-
Góður skurðarhnífur með 45mm blaði fyrir alla námkvæmisvinnu í bútasaumi. Skurðarhnífar eru ómissandi áhald fyrir bútasaumara. Hnífurinn situr vel í hendi og það er auðvelt að skera fljótt og vel með honum. • Hentar bæði rétthentum og örvhentum. Hlífinni er einfaldlega snúið eftir því hvor höndin er notuð. • Sker vel sama hvernig hnífnum er beitt; lóðrétt eða á ská, því blaðhlífin hefur nægilegt svigrúm en blaðið sjálft nær mátulega langt út fyrir brúnina til að gæta öryggis. • Gripið á handfanginu er þægilegt með stömum en mjúkum snertiflötum. • Hægt að stilla hve hratt skurðarblaðið rennur. Ef skrúfan er hert hægist á blaðinu sem auðveldar skurð á þykkari efnum.
-
Frábærar merkikrækjur, enda ein af okkar allra vinsælustu vörum. Þær eru úr efni sem endist vel (brotna ekki). Krækjurnar eru mest notaðar til að merkja umferðir, t.d. úrtökur eða útaukningar. Það eru tvær stærðir fáanlegar. Þessar eru minni. Innihald: 20 merkikræjur í tveimur litum, plastumslag til að geyma þær í fylgir. Athugið að það er betra að hafa krækjurnar lokaðar þegar þær eru ekki í notkun.
-
ADDI hringprjónar úr málmi. Prjónaoddarnir eru léttir úr kopar, húðaðir með hvítu bronsi. Snúrurnar eru mjúkar og samskeyti snúru og prjóns slétt. ADDI prjónarnir eu hannaðir og framleiddir í Þýskalandi fyrir prjónara sem vilja aðeins bestu gæði. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. 12mm prjónarnir eru með slöngur, ekki snúru.
-
LAINE TUTTUGU OG FIMM LAINE magazine #25 Finnskt tímarit (á ensku) með prjónhönnun á heimsmælikvarða. Margir hönnuðir leggja hönd á plóg og tryggja úrval að áhugaverðum peysum og fylgihlutum. Mikil áhersla er lögð á greinagóðar uppskriftir. Þá fyglir ein mataruppskrift að auki. Stílhreint tímarit á ensku með fallegri myndatöku. Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að LAINE tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að LAINE kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur. Skoða fleiri LAINE tímarit HÉR
-
Höfundur: Leeni Hoimela Ùtgefandi: Cozy Publishing (2022) Harðspjalda | 183 bls. Tungumál: EnskaÞyngd: 835 g | Mál: 215 x 265 mm
Urban knit Easy
Urban Knit Easy er sérstaklega falleg prjónabók með peysum og fylgihlutum eftir Leeni Hoimela frá Finnlandi. Þetta er önnur bókin sem við erum með frá henni. Leeni er einstaklega smekklega kona og stíllinn hennar afslappaður og höfðar til margra prjónara í dag. Uppskriftir eftir Leeni Hoimela haf áður birst í Laine Magazine og fleiri tímaritum. -
Höfundur: Leeni Hoimela Ùtgefandi: Cozy Publishing (2024) Harðspjalda | 199 bls. Tungumál: EnskaÞyngd: 820 g | Mál: 215 x 265 mm
Urban knit : Modern Nordic Patterns
Urban Knit Classics er eftir hina hæfileikaríku Leeni Hoimela frá Finnlandi. Þetta er þriðja bókin sem við erum með frá henni. Stíllinn höfðar til marga nútímaprjónara, norrænn og klassískur. Peysur og fylgihlutir prjónaðir úr gæðagarni sem eiga að standast tímans tönn, halda notagildi sínu í mörg ár. Allt í takt við nýja tíma þegar við vöndum okkur við fatavalið og eigum þau lengi. Uppskriftir eftir Leeni Hoimela haf áður birst í Laine Magazine og fleiri tímaritum. -
Vinsældir ADDI Novel hringprjónanna aukast stöðugt. Þeir eru hrufóttir með góðum oddi, úr málmi og lykkjurnar renna ekki eins vel á þeim sem gerir þá mjög hentuga fyrir þau sem vilja prjóna þéttar/fastar. Prjónaoddarnir eru léttir úr kopar, húðaðir með hvítu bronsi. Snúrurnar eru mjúkar og samskeyti snúru og prjóns slétt. ADDI prjónarnir eu hannaðir og framleiddir í Þýskalandi fyrir prjónara sem vilja aðeins bestu gæði. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds.
-
Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Þessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír og er á DÖNSKU.