- Grófleiki: Fisband /Lace
- Innihald: 60% móhár og 40 % silki
- Lengd/þyngd: 300 m/25g
- Prjónar: 3-5 mm
- Prjónfesta: 22 lykkjur og 30 umferðir = 10 x 10 cm
- Þvottur: Handþvottur 30°C
-
Afsláttur!Radåm er nýtt og spennandi tímarit fyrir prjónara sem vilja hafa puttann á púlsinum í nýrri prjónhönnun.
-
Höfundur: Anna JohannaÚtgefandi: Quadrille Publishing (2022)Mjúkspjalda | 176 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 760 g | Mál: 215 x 270 x 21 mmStrands of Joy inniheldur 20 fjölbreyttar uppskriftir, þ.á.m. heilar og opnar peysur og flottan kjól, húfu og krakkapeysu. Allar uppskriftirnar gera ráð fyrir að prjónað sé ofan frá og í hring. Fitjaðu upp á tvíbandaprjónaðri flík, láttu hugann finna ró á meðan þú tekst á við verkefni sem þarfnast meiri einbeitingar. Anna Johanna er prjónhönnuður frá Muurame í mið Finnlandi. Hún er þekkt fyrir rómantískar flíkur og leggur áherslu á smáatriðin, áferð og liti. Hún er tölfræðingur en hefur frá 2020 eingöngu unnið við prjónhönnun. Strands of Joy (á finnsku Onnensäikeitä) er fyrsta bókin hennar. Innihald: 20 colourwork knitting patterns (10 peysur, 7 jakkapeysur, 1 kjóll, 1 húfa, 1 krakkapeysa). Uppskriftirnar fyrir fullorðins peysur koma í 9 - 12 stærðum. ATH. Þessi bók kom upprunalega út hjá LAINE sem harðspjaldabók en er hér í mjúkspjaldaútgáfu frá bresku forlagi.
-
Sæbjörg er sokkar sem eru þægilegir í prjóni. Hællinn er hefðbundinn bandhæll, sem er líka þekktur undir nafninu Halldóruhæll. Hér er þó útgáfa þar sem hælstallurinn er með garðaprjónskanti sem minnkar líkur á að það myndist göt þegar hælstallslykkjurnar eru prjónaðar upp. Þá er bæði hælstallurinn og hæltungan með styrkingu eða prjónað með óprjónuðum og prjónuðum lykkjum á víxl til að gera hælinn þéttari og mýkri.Gægt er að hafa stroffið á sokkleggnum hærra og brjóta það tvöfalt, ykkar er valið. Þægindin við að stroffið nái niður að hæl er að þá er svo auðvelt að bregða sér í og úr sokkunum.Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku. Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni, smellið á hana til að hlaða henni niður. Það er einnig hægt að smella á slóðina sem er að finna í kvittuninni sem send er í tölvupósti.
-
Rollfix málböndin eru þýsk gæðaframleiðsla og vinsælustu málböndin hjá okkur. Þau eru þægileg í notkun; málbandið er dregið út og er með stoppara. Dregið aftur inn með því að ýta á miðjuna. Skelin er úr sterku ABS plasti og fást með alls konar skreytingum. Málbandið sjálft er líka úr endingargóðu efni sem teygist ekki. Merkingin er svört á hvítum grunni. Skelin er 5 cm í þvermál og málbandið mælir bæði í cm og tommum. Lengd 150 cm.
-
Afsláttur!LAINE SAUTJÁN Finnskt tímarit (á ensku) með prjónhönnun á heimsmælikvarða. Margir hönnuðir leggja hönd á plóg og tryggja úrval að áhugaverðum peysum og fylgihlutum. Mikil áhersla er lögð á greinagóðar uppskriftir. Þá fyglir ein mataruppskrift að auki. Stílhreint tímarit á ensku með fallegri myndatöku. Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að LAINE tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að LAINE kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur.
-
Afsláttur!Höfundur: ROWAN Útgefandi: Rowan (2021)Mjúkspjalda | 152 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 400 g | Mál: 195 x 270 mm
-
Afsláttur!Höfundur: ROWAN Útgefandi: Rowan (2020)Mjúkspjalda | 65 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 410 g | Mál: 195 x 270 mm
-
Höfundur: Paula Nivukoski ritstjóriÚtgefandi: Forlagið (2023) Harðspjalda | 176 bls. Tungumál: Íslenska Þyngd: 910 gEf þú ert aðdáandi múmínálfanna og þeirra fylgisveina og prjónar þá er þetta bókin fyrir þig! Allir ættu að geta fundið sína uppáhaldspersónu í einhverri sokkauppskriftinni í bókinni. Hér stilla fimm finnskir prjónhönnuðir saman strengi og færa okkur 29 sokkapör innblásin af sögum Tove Jansson um múmínálfana. Hér birtast þessar dáðu persónur í glaðlegum mynstrum og hugmyndaríkri hönnun. Sokkarnir eru í fjölbreyttum stærðum sem henta allri fjölskyldunni en í bókinni er auk þess bent á ýmsar leiðir til aðlaga uppskriftirnar þannig að þær passi hverjum og einum sem best. Hér ættu því allir múmínaðdáendur að finna sokkapar við sitt hæfi. Athugið að sokkarnir eru allir prjónaðir úr garni úr Moomin x Novita garnlínunni sem fæst núna í Storkinum. En ef þið viljið nota annað garn þá er það léttband (DK) eða garn fyrir 4 mm prjóna, og sokkarnir eru svo allir prjónaðir á 3 mm prjóna til að gera þá þéttari. Í bókinni eru flestir hælarnir bandhælar (Halldóruhæll) en þar er líka að finna franskan hæl og totuhæl. Tvíbandaprjón, myndprjón í hring, tvíbandaprjón með bindilykkjum (ný aðferð fyrir flesta!) koma við sögu. Bókin er því með öllu erfiðleikarófinu í sokkaprjóni. Vísað er í fjögur myndbönd til að kenna prjóntækni sem notuð er. Guðrún Hannele Henttinen þýddi.
-
Garn: Love Story í 4 litum (sjá fyrir neðan).Prjónar: Hringprjónn 80-100 cm 3 ½ mm. Í uppskriftinni er ítarleg vinnulýsing og hún er seld sem pdf skjal og er á íslensku.Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Einnig er hægt að smella á slóð sem er í tölvupósti sem sendur er eftir kaupin.