svona litlum skottum sem vilja helst vera í sokkabuxum og stórri peysu. Hann minnir á háskólabol með vasa þar sem ermarnar hafa verið klipptar af.

BAND

Uppskriftin er hönnuð fyrir einrúm E-band.
Skokkurinn á myndinni er prjónaður í lit E-1004.

1 (3) 5 (7) ára – 100 (150) 200 (200) g E-band.

PRJÓNAR

Hringprjónar  3 mm. Sokkaprjónar 3 mm.

STÆRÐIR

1 (3) 5 (7) ára

Hálf yfirvídd: 28 (32) 36 (40) cm
Sídd frá handvegi: 32 (38) 46 (54) cm
Ermalengd: 4 (5) 6 (7) cm

Title

Go to Top